Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.07.2003, Qupperneq 15

Fréttir - Eyjafréttir - 17.07.2003, Qupperneq 15
Fréttir / Fimmtudagur 17. júlí 2003 15 Klofningur Ferðamála- samtakanna Nú er ljóst að klofningur Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja er orðin staðreynd með úrsögn fimm stærstu aðilanna innan samtakanna. I síðustu viku sögðu Sigurmundur Einarsson, sem rekur Vikingtours, Höllin, Gísli Valur Einarsson, sem rekur Hótel Þórshamar og Hótel Hamar og tvö gistiheimili, Flugfélag Vestmannaeyja og Jón Ingi sem rekur Lundann og Prófastinn, sig úr samtökunum. Þeir sem eftir sitja ætla þó ekki að láta deigan síga og segir Ruth Zohlen, formaður, að blásið verði til sóknar í Ferðamálasamtökunum. „Það er leitt að þau skuli vera að fara úr samtökunum sem að sjálfsögðu munu halda áfram af miklum krafti. Til dæmis kemur á næstu vikum út bæklingur á vegum samtakanna. Ferðamálasamtökin eru öllum opin og við vonumst til að sjá þau sem yfirgáfu okkur núna sem allra fyrst,“ sagði Ruth. Hilmar Rósmundsson skrifar: Hvað er eiginlega að gerast í bænum okkar? Það fer ekki framhjá neinum, sem hér býr, að ýmislegt er og hefur verið að gerast í pólitíkinni hér. Þegar forystu- maður B-listans, sem verið hafði í meirihlutasamstarfi með D-listafólki, sýndi því allt í einu vinstri hliðiina og tók um leið heljarmikla vinstri sveiflu, þrátt íyrir andstöðu flokksfélaga sinna, missti íhaldið þann meirihluta, og þau völd, sem það hefur haft hér frá ómunatíð, með stuttum hvíldum. Mín skoðun er sú að full þörf hafí verið á breytingu í stjóm bæjarmála hér, að íhaldið hafi verið búið að stjóma hér of lengi, í þessari lotu, þreyta var komin í ráðamennina og þeir vom hvíldarþurfi, orðnir væru- kærir og of öruggir um sinn pólitíska hag, enda gerðu þeir akkúrat ekki neitt, þó að á síðustu árum væri bæði bæjarfélagið og bæjarsjóður að drabb- ast niður. Þó að hér sé að mörgu leyti mjög gott að búa, þá er það staðreynd að um það bil eitt hundrað manns á ári hafa orðið að flytja héðan hin síðari ár, þar sem það fólk hefur misst sína at- vinnu og engin önnur í boði, vegna þess að atvinnutækjunum fækkar og ekkert kemur í staðinn. Unga fólkið sem tekur sig upp og gengur menntaveginn kemur ekki heim aftur þegar þeirri göngu lýkur þar sem hér er engin vinna sem hentar þeirra námi. íbúum bæjarins fækkar og fækkar og þetta hlýtur að enda með ósköpum, verði áfram flotið sofandi að feigðarósi. Þeir sem fylgjast með landsmála- pólitíkinni vita að á síðustu ámm hafa ýmis ríkisfyrirtæki verið flutt af Stór- Reykjavíkursvæðinu á landsbyggðina að kröfu forráðamanna sveitarfélaga þar, og hefur það haft mjög góð atvinnuáhrif á þeim stöðum sem hnossið hafa hlotið, einkum fyrir unga fólkið. Hefur eitthvað af þessum fyrirtækjum sest hér að? Nei. Ráðamenn bæjarins hafa trúlega ekki leitað eftir því, enda alltaf talið allt í lukkunnar velstandi hér, jafnvel þó að á annað hundrað manns hafi verið á atvinnuleysisskrá á þeim tíma sem atvinna á að vera hvað mest. Eg held að sjávardeild Landhelgis- gæslunnar myndi sóma sér vel héma, Hafrannsóknastofnun með alla sína vitringa og spámenn gæti alveg eins sent sinn boðskap héðan eins og frá Reykjavík. Siglingamálastofnun, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins og jafnvel stórapparatið Fiskistofa, með hóp af alls kyns sérfræðingum og fiskateljumm, gæti hæglega búið um sig hér. Hverju þessara fyrirtækja fylgja æði mörg störf fyrir alls kyns fólk, að vísu em þrjú þeirra með afar fámenn útibú hér. íhaldið hefur nú látið af stjóm bæjarmála, í bili að minnsta kosti, en fjöldi Eyjamanna lítur á það sem heimsendi og líður því ekki vel, en enginn getur neitað því að viðskilnaðurinn er afar bágborinn. Pólitísk staða í stjóm bæjarins er ákaflega viðkvæm núna og jafnvel i Það er eflaust tómt rugl í mér að fara með þessum skrifum að blanda mér í hatrammar pólitískar deilur, þar sem ég sit á friðarstóli, sæmilega hress, með allt á hreinu og veit ekki til þess að ég eigi einn óvin, hvað þá fleiri. Með þessum pistli kem ég mér eflaust upp óvildarmönnum, kannski mörgum. Það verður að hafa sinn gang, bakið er ennþá nokkuð breitt, svo ég þoli það. En þegar við mér blasir bruðl og óráðsía og ég tala nú ekki um alls konar pólitískt siðleysi, hjá þeim sem ég hef trúað fyrir mínum málum, á ég erfitt með að halda kjafti. furðuleg. í síðustu sveitarstjómarkosn- ingum fékk V-listi Vestmannaeyja- listans þrjá menn kjöma í bæjarstjóm, D-listi Sjálfstæðisflokks fékk einnig þrjá menn en B-listi Framsóknar og óháðra fékk einn mann en þar sem sjö em í bæjarstjóminni er B-lista maðurinn oddamaður, en það færir honum ómæld völd og áhrif. Það er slegist um hann vegna þess að hann einn virðist geta ráðið því hvort kratar eða sjálfstæðismenn stjóma þessum bæ og auðvitað fær hann að ráða því sem hann vill því annars óttast þeir, sem hann starfar með, að hann snúi baki við þeim. Oddamaðurinn hóf meirihlutastarf með sjálfstæðismönnum og í fyrstu lék allt í lyndi en eftir nokkra mánuði hljóp snurða á þráðinn, sem þeim tókst ekki að leysa, samstarfinu var slitið og oddamaðurinn myndaði meirihluta með krötum, en þá varð fjandinn laus. Flest af því fólki sem stóð að B-list- anum með oddamanninum lýsti því yfir að hann sæti ekki í bæjarstjóm sem fulltrúi B-lista Framsóknarflokks og óháðra. Mér er sagt að fjórir eða fimm þeirra, sem Ijáðu B-listanum nafn sitt styðji oddamanninn, hinir em á móti. Sem sagt, varaforseti bæjar- stjómar Vestmannaeyja og formaður bæjarráðs situr í þessum valdamiklu embættum vegna eigin ágætis, en ekki íyrir stuðning flokkssystkina. Það er margt skrýtið í pólitíkinni. Ekki hefur farið mikið fyrir stjóm- viskunni hingað til og aðalfréttimar sem bæjarbúar fá af bæjarstjórninni sinni em þegar bæjarblöðin birta íféttir af fundum bæjarstjómar, en þar ganga bókanir á víxl um flest mál, þannig að þeim sem á annað borð nenna ennþá að reyna að fylgjast með fmnst nóg um. Fimmtudaginn 10. júlí 2003 var boðað til aukafundar í bæjarstjórn Vestmannaeyja sem hófst kl. 18.00 í Þórsheimilinu. Nokkrir bæjarbúar sóttu fundinn sem fór afar friðsamlega af stað og vom flest þau mál er upp vom borin samþykkt með sjö at- kvæðum samhljóða. En þegar meiri- hlutinn bar upp tillögu þess efnis að Inga Sigurðssyni bæjarstjóra yrði sagt upp störfúm hjá Bæjarsjóði ffá og með 11. júlí, féll sprengjan. Ekki fylgdi brottrekstrinum hver ástæða hans væri og hlýtur það að vera algjörlega sið- laust og ég leyfi mér að fullyrða að mikill meirihluti bæjarbúa fordæmir svona vinnubrögð og þeir sem standa að og stunda svona vinnubrögð eru heppnir að ekki em kosningar á næsta leiti, því þeim yrði tæpast treyst. Þeir sem til þekkja fullyrða að þann stutta tíma sem Ingi Sigurðsson sat í stóli bæjarstjóra hafi hann staðið sig mjög vel og að ekkert sé út á störf hans að setja, enda sýnist mér pilturinn hvers manns hugljúfi, nemá í boltanum, þar er hann grimmur. Þama er pólitíkin í algleymi og pólitíkusar, sem einskis svífast. Þá hefur verið boðuð endurskipulagning á stjómsýslu bæjarins og starfsmannahaldi. Ráðnir hafa verið fjórir fram- kvæmdastjórar fyrir þau fjögur svið sem nýtt stjómskipulag Vestmanna- eyjabæjar gerir ráð fýrir. Mér líst mjög vel á þessa breytingu, það er fyllilega kominn tími á að einhver fari að stjóma og bera ábyrgð og ég vona að það fólk, sem valist hefur til þessara þýðingarmiklu starfa, standi undir væntingum bæjarbúa og óska þeim heilla í starfi. Mér finnst endilega að bæjarstjóm skuldi skattgreiðendum upplýsingar um hvað það kosti blankan bæjarsjóð að reka bæjar- stjórann og einnig að segja okkur hvort nýju toppamir bætist við toppa- kerfi bæjarins, eða hvort þeir ganga í störf og slóðir einhverra sem þá yrðu reknir á fullum eftirlaunum. Trúlega hafa ráðamenn ekki þungar áhyggjur af vel blönkum bæjarsjóði á meðan lánstraustið endist, það má alltaf bæta við einu láni og breyta síðan fjárhags- áætlun bæjarsjóðs. Rekstur á bæjarsjóði eins sveitar- félags er áþekkur rekstri á stóm heimili, það verður að miða eyðsluna við það fé sem aflast hverju seinni, annars fer illa. Það finnst öllum gaman að eiga glæsilegt heimili en flestra gaman kámar þegar þeir átta sig á því að kaupmaðurinn eða bankinn á allar firiu mublumar og engir aurar em fyrir næstu afborgun. Það er líka skemmtilegt að búa í fallegum bæ eins og bærinn okkar er orðinn. A síðustu ámm hefur ýmislegt verið gert til þess að fegra bæinn okkar og hefur það yfirleitt tekist mjög vel en það sem skyggir á er að hér blasir við það sama og hjá manninum í fallegu íbúðinni með fínu mublumar, það er bankinn sem á allt þetta skraut en hvorki bærinn eða bæjarbúar; sem sagt allt í skuld. Meðan staða Bæjarsjóðs jafngildir því að hvert mannsbam í bænum skuldi á aðra milljón, geri ég það að tillögu minni að ráðamenn bæjarins hætti að láti sig dreyma um byggingu og rekstur á svokölluðu Menningar- húsi, ég legg til að hætt verði við uppgröft á handónýtum gosminjum og sting upp á að bæjarstjóm bjóði Islandsbanka að fegra umhverfi sitt með því að helluleggja bankatorgið á sinn kostnað. Bankinn hefur án efa meiri efni á að leggja torgið gull- hellum en blanki bæjarsjóðurinn venjulegum steini. Hafi bankinn ekki áhuga þá á auðvitað að malbika yfir urðina. Einhvem veginn finnst mér að miðað við fjárhagslega stöðu sveitar- félagsins nú, væri skynsamlegast að jarða pólitíkina og kjósa fólk til þess að stjóma bænum sem kann að reka fyrirtæki með sóma. Ef til vill er ráðning hinna nýju framkvæmdastjóra spor í þá átt, það kemur fljótlega í ljós. Annars hlýtur mannval til stjómun- arstarfa að vera ákaflega takmarkað fyrst það er talið boðlegt að oddvitar bæði meiri- og minnihluta bæjar- stjómar sitji á Alþingi. Eg hélt að seta á Alþingi væri fullt starf, allavega er. það launað sem slíkt. Þeir verða því að stjóma þessu bæjarfélagi í hjáverkum eða með tölvupósti og síma og sjálfsagt má líka nota Netið. Það er eflaust tómt mgl í mér að fara með þessum skrifum að blanda mér í hatrammar pólitískar deilur, þar sem ég sit á friðarstóli, sæmilega hress, með allt á hreinu og veit ekki til þess að ég eigi einn óvin, hvað þá fleiri. Með þessum pistli kem ég mér eflaust upp óvildarmönnum, kannski mörgum. Það verður að hafa sinn gang, bakið er ennþá nokkuð breitt, svo ég þoli það. En þegar við mér blasir bmðl og óráðsía og ég tala nú ekki um alls konar pólitískt siðleysi, hjá þeim sem ég hef trúað fyrir mínum málum, á ég erfitt með að halda kjafti. Vestmannaeyjum 1 l.júlí2003 Hilmar Rós Kröftugur bæjar- stjórnar- fundur Hafi örlað á von í brjóstum bæjarbúa um að samstaða næðist í bæjarstjóm og samskipti meiri- og minnihluta kæmust í eðlilegt horf var djúpt á henni á aukafundi bæjarstjómar í Þórsheimilinu síðasta fimmtudag. Stærsta málið var breyting á stjómskipulagi bæjarins sem Jón Gauti Jónsson hjá IBM-ráðgjöf hafði unnið fyrir bæjarstjóm. Inni í þeim pakka var ráðning fjögurra framkvæmdastjóra, uppsögn bæjarstjóra og ráðning nýs þó hvomgt væri í útsendri dagskrá. Um 40 manns fylgdust með fundinum sem er mjög sjaldgæft en trúlega vom það bæjarstjóraskiptin sem drógu til sín fólk. Ingi Sigurðsson, bæjarstjóri, bað um orðið og las upp lögfræðiálit Ragnars Hall hrl. sem fullyrðir að Ingi eigi rétt á launum út kjör- tímabilið sem gengur þvert á álit Astráðs Haraldssonar hrl. sem meirihluti bæjarstjómar kynnti fyrir nokkru. Kemst Astráður að þeirri niðurstöðu að Ingi eigi aðeins rétt á sex mánaða biðlaunum. Þama munar miklu í peningum þvf sex mánaða biðlaun em nálægt 3 milljónum króna en ekki fjarri 20 milljónum reynist Ragnar Hall hafa rétt fyrir sér. Það var greinilegt að Ingi er ekki sáttur og sagði hann að aldrei hefði verið látið á það reyna að ná trúnaði og trausú af hálfu meirihlutans. Ingi sagðist aldrei hafa verið í pólitík en nú hefði hann kynnst henni. Var á honum að skilja að þau kynni hefðu verið góð en hann þakkaði fólki fyrir samstarfið, bæði starfsfólki bæjarins og fólki í nefndum sem hann sagði að hefði sýnt sér fullan trúnað, sama hvar í flokki það væri. „Við hina segi ég, ég vona að þið eigið eftir að gera rétt og að hagsmunir Eyjanna verði ofan á,“ sagði Ingi. Amar Sigurmundsson (D) vildi fá svör við því hvers vegna starfs- menn bæjarins hafi orðið að lesa um það í fjölmiðlum og eða fengið um það skilaboð að þeir ættu von á uppsögnum eða tilfærslu innan bæjarkerfisins. Lúðvík Bergvinsson (V) sagði að enn einu sinni væri Amar með kjánagang og dylgjur og fleira var honum, fundið til foráttu, m.a. að vera stjómarformaður Eyjaífétta. Annars hirti Lúðvík ekki um að svara Amari. Þannig gekk fundurinn og létu fundargestir í sér heyra nokkuð reglulega. Tillaga um að segja Inga upp var samþykkt með fjórum atkvæðum meirihlutans, minni- hlutinn greiddi atkvæði á móti. Sama gerðist með ráðningu Bergs Agústssonar í stöðu bæjarstjóra. Aftur á móti sat minnihlutinn hjá þegar framkvæmdastjóramir vom ráðnir. Þeir eru Viktor Stefán Pálsson lögfræðingur, sem verður framkvæmdastjóri stjómsýslu- og fjármálasviðs, Hera Ósk Einars- dóttir félagsfræðingur, verður framkvæmdastjóri félags- og íjölskyldusviðs, Andrés Sigurvins- son gmnn- og framhaldsskóla- kennari og leikstjóri, verður fram- kvæmdastjóri fræðslu- og menningarsviðs og Frosti Gíslason, iðnaðartæknifræðingur frá Tækni- háskóla íslands, verður fram- kvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.