Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.07.2003, Síða 17

Fréttir - Eyjafréttir - 17.07.2003, Síða 17
Fréttir / Fimmtudagur 17. júlí 2003 17 eftir Rósu Guðmundsdóttur, Barbara Hafdís Þorvaldsson sýndi dans og þátttakendur sýndu föt frá verslunum Flamingó og Axel O. Loks var það svo krýningin. í heild var kvöldið vel heppnað og greinilegt að framkvæmdastjóri keppninnar, Ester Helga Sæmunds- dóttir, hafði skilað góðu verki og stjórnin var í höndum Bjama Olafs Guðmundssonar sem hefur verið kynnir keppninnar undanfarin ár. Þar er fagmaður á ferð sem leggur mikla vinnu í undirbúning. Það er alltaf gaman að vera í Höllinni þegar margt fólk er í mat eins og þetta kvöld. Sennilega hafa gestir ckki verið fleiri í sögu Sumar- stúlkukeppninnar sem nær allt aftur til ársins 1986 þegar Fréttir og Pálmi Lórensson veitingamaður á Höfð- anum stóðu fyrir fyrstu keppninni. Síðan hefur keppnin aðeins fallið niður í eitt skipti og var það ein- faldlega vegna þess að ekki var til húsnæði sem sannar enn og aftur mikilvægt hlutverk Hallarinnar fyrir bæjarfélagið. Matseðill samanstóð af sjávar- réttarspjóti, pönnusteiktum kjúklinga- bringum og súkkulaðisinfóníu í eftirrétt. Allt smakkaðist vel enda eldamennskan í ömggum höndum Gríms Þórs Gíslasonar matreiðslu- meistara og hans fólks í eldhúsi Hallarinnar. Dómnefnd skipuðu Dagmar Skúla- dóttir formaður, Halla Einarsdóttir Ijósmyndari, Auður Eva Auðunsdóttir framkvæmdastjóri Herra Suðurlands, Ævar Sveinsson frá Hummel og Hjördís Elsa Guðlaugsdóttir frá Flamingó. Dómnefndin átti erfítt verk fyrir höndum að velja þá sem uppi stóðu en niðurstaðan var skýr, Sumar- stúlkan er Sædís Eva Birgisdóttir. Sædís Eva er sautján ára gömul, fædd 21 september 1985. Hún er dóttir Kolbrúnar Evu Valtýsdóttur og Birgis Þórs Sverrissonar. Hún var einnig valin Ljósmyndafyrirsætan. Sportstúlkan og vinsælasta stúlkan er Eygló Egilsdóttir. Hún er nítján ára gömul og foreldrar hennar em Helena Weihe og Egill Jónsson. Herra Vestmannaeyjar kemur frá Akureyri en hann er Stefán Atli Agnarsson, fæddur 18. desember 1985 og verður því átján ára á þessu ári. Foreldrar hans em Agnar Amason og Valgerður Stefánsdóttir. Sportherrann er svo Benedikt Oskar Steingrímsson, sautján ára gamall en hann er fæddur 5. nóv- ember 1985. Foreldrar hans eru Steingrímur Benediktsson og Jóhanna Magnúsdóttir. Fréttir vilja að lokum þakka öllum sem að sýningunni komu fyrir þeirra hlut í undirbúningi keppninnar og henni sjálfri, einkum stúlkunum og strákunum sem vom bæði sjálíúm sér og Eyjunum til sóma, einnig Ester Helgu og Bjama Ólafi sem vinna sitt verk af fagmennsku. AXELÓ kynnti nýjustu línuna frá Hummel. Ásta Hrönn og Ingibjörg Ósk sýndu að þetta eru hinar eigulegustu flíkur. FLOTTIR í fötum frá Flamingó. Stefán Björn og Styrmir báru sig fagmannlega að í tískusýningunni. ERNA Björk og Silja Elísabet sungu sig inn í hjörtu gesta. ÞAÐ sama gerðu Sigrún Arna og VÉDÍS flutti lög eftir Rósu systur Sædís Eva. snia. Glæsileg verðlaun Verslun Grétars V. Þórarinssonar, Heildverslun Karls Kristmanns, Selma Ragnarsdóttir, Halla Einars- dóttir ljósmyndari og Foto voru meðal þeirra sem styrktu keppnina með framlögum sínum. Starfsfólk Snyrtistofunnar Anitu sá um förðun keppenda og Hárgreiðslustofan Enn Ell sá um hárgreiðslu. Skreytingar í salnum voru frá Blómastofunni Bárustíg og síðan má geta þess að allt í skreytingunum hér í Höllinni var sótt út í náttúru okkar Eyjamanna. Allar stúlkurnar og allir herrarnir fengu: Frítt í Hressó á undir- búningstímanum og einnig frítt í ljós, gjafakörfu frá Sebastian og EnnEll hársnyrtistofu sem að sjálfsögðu selur og notar Sebastin vörumar, gjafakörfu frá Clarins og Snyrtistofunni Anitu sem selur Clarins vömrnar og blóm- vönd frá Blómastofunni Bámstíg. Vinsælasta stúlkan fékk: Bangsa frá Krakkakoti og 10 tíma ljósakort frá Hressó. Sportstrákur Hummel fékk: Gjafabréf frá Hummel sem fæst í Axel Ó, umboðsaðila Hummel í Eyjum og 10 tíma ljósakort frá Hressó. Sportstúlka Hummel fékk: Gjafa- bréf frá Hummel og 10 tíma ljósakort frá Hressó. Ljósmyndafyrirsæta Foto og í raun ljósmyndafyrirsæta Vestmannaeyja hjá herrunum fékk: Glæsilega Samsung. myndavél frá Foto og 10 tíma ljósakort frá Hressó Foto stúlkan fékk: Glæsilega Samsung myndavél frá Foto og Í0 tíma ljósakort frá Hressó. Herra Vestmannaeyjar og Sumar- stúlka Vestmannaeyja fengu: Gjafabréf frá Axel Ó., að verðmæti 10.000,- krónur, gjafabréf frá tískuversluninni Flamingó, að verðmæti 10.000,- krónur, ferð fyrir tvo með íslandsflugi Vm. - Rvík. - Vm, undirföt að eigin vali frá Versluninni 66 gráður norður, borðlampa frá Reynistað, Ritsenhof glas frá versluninni Callas, Sælulykil að Hótel Örk, 3ja rétta máltíð fyrir 2 frá Veitingastaðnum Fjólunni, gjafa- körfu frá verslun Grétars V. Þórar- inssonar, gjafapakka frá Clarins og Snyrtistofunni Anitu og blómvönd frá Blómastofunni Bárustíg. ÞESSAR ungu stúlkur dönsuðu af innlifun.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.