Fréttir - Eyjafréttir - 17.07.2003, Síða 18
18
Fréttir / Fimmtudagur 17. júlí 2003
Landa-
KIRKJA
Fimmtudagur 17. júlí
Kl. 10.00. Mömmumorgunn í
Safnaðarheimilinu. Notaleg sam-
verustund foreldra og bama þeirra.
Spjall og kaffisopi á morgun-
göngunni.
Sunnudagur 20. júlí
KI. 11.00. Messa. Ungbamsskím
og altarisganga. Hópur úr Litlum
lærisveinum og Kór Landkirkju
syngja. Börnin fá biblíumyndir.
Þessi messa er síðasta messa sr.
Kristjáns fyrir eins árs námsleyfi
vestanhafs. Prestsfjölskyldunni
allri þætti gaman að sjá sem flesta í
kirkju til að segja bless á meðan.
Það er alltaf gott að fá góðar
blessunaróskir þegar lagt er upp í
langa ferð.
Kaffisopi á eftir í Safnaðar-
heimilinu.
Sr. Kristján Bjömsson.
Fimmtudagur 24. júlí
Kl. 10.00. Mömmumorgunn í
Safnaðarheimilinu. Síðasti
mömmumorgunn fyrir þjóðhátíð í
Eyjum!
Sr. Kristján Bjömsson.
Hvítasunnu-
KIRKJAN
Fimmtudagur 17. júlí
Kl. 20.30 Biblíufræðsla.
Föstudagur 18. júlí
Kl. 20.30 Unglingakvöld.
Allir unglingar velkomnir.
Laugardagur 19. júlí
Kl. 20.30 Lofgjörðar- og bæna-
stund.
Sunnudagur 20. júlí
Kl. 11.00 SAMKOMA. Komið og
takið þátt í lofgjörð og heyrið
lifandi orð Guðs predikað.
„Sælir em þeir sem heyra Guðs orð
og varðveita það.“ Lúk. 11:28.
Allir hjartanlega velkomnir.
Munið bænastundir, kl. 7.30 hvem
virkan dag.
Aðventkirkjan
Laugardagur 19. júlí.
Kl. 10.30Biblíurannskókn.
Biblían
talar
sími
481-1585
Knattspyrna: Markamaskínan Gunnar Heiðar í léttu spjalli
Stefni á atvinnumennsku
GUNNAR Heiðar: -Við stefnum hins vegar ofar og mér finnst markmiðið ætti að vera Evrópusæti, sem þýðir að
IBV þarf að vera í einu af þremur efstu sætunum. Okkur tekst það vonandi enda væri það mjög mikilvægt fyrir
IBV fjárhagslega að komast í Evrópukeppnina.
Sá leikmaður IBV sem hefur vakið
hvað mesta athygli síðustu tvö ár er án
efa sóknarmaðurinn efnilegi, Gunnar
Heíðar Þorvaldsson. Hann er reyndar
kominn á grátt svæði þegar talað cr
um efnilega leikmann, hann er ein-
faldlega orðinn góður og á án efa eftir
að verða betri. Það sannar best kjör á
besta manni fyrstu sex umferðanna í
deildinni í sumar, þar sem hann
sigraði.
Belgíska úrvalsdeildarliðið Mous-
croen fylgdist vel með piltinum
síðasta sumar og gerir enn en sjálfur
segist Gunnar Heiðar stefna á at-
vinnumennsku síðar. Gunnar tók vel í
það að spjalla aðeins um IBV,
viðurkenningamar og framtíðarsýn
sína.
Vantar stöðusleika
Þegar Gunnar var spurður út í mun-
inn á síðustu tveimur leikjum ÍBV
segir hann að þeir séu eins og svart og
hvítt. „I Skagaleiknum mættum við
grimmir og ákveðnir og fómm í einu
og öllu eftir því sem Magnús Gylfason
lagði fyrir okkur. Það sýndi sig líka í
úrslitum leiksins hversu öflugir við
vomm en að sama skapi sýndi það sig
fyrir norðan hvað við getum verið
slakir. Þar má segja að þetta hafi verið
öfugt miðað við í Skagaleiknum. Mér
fannst við vera andlausir og ekki nógu
einbeittir til þess að ná betri úrslitum.
KA-menn vom líka heppnir og fengu
þessi mörk nánast gefins. Eg er ekki
með þessu að setja út á varnarmenn
liðsins, það var allt liðið sem tapaði
leiknum, ekki einn eða tveir leik-
menn.“
Hvað er það sem vantar hjá IBV?
„Það er ekki erfitt að svara því, það er
stöðugleikinn. Við höfum sýnt mjög
góða leiki, t.d. á móti IA um daginn og
gegn Fylki á heimavelli. Þegar við
spilum þannig getum við unnið öll lið
deildarinnar. Því miður gerist þetta
ekki nógu oft og inn á milli dettum við
niður á ansi lágt plan. Andlega hliðin
leikur stórt hlutverk og við vitum
sjálfir að getan er til staðar. Við höfum
sýnt það. Svo má kannski segja að
það vanti meiri breidd í hópinn. Þó
við ætlum okkur alltaf að leggja okkur
hundrað prósent fram í öllum leikjum
er mönnum hættara við að slaka
aðeins á ef maður er nokkuð viss með
sæti í liðinu. Menn gera þetta bara
ósjálfrátt og aðeins samkeppni um
stöður breytir þessu. Þetta em kannski
13 leikmenn hjá okkur sem em að
berjast um ellefu stöður þannig að
þetta er ekki eins og hjá atvinnu-
mannaliðunum þegar þú stendur þig
ekki í einum leik þá ertu bara
einfaldlega settur á bekkinn."
Ætla að bæta mig
Gunnar var ífyrra valinn efnilegasti
leikmaður mótsins, skoraði hann
ellefu mörk og var í baráttunni um
markakóngstitilinn. En er stejhan sett
á gullskóinn í ár? ,Já, auðvitað stefnir
maður á að verða markahæstur. Það
hefur samt sem áður engan forgang
hjá mér, ég vil bara að IBV nái í þau
stig sem liðið þarf á að halda. Hins
vegar ætla ég mér að bæta mig frá því
í fyrra, þá skoraði ég ellefu mörk og
var valinn efnilegastur. Eg neita því
ekki að ég sakna Steingríms í fram-
línunni enda er hann reyndur leik-
maður og fær mikla athygli frá varn-
armönnum andstæðingsins. Þannig
fæ ég kannski meira pláss en hins
vegar hefur verið mjög gott að spila
með Bjama Rúnari og Atla í
framlínunni enda hafa þeir staðið sig
mjög vel.“
Nú varstu valinn besti leikmaður
fyrstu sex umferðanna affjölmiðlum í
vali sem KSI stendur fyrir, kom það
þér á óvart? „Já, ég neita því ekki.
Mér fannst ég reyndar vera að spila
mjög vel í byrjun móts og greinilegt
að fleirum hefur fundist það. Þessi
viðurkenning er jákvæð fyrir mig en
ekki síst fyrir liðið því einn leikmaður
getur aldrei unnið leiki. En ég var
mjög ánægður með að fá þessa
viðurkenningu, svona hefur mikið að
segja upp á sjálfstraustið."
Evrópusæti markmiðið
Þegar Gunnar er spurður út í það hvort
staða IBV sé samkvæmt hans vænt-
ingum fyrir mótið svarar hann því
þannig að liðið sé á þeim slóðum sem
hann hefði búist við. „Eg hafði það á
tilfinningunni að við yrðum unt miðja
deild um þetta leyti. Við stefnum hins
vegar ofar og mér frnnst markmiðið
ætti að vera Evrópusæti, sem þýðir að
ÍBV þarf að vera í einu af þremur
efstu sætunum. Okkur tekst það von-
andi enda væri það mjög mikilvægt
fyrir ÍBV fjárhagslega að komast í
Evrópukeppnina."
Síðasta sumar fylgdust erlendir
njósnarar með þér og um haustið
fórstu út, m.a. til belgíska félagsins
Mouscroen. Hefiirðu heyrt íþeim eftir
það? „Nei, ég hef reyndar ekkert heyrt
frá þeim síðan um áramótin. Þeir eru
að skipta um þjálfara núna en sá sem
fylgdist með mér verður aðstoðar-
þjálfari liðsins þannig að hann veit í
það minnsta af mér. Þeir ætluðu að
fylgjast með mér í sumar þannig að ég
hef bara einbeitt mér að því að standa
mig og gera mitt besta.“
Er stefnan sett á atvinnumennskuna?
„Eg neita því ekki að þangað leitar
hugurinn. Það væri mjög gott fyrir
mig að komast að hjá liði í Belgíu eða
Hollandi, byija þar sem deildimar eru
ekki jafn yfirþyrmandi eins og í
Englandi og á Italíu. Ég væri t.d. ekki
til í að fara til ensks úrvalsdeildarliðs
þar sem maður myndi jafnvel bara
týnast eins og dæmin hafa sýnt okkur
Islendingum.“
En að lokum, hvemig sérðu fyrir þér
að sumarið þróist hjá IBV? „Næstu
tveir leikir eru mjög mikilvægir og ég
held að ef við fáum fjögur stig út úr
þeim þá séum við búnir að stíga stórt
skref í áttina að tryggja okkar sæú í
deildinni. Við þyrftum reyndar að fá
fleiri stig en mér finnst mikilvægt að
komast sem lengst frá botninum sem
fyrst því þegar það tekst, er hægt að
fara að skoða aðra möguleika."
julius@eyjafrettir. is
Ungmennafélagið óðinn
hefur í sumar staðið fyrir
fjölbreyttum
íþróttanámskeiðum sem
Trausti Hjaltason
stjómar. Það er ekki
bara boðið upp á íþróttir
því farið er í bátsferð,
skoðunarferð um
Heimaey og endað með
mikilli grillveislu. Er
myndin tekin í lok síðasta
námskeiðs.