Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 18.09.2003, Qupperneq 6

Fréttir - Eyjafréttir - 18.09.2003, Qupperneq 6
6 Frcttir / Fimmtudagur 18. september 2003 Ný búfjár- samþykkt Landnytjanefnd samþykkti á fundi sínum þann 10. september síðastliðinn að breyta niðurlagi fimmtu greinar samþykktar um búfjárhald í Vest- mannaeyjum. Nú hljóðar niðurlagið: „Hagaganga, þ.e. haust- og vetrarbeit sauðfjár á skilgreindum svæðum á Heimaey er heimil á tímabilinu 1. október til 31. mars ár hvert. Land- nytjanefnd getur, að fenginni umsögn búijáreftirlitismanns, veitt undanþágu frá dagsetningu ef nauðsynlegt þykir að mati nefndarinnar. Land sem ætlað er til hagagöngu skal ákvarðað af landnytjanefnd að fenginni umsögn búijáreftirlitismanns. Mörk landsvæðis, sem ætlað er til hagagöngu, skulu endurskoðuð þriðja hvert ár.“ Hitt málið á dagskrá nefndarinnar á var bréf frá Oddi Björgvin um samn- ing bæjarins og Skógræktarfélagsins. Landnytjanefnd óskaði álits lögmanns bæjarins. Bæjarráð samþykkti fundar- gerðina og að gert yrði ráð fyrir breytingum á fimmtu greininni í samræmi við tillögu nefndarinnar. Oskar eftir fundi Fyrir fundi bæjarráðs á mánudaginn lá fyrir bréf frá Gunnari K. Gunnarssyni framkvæmdastjóra Sjúkrahússins þar sem óskað er eftir fundi með bæjar- stjóm Vestmannaeyja eða fulltrúum hennar við fyrsta hentugleika til að fara yfir skýrslu stofnunarinnar, Stefna og framtíðarsýn 2003. Vísað er til laga um heilbrigðismál frá 1990 þar sem segir meðal annars að framkvæmdastjóm skuli boða til upplýsinga- og samráðsfunda með sveitastjórn eða sveitastjómum á starfssvæði stofnunarinnar að minnsta kosti tvisvar á ári. Bæjarráð þakkaði greinargóða skýrslu og felur bæjar- stjóra að svara bréfritara og fínna fundartíma. Lausn á Hressómálinu virðist vera í augsýn? ÞEIR eru margir sem telja líkamsrækt, sjálfsagðan hlut og eru tilbúnir að leggja mikið á sig eins og sést á þessum konurn sem voru að æfa í Hressó í gærmorgun. Guðlaugur Guðmundsson sendi fyrir hönd Deloitte & Touche bréf til Samkeppnisstofnunar þar sem farið er yfir hvemig ijármálalegur aðskilnaður líkamsræktarsalar Iþróttamiðstöðvar verður. Samkeppnisstofnun gerði þá kröfu í úrskurði sínum fyrr á árinu í svokölluðu Hressómáli að þetta yrði gert. Kemur fram að í bókhaldi bæjar- sjóðs hefur verið sett upp sérstök stofnun í reikningslyklinum sem nær yfir rekstur og efnahag salarins. Öll tæki í salnum voru talin, listuð og verðlögð með verðupplýsingum frá seljendum tækjanna. Um er að ræða nítján tæki auk lóða og bekkja þeim tilheyrandi. Tækin voru verðmetin eftir verð- listum viðkomandi heildsala og kosta ný 7,3 milljónir króna. Tækin voru keypt á ýmsum tímum og eru í útreikningum Deloitte & Touche metin á 55% af nývirði að meðaltali. Ahöld og tæki í salnum eru því metin á fjórar milljónir króna. Skuld við bæjarsjóð er því fjórar milljónir króna og reiknast vextir af þeirri upphæð. Líkamsræktarsalurinn skal greiða leigu til bæjarsjóðs, 774 krónur á fermetraen salurinn telur 141 fermetra og því 109 þúsund króna mánaðar- leiga. Aðgangur að salnum á að VERA JAFNDÝR OG HJÁ ÖÐRUM Tekjur salarins eru þríþættar, sala til almennings, afnot skóla af salnum vegna leikfimi grunnskólanemenda og afnot félagsmanna IBV af salnum við þjálfun og æfingar. í gjaldskrá Iþróttamiðstöðvarinnar er þjónusta líkamsræktarsalarins verðlögð sérstak- lega og við gerð hennar var einkum gætt að tvennu. I fyrsta lagi að að- gangur að salnum sé að minnsta kosti jafn dýr og gerist hjá líkamsræktar- stöðvum í einkarekstri og að tekjur af salnum standi undir kostnaði við rekstur hans, auk eðlilegrar fram- legðar. Kemur fram að lauslegur verðsam- anburður bendi til að verð á þessari þjónustu hjá Vestmannaeyjabæ sé svipað og víða annars staðar, en finna má bæði hærri og lægri verð. Með þessum aðgerðum telur Guðlaugur að bæjarsjóður Vestmannaeyja hafi fullnægt þeim kröfum sem gerðar eru í úrskurði áfrýjunamefndar frá því lyrr á þessu ári. Drög að samkomulagi VIÐ Hressó Var þetta bréf lagt fyrir bæjarráð en fyrr á fundinum hafði meirihluti ráðsins lagt fram tillögu um að ganga til viðræðna við Líkamsræktarstöðina ehf., sem á og rekur Hressó, á grund- velli draga að samkomulagi. Þar kemur fram að bærinn muni ekki fara í frekari uppbyggingu á líkamsræktar- sal í Iþróttamiðstöðinni og að ekki verði launaðir starfsmenn þar. Vest- mannaeyjabær samþykkir að engum sé heimilt að nota salinn án endur- gjalds nema með skriflegu samþykki Líkamsræktarstöðvarinnar ehf. Einnig samþykkir bærinn að ekki verði um frekari útleigu á salnum að ræða umfram það sem nú þegar er, nema með skriflegu samþykki Líkamsræktarstöðvarinnar ehf. Gefnir verða út sérstakir aðgöngumiðar sem veita aðgang að líkamsræktarsalnum í íþróttamiðstöðinni og Hressó. Þeir verða afhentir þeim aðildarfélögum ÍBV héraðssambands sem nú þegar hafa endurgjaldslausan aðgang að sal Vestmannaeyjabæjar svo og Slökkvi- liði Vestmannaeyja og ellilífeyrisþeg- um. Þeir sem hafa aðgöngumiða hafa fijálst val um það hvora aðstöðuna þeir nota. Vestmannaeyjabær ákvarðar hversu marga miða hann afhendir hverju aðildarfélagi IBV héraðs- sambands, Slökkviliði Vestmannaeyja og ellilífeyrisþegum. Bærinn greiðir 400 krónur fyrir hvem aðgöngumiða. Aðgöngumiðamir gilda ekki að sund- laug eða heitum pottum í íþrótta- miðstöðinni. Gert verður upp mánaðarlega og em aðgöngumiðar í fullu gildi allan opnunartíma salanna tveggja. Búið að velkjast í kerfinu í ÁTTAÁR Amar Sigurmundsson (D) bókaði að hann fagnaði því að nú stefni í að lausn á ágreiningi milli Hressó og íþróttamiðstöðvarinnar sé fundin. „Lausnin byggir á miðakerfi, ekki ólrku því sem reynt var áður við að leysa þessa deilu milli aðila. Legg áherslu á að drög að samkomulagi verði lögð fyrir bæjarráð áður en endanlega verður gengið frá samn- ingum.“ Meirihlutinn, Andrés Sigmundsson (B) og Lúðvík Bergvinsson (V), bókuðu þá: „Með tillögu þessari er verið að leita lausnar á máli sem velkst hefur um bæjarkerfið í sjö til átta ár. Tillögur þær sem liggja fyrir vom unnar af starfshóp sem komið var á fót af núverandi meirihluta. Meirihlutinn vonast til þess að þessar hugmyndir verði til þess að leysa þetta vand- ræðamál til framtíðar, þó hér sé lagt upp með eins árs tilraunaverkefni í upphafi." Málið var samþykkt í bæjarstjóm. Hart tekist á um meðhöndlun frétta úr bæjarstjóm Amar Sigurmundsson (D) lagði fram tillögu á fundi bæjarráðs á mánu- daginn þar sem hann leggur til að bæjarráð samþykki að móta skýrar reglur með hvaða hætti samþykktum bæjarstjórnar, bæjarráðs og nefnda skuli komið á framfæri við fjölmiðla og almenning. Segir ennfremur að nýjar reglur unnar samhliða endurskoðun á sam- þykkt um stjómun bæjarins og fundarsköpum bæjarstjómar sem nú er í undirbúningi. I greinargerð, sem fylgdi með tillögunni, segir meðal annars: „Tillagan er lögð fram að gefnu tilefni, en 5. september sl. var send út fréttatilkynning í nafni bæjarstjómar Vestmannaeyja til Qölmiðla um samþykkt bæjarstjómar um sjávarútvegsmál frá 4. sept. sl. í tilkynningunni komu fram persónu- legar skoðanir þess aðila sem hana samdi um leið og áherslum í sam- þykkt bæjarstjómar var breytt. Það er með öllu ólíðandi að einstaka bæjarfulltrúar, í þessu tilviki Lúðvík Bergvinsson alþingismaður, geti kom- ist upp með það að senda út persónulegar tilkynningar í nafni allrar bæjarstjómar. Fjölmiðlar og bæjarbúar verða að geta treyst því að upplýsingar um samþykktir bæjarstjórnar séu réttar. Allar fundargerðir bæjar- stjómar og nefnda hafa til margra ára verið aðgengilegar á heimasíðu Vest- mannaeyjabæjar og hafa fjölmiðlar, ekki síst innanbæjar, notfært sér það í ríkum mæli og skilað vel sínu hlutverki við að veita upplýsingar um gang bæjarmála.“ Meirihlutinn bókaði þá að af gefnu tilefni skuli það tekið fram að umrædd tillaga um fimm prósent kvótaívilnun til handa þeim útgerðum sem landa hér á landi var borin upp af meirihluta bæjarstjórnar. „Efni tillögunnar var skýrt og fréttatilkynningin, sem send var út í framhaldi af samþykkt hennar, algerlega í samræmi við efni hennar. Það er afar óheppilegt að bæjar- fulltrúar, í þessu tilviki Arnar Sigur- mundsson, skuli reyna að bakka út úr samþykkt sinni með jafn auðvirði- legum hætti og raun ber vitni eftir að athugasemdir höfðu borist vegna samþykktar hennar frá forsvarsmanni Utvegsbændafélags yestmannaeyja og forsvarsmönnum LÍU. Það er ástæða til að vekja athygli á því að bæjarfuiltrúum er ætlað að taka afstöðu til mála í samræmi við sann- færingu sína. Efni þeirrar tillögu sem er til umfjöllunar var skýrt og enginn velktist nokkum tíma í vafa um hvað í henni fólst. Að öðru leyti hafnar meirihluti bæjarráðs tillögu bæjarfull- trúa minnihlutans enda tilkynningin í fullu samræmi við vinnureglur bæjar- stjómar um að fela oddvitum tillöguflytjenda að gera fjölmiðlum grein fyrir málinu.“ Arnar mótmælti þá harðlega þeimi nýju stefnu núverandi meirihluta bæjarstjórnar að einstaka bæjarfull- trúar geti tekið sér heimild til jress að gefa út fréttatilkynningar í nafni allrar bæjarstjómar. „Bæjarfulltrúar minnihlutans tóku efnislega afstöðu til tillögu meirihlut- ans í sjávarútvegsmálum í bæjarstjóm 4. sept. sl„ en þeir voru ekki að samþykkja fréttatilkynningu Lúðvíks Bergvinssonar alþingismanns, sem send var til fjölmiðla daginn eftir, en þar er meðal annars talað um geð- þóttaákvörðun stjómvalda, en þá tilvitnun er hvergi að finna í tillögu meirihlutans, né í greinargerð sem henni fylgir.“ Meirihlutinn ítrekaði þá fyrri bókun sína um leið og meirihlutinn harmar að bæjarfulltrúinn Amar skuli rjúfa þá samstöðu sem myndaðist í bæjarstjóm við einróma samþykkt tillögu um að gæta í hvívetna hagsmuna bæjarfé- lagsins vegna yfirvofandi hugmynda stjómvalda um að mismuna lands- hlutum við úthlutun aflaheimilda með svokallaðri línuívilnun. „Eftir stendur spumingin sem bæjarfulltrúinn, Amar Sigurmunds- son, skuldar Vestmannaeyingum svar við, en hún er sú hverra erinda hann gengur með tillöguflutningi og bók- unum af því tagi sem raun ber vitni." Amar mótmælti harðlega bókun Lúðvíks Bergvinssonar. „Bæjarstjóm Vestmannaeyja er væntanlega ein- róma sammála í afstöðu sinni til hugmynda varðandi línuívilnum. Allar breytingar á fiskveiðistjómarkerfinu sem byggja á því að taka aflaheimildir frá einum til þess að afhenda öðmm aðilum kalla óhjákvæmilega á mót- mæli þeirra byggðarlaga og íyrirtækja sem fyrir skerðingunni verða. Eftir stendur í þessu máli að Lúðvik Bergvinsson tók sér vald til að semja og gefa út persónulega fréttatil- kynningu í nafni bæjarstjómar án heimildar.“ Meirihlutinn lauk þessum bókunum með því að harma tilraunir bæjar- fulltrúans Amars Sigurmundssonar til að klóra sig út úr samþykkt bæjar- stjómar og rjúfa þannig samstöðu hennar með útúrsnúningi. Vinabæjartengsl og bætt aðstaða unglinga Á fundi íþrótta- og æskulýðsráðs sem haldinn var 8. september síðastliðinn lágu fyrir þrjú framsend erindi frá bæjarráði. Fyrst var það vegna vinabæjartengsla við Götu í Færeyjum og lýsti ráðið yfir ánægju sinni með vinabæjartengslin og hvetur félög og stofnanir til að kanna þá fjölmörgu möguleika sem felast í slíkum vinabæjartengslum. Næst var það vegna bættrar aðstöðu unglinga og var tekið heilshugar undir þörf á að finna félagsmiðstöð ung- linga hentugra húsnæði, svo bæta megi aðstöðuna. Núverandi aðstaða í Félagsheim- ilinu er óhentug að mati ráðsins og samrýmist illa annarri starfsemi í húsinu, enda þarf oftar en ekki að loka félagsmiðstöðinni vegna kvikmynda- og leiksýninga. Var þetta mál svo rætt sérstaklega síðar á fundinum og var íþróttafulltrúa falið að ganga frá tillögum að nýjum samningi við Leikfélag Vestmanna- eyja, sem skal vera í samræmi við aðra samninga sem í gildi eru um afnotaf húsinu. Þriðja erindið var svo vegna menn- ingar- og kaffihúss fyrir ungt fólk sem nú er í burðarliðnum. Telur ráðið það sérstaklega ánægjulegt að nú hilli undir að starfsemi kaffihúss fyrir ungt fólk, Húsið, hefji starfsemi sína. Þakka ber þeim aðilum sem að málinu komu, fyrir mikið og gott framtak. Fjárnámsbeiðni Fyrir bæjarráði lá fyrir íjámámsbeiðni Lífeyrissjóðs starfsmanna rikisins á hendur Vestmannaeyjabæ vegna lífeyrishækkana sem var írestað til 3. desember næstkomandi. Er vonast til að á þeim tíma náist samkomulag á milli íjármálaráðuneytisins og Vest- mannaeyjabæjar um uppgjör.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.