Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 18.09.2003, Qupperneq 10

Fréttir - Eyjafréttir - 18.09.2003, Qupperneq 10
10 Fréttir / Fimmtudagur 18. september 2003 Margt var í boði á Viku símenntunar: Fjölbreytt námskeiðsflóra GESTIR á fyrirlestrum sem haldnir voru í sal Listaskólans á fóstudagskvöldið. Vika símenntunar var haldin um allt land í síðustu viku eins og greint hefur verið frá í Fréttum og hefur dagskráin líklega aldrei verið myndar- legri í Eyjum. Bergþóra Þórhallsdóttir, forstöðumaður Visku, fræðslu og símennt- unarmiðstöðvar Vestmanna- eyja, hafði yfirumsjón með dagskránni. GafViska meðal annars út glæsilegan bækling með upplýsingum um nám- skeið sem í boði verða fram að áramótum. Dagskrá viku símenntunar byrjaði á mánu- daginn í síðustu viku þar sem ný vefsíða Visku var opnuð við hátíðlega athöfn. Slóðin er www.viska.eyjar.is og er hægt að nálgast allar upp- lýsingar um námskeið þar. Ut vikuna var svo boðið upp á ýmislegt, meðal annars fjar- fund um nýja menntabrú frá Hótel Loftleiðum. Svo voru vinnustaðir heimsóttir og Viska kynnt fyrir bæjarbúum og þau námskeið sem verða í boði. Mæting oi.i.i vonbrigðum Dagskráin átti svo að ná hámarki á föstudeginum þar sem kynning var á námskeiðsframboði og möguleikum til fræðslu- og símenntunar í Vest- mannaeyjum. Einnig voru fyrirlestrar þar sem meðal annars var vell upp þeirri spurningu hvort fjamám á hati úti væri raunhæfur kostur og eins sögðu þau Gunnar Friðfinnsson og Arndís María Kjartansdóttir frá reynslu sinni af fjamámi sem þau hafa stundað síðustu ár frá Eyjum. Mæt- ingin á dagskrána á föstudeginum olli vonbrigðum en sárafáir sáu sér fært að mæta. Tíminn gæti hafa haft sín áhrif og spurning hvort föstudagskvöld sé heppilegur tími fyrir fyrirlestra og kynningar. Eins gæti myndarlegur bæklingur sem borinn var í öll hús í Eyjum hafa haft sín áhrif og fólk hefur kannski metið það svo að allar upplýsingar hafi verið þar og því ekki ástæða til þess að fara og kynnast frekar því sem í boði verður. Fólk lét mætinguna þó ekki á sig fá og eftir tónlistaratriði frá Tónlistar- skóla Vestmannaeyja og setningar- ræðu Arnars Sigurmundssonar tók Eygló Björnsdóttir, fyrrverandi grunnskólakennari í Eyjum og núverandi verkefnastjóri gagnasmiðju Háskólans á Akureyri, við. Háskóli Akureyrar hefur frá upphafi verið leiðandi í fjarmenntun á Islandi og hafa nemendur í Eyjum notið góðs af framsýni norðanmanna síðustu árin, bæði í hjúkrunar- og viðskiptanámi. Talaði hún unt hið nýja Menntanet sem nú er að komast í gagnið og leysir af hólmi gamla Ijarfundakerfíð sem Síminn gaf til menntastofnana víða um land fyrir nokkrum árum. Eygló sagði að aðbúnaður og netkerfí hafi breyst ntikið á síðustu árum og hefur til að mynda WebCT umhverfíð tekið miklum breytingum og er nú ntikið notað af ijamemum og kennumm. WebCT er lokað umhverfi á netinu þar sem nemendur geta nálgast verkefni, fyrirlestra og annað sem viðkemur náminu ásamt því að geta spjallað við aðra nemendur og kennarann sinn um námið. Sagði hún að kennarar við Háskólann á Akureyri noti kerlið mikið í samskiptum sínum við nemendur. Breytt umhverfi Næstur í pontu var Gunnar Frið- finnsson sem hefur síðustu þrjú ár stundað nám í rekstrar- og við- skiptafræði við Háskólann á Akureyri frá Veslmannaeyjum. Sagði hann ástæðuna fyrir því að þetta nám varð fyrir valinu að hann ætlar að ná sér í réttindi til að kenna við framhalds- skóla en hann hefði ekki haft áhuga á að fara til Reykjavíkur. Honum fínnst borgin einfaldlega leiðinleg. Gunnar sagði að umhverfið hafí breyst gríðarlega frá því hann byrjaði námið. Tók hann undir með Eygló um webCT sem hann segir mikla byltingu í fjarnámi. Hann segist lítið mæta á fyrirlestra á fjarfundum þar sem hann getur nálgast þá á netinu. Líka þær glósur sem fylgja með og því stjómað sínum tíma en hann vinnur fullan vinnudag með náminu. Gunnar kom inn á mikið brottfall nemenda úr fjamámi og sagði að þegar þau byrjuðu fyrir þremur árum hafí nítján verið skráðir en nú em sjö eftir. Gunnar sagði einnig að Vest- mannaeyingar eigi ekki bara að hugsa um sig sem þiggjendur í þessu því framtíðin væri í fjamámi og ætti Framhaldsskólinn í Eyjum til að mynda mikla möguleika á að setja upp fjamám. Arndís María Kjartansdóttir, nem- andi við Kennaraháskóla Islands, kom næst og sagði frá reynslu sinni af fjamámi. Amdís sem er tveggja barna móðir, gift sjómanni sagðist hafa ákveðið að segja frá sinni reynslu þar sem hún telur að fjamám sé svolítið misskilið í Eyjum. Hún segist oft heyra, já, ertu „bara“ í fjamámi og hún geti unnið fulla vinnu með ásamt því að sjá um heimili og böm. Það segir hún fjarri lagi, Ijamám eins og hún er í sé fullt nám. Amdís segir að reynsla sín sé sú að sjálfstraust aukist við það að fara í námið. Hún sagðist reyndar hafa haft nóg sjálfstraust fyrir. Eins skilji hún núna hvers vegna fólk velur heimspeki sem námsgrein í stað praktískra greina eins og lögfræði. Fjarnám á hafi úti Því næst kom Ásgeir Guðnason, full- trúi frá Menntafélaginu ehf., og ræddi um möguleikann á fjamámi á hafi úti. Menntafélagið ehf. hefur nú tekið við skipstjómar- og stýrimannanámi ásamt vélstjórnarnámi. Ásgeir sagði möguleikann vissulega fyrir hendi en aðstaðan um borð í skipunum væri misjöfn. Sagði hann miður að íjar- námsleiðum í skólunum hafi ekki verið sinnt sem skyldi undanfarin ár. Taldi hann skýringuna vera þær breytingar sem hafa staðið fyrir dymm á náminu undanfarið. Nú em þær orðnar að veruleika og framþróun á fjamámi yrði ekki stöðvuð. Athyglisverð NÁMSKEH) Á meðan á þessu stóð var vélasalur Listaskólans opinn og kynning á nám- skeiðsframboðum og möguleikum til fræðslu- og símenntunar í Eyjum. Eins vom starfsmenntasjóðir kynntir. Á laugardeginum kynnti Bergþóra Þórhallsdóttir starfsemi Visku í Rann- sóknasetri Háskóla Islands ásamt því sem aðstaðan sem notuð er við fjamám í Eyjum var sýnd almenningi. Með þeirri kynningu lauk viku símenntunar í Eyjum en námskeiðin sem Viska býður upp á sem og önnur námskeið verða í fullu fjöri fram að áramótum en þá verður ný námskrá gefin út. Mörg athyglisverð námskeið verða í boði á haustönn og meðal annars mun Elliði Vignisson stjórna námskeiði þar sem farið verður yfir eðli og tilgang á bak við gróusögur, uppnefni og baknag. Sérstakt sjálfstyrkingamámskeið fyrir konur verður haldið og Edda Björgvinsdóttir leikkona verður með námskeið um hvemig á að koma fram af sjálfsöryggi. Iðntæknistofnun verð- ur með námskeið um stofnun og rekstur smáfyrirtækja. í vikunni byrjaði fyrsta námskeiðið en það var íslenska fyrir útlendinga. Margt verður í boði í tölvunámskeiðum í haust og meðal annars námskeið í stafrænni ljósmyndun. ÖII námskeiðin eiga það sameiginlegt að fara aðeins fram ef lágmarksþáttökuljöldi næst. svenni @ eyjafrettir. is ARNAR Sigurmundsson. ræðslu- og símenntunarmiðstöd Vestmannaeyja ARNDÍS María Kjartansdóttir GUÐRÚN Erlingsdóttir kynnti starfsmenntasjóðinn

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.