Fréttir - Eyjafréttir - 18.09.2003, Side 13
Fréttir / Fimmtudagur 18. september 2003
13
Freista að ná
fundi ráðherra
Bæjarráð samþykkti að freista þess að
ná fundi með samgönguráðherra í
tengslum við ferð bæjarráðsmanna á
fund fjárlaganefndar til að ræða um
eftirfarandi málefni: Að Herjólfur
verði skilgreindur sem þjóðvegur
milli Iands og Eyja. Fjölgun ferða
skipsins, ræða niðurgreiðslur vegna
flugs milli lands og Eyja og loks að
tryggja fjármögnun svo ljúka megi
rannsóknum á mögulegum jarð-
göngum milli lands og Eyja.
Reyndar virðist sem bæjarstjómin
sé lengi búinn að bíða eftir fundi með
samgönguráðherra en á fundi bæjar-
ráðs þann 26. maí sl. var samþykkt að
óska eftir viðræðum við samgöngu-
ráðherra og Vegagerðina um lækkun
far- og farmgjalda auk íjölgunar ferða
ms. Herjólfs eftir að bréf barst frá
Vegagerðinni þar sem staðfest var að
Herjólfur sé skilgreindur sem
þjóðvegur. Ekkert formlegt bréf var
þó sent á þeim tíma en nú hefur
Bergur Elías Agústsson bæjarstjóri
sent ráðherra bréf þar sem óskað er
eftir fundi um málið.
Athvarf og Leik-
fangasafn flytja
Sótt hefur verið um leyfi til að setja
upp milliveggi og björgunarop í
Þórsheimili þar sem flytja á athvarf og
leikfangasafn bæjarins þangað.
Skipulags- og bygginganefnd heimil-
aði bænum að fara í breytingamar.
Eygló Harðardóttir skrifar um leikskóla:
Nýir vendir sópa best
Núverandi
meirihluti
V-listans og
Framsókn-
armanna í
Vestmanna-
eyjum hefur
lýst yfir að
hann ætli að
setja
skólamál
efst á for-
gangslistann hjá sér.
Ljóst er að eftir margra ára einræði
Sjálfstæðismanna er mikið verk fyrir
höndum. Einsetningu gmnnskóla hér
í Vestmannaeyjum er enn ekki lokið,
heilbrigðiseftirlitið hótar lokun á
„matsal" Bamaskólans, tölvukerfi
gmnnskólanna eru í algerum lama-
sessi og starfsmenn Sóla eru orðnir
langeygir eftir nýjunt leikskóla.
Hlutverk Vestmannaeyjabæjar er að
þjónusta bæjarbúa. Bæjarfélagið á að
tryggja að bömin okkar geti fengið
bestu mögulega menntun við bestu
mögulegu aðstæður. Við erum svo
heppin að skólamir okkar hafa á að
skipa stórum hópi úrvalsstarfsfólks,
sem er tilbúið að leggja mikla vinnu á
sig við að ala upp og mennta bömin
okkar.
Starfsumhverfi þeirra hefur hins
vegar verið langt frá því að geta talist
Hróp og framíköll
Sjálfstæðismanna ná
ekki að dylja þeim sem
það vilja sjá að
bæjarfélagið okkar
stendur mjög illa
fjárhagslega eftir
þrettán ára valdatíð
þeirra. Nýr leikskóli
kostar líklega um tvö
hundruð milljónir. Mín
skoðun er sú að
einkaframkvæmd bjóði
hugsanlega upp á þann
möguleika að bæta
þjónustu við okkur sem
búum í þessu
bæjarfélagi.
viðunandi. Vandamálið við skóla er
nefnilega að það kostar mikið að
byggja þá og viðhald er ekki kosn-
ingavænt og því oft látið sitja á
hakanum. Plástur hér, lokun á kjallara
þar!
Þessu er svo sannarlega kominn
tími til að breyta. Eitt af fyrstu verk-
um nýja meirihlutans var að hefja
undirbúningsvinnu að byggingu nýs
leikskóla. I framhaldi af þeirri undir-
búningsvinnu og samþykktum skóla-
málaráðs hefur bæjarráð samþykkt
eftirfarandi tillögu:
„I framhaldi af samþykkt bæjar-
stjómar frá 20. maí sl. samþykkir
bæjarráð að fela bæjarstjóra að heíjast
handa við undirbúning og fram-
kvæmdir byggingu nýs leikskóla...."
Skoðaðir verða þrír möguleikar:
1. Að Vestmannaeyjabær sjálfur ráðist
í byggingu og rekstur á leikskóla.
2. Að fenginn verði einkaaðili til að
byggja leikskólann og Vestmanna-
eyjabær sjái um rekstur hans.
3. Að fenginn verði einkaaðili til að
byggja og reka leikskólann.
Annar og þriðji möguleikinn eru
tvær mismunandi útfærslur á hug-
takinu einkaframkvæmd. Það er
þegar hið opinbera, ríkið eða sveitar-
félag, gerir samning við einkaaðila um
að veita tiltekna þjónustu. Hið
opinbera skilgreinir hvaða þjónustu
það vill kaupa út frá sínum þöriúm, en
lætur einkaaðilann um að þróa
lausnina.
Leikskólinn Álfaborg, Hafnarfirði
Samið var um byggingu og rekstrar-
umsjón við einkaaðila (viðhald og
umsjón húss, búnaðar og lóðar, endur-
nýjun búnaðar, þrif og hreingemingar,
hiti, rafmagn, sorphirða, öryggisgæsla
og snjómokstur).
Þekktasta dæmið unt einkafram-
kvæmd hér á landi em Hval-
fjarðargöngin, þar sem ríkið gerði
langtímasamning við Spöl um
(járinögnun, byggingu og rekstur
ganganna. Sveitarfélög sem ráðist
hafa í einkaframkvæmd á skólum em
m.a. Grindavíkurhreppur, Hafnar-
fjörður og nú síðast Hveragerði. Þar
vom fengnir einkaaðilar til að sjá um
skipulagningu, hönnun, fjármögnun,
framkvæmdir og viðhald á húsnæðinu
á samningstímanum (sjá myndir).
Leikskólinn Krókur, Grindavík
Leikskólinn Krókur hefur fengið lof
fagaðila fyrir góða hönnun og
starfsaðstöðu.
Hróp og framíköll sjálfstæðismanna
ná ekki að dylja þeim sem það vilja sjá
að bæjarfélagið okkar stendur mjög
illa fjárhagslega eftir þrettán ára
valdatíð þeirra. Nýr leikskóli kostar
líklega um tvö hundmð milljónir. Mín
skoðun er sú að einkaframkvæmd
bjóði hugsanlega upp á þann mögu-
leika að bæta þjónustu við okkur senr
búum í þessu bæjarfélagi, án þess að
setja okkur endanlega á hausinn!
Eygló Harðardóttir, skólamálaráði
Leikskólinn Álfaborg, Hafnarfirði. Samið var um byggingu og rekstrar-
umsjón við einkaaðila.
Leikskólinn Krókur, Grindavík hefur fengið lof fagaðila fyrir góða hönnun
og starfsaðstöðu.
Ætlum okkur sigur í síðasta leiknum
-segir Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV
Eyjamenn tryggðu sæti sitt í deildinni
með sigrinum á KR og það sem meira
er, nú á IBV möguleika á sæti í Inter-
Toto keppninni. Með sigri gegn IA á
heimavelli í síðustu umferðinni og
hagstæðum úrslitum úr leik Fylkis og
Vals verður það að vemleika.
Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV
segir að í sjálfu sér hafi sigurinn gegn
KR ekki komið sér vemlega á óvart.
„Við höfum verið að spila vel að
undanförnu og sigurinn gegn KR var
mjög sannfærandi. Þetta var reyndar
einn af okkar betri leikjum í sumar en
í öðmm leikjum höfum við kannski
náð einum svona hálfleik. I síðustu
tveimur leikjum höfum við spilað
sóknarbolta og fyrir vikið skapað
okkur fullt af fæmm. Kristján Finn-
bogason, markvörður þeirra KR-inga
var t.d. valinn besti maður KR-inga í
leiknum sem segir sitt. Við vomm
líka mjög ákveðnir fyrir leikinn,
staðráðnir í að koma okkur frá botn-
inum og það gerðum við.“
Það hlýtur að létta af þér töluverðri
pressu að Iiðið sé ekki lengur í basli?
„Mér finnst við reyndar aldrei hafa
verið í basli. Við höfum alltaf unnið
leiki inn á milli og haldið okkur í
hæfilegri fjarlægð frá botnbaráttunni.
Núna vomm við komnir í óþægilega
stöðu en eins og áður þá vinnum við
leiki þegar við þurfum þess og forð-
umst þar með fall.“
Og nú eigið þið möguleika á sæti í
Inter-Toto keppninni.
,Já það er rétt. Deildin hefur verið
þannig í sumar að liðin hafa verið að
hoppa frá þriðja sæti og niður á
botninn. Stefnan hjá okkur í sumar
var að sigla lygnan sjó í deildinni en
það hefur hreinlega ekkert lið siglt
lygnan sjó, annað hvort er það
toppbarátta eða fallbarátta. Það er
fyrst núna sem við getum andað
léttar.“
Hvað með síðasta leikinn, verður
ekkert erfitt að ná upp réttu stemmn-
ingunni fyrir þennan leik?
„Eins og ég hef sagt áður þá fömm
við í alla leiki til þess að vinna þá og
næsti leikur er engin undantekning.
Við eigum möguleika á Evrópusæti
eins og Skagamenn þannig að ég á
von á hörkuleik. Ég vona bara að
áhorfendur láti sig ekki vanta og það
væri óneitanlega gaman að sjá fulla
stúku á Hásteinsvellinum."
Tveir leikmenn ÍBV, Atli Jóhanns-
son og Ingi Sigurðsson verða í banni á
laugardaginn. IA-mennimir Gunn-
laugur Jónsson og Andri Karvelsson
verða líka í banni.
.Landsbankadeild karla
1. KR
2. ÍA
3. FH
4. Fylkir
5. ÍBV
6. Þróttur
7. Grindavík
8. KA
9. Valur
10. Fram
L
17
17
17
17
17
17
17
17
17
17
Markaí.
28:20
26:20
29:24
23:23
24:24
27:28
23:30
28:26
22:27
21:30
s
33
29
27
26
23
22
22
21
20
20
Umfangs-
mikil æfing
flugslysa-
æfíng
Æfing vegna hugsanlegs flugslyss
verður haldin hér í Eyjum dagana
30. október til 2. nóvember. Verður
hún í framhaldi af flugslysaáætlun
sem gerð var í sumar. Þá var
ákveðið að halda æfingu með
öllum hlutaðeigandi, lögreglu,
slökkviliði, Björgunarfélagi, sjúkra-
húsi, Rauða krossinum, flugmála-
stjórn og sjálfboðaliðum.
Árni Birgisson, öryggisfulltrúi
flugmálastjómar, segir að þetta
verði umfangsmikil æfing þar sem
flestir viðbragðsaðilar, sem hafi
hlutverki að gegna, komi að.
Markmiðið er að líkja eftir flugslysi
og undirbúningur er þegar hafinn.
Hópur úr Reykjavík setur upp
æfinguna og farið verður yfir helstu
þætti hennar með viðbragðsaðilum
fimmtudaginn 30. október og
föstudaginn 31. október.
Sjálf æfingin verður laugar-
daginn 1. nóvember og úrvinnsla
fer fram sunnudaginn 2. nóvember.
Árni taldi líklegt að allt að 200
manns kæmu að æfingunni og
sagði marga sem koma að æfing-
unni hafa öðrum verkskyldum að
gegna og vonast til að vinnu-
veitendur sýni málefninu skilning.
Jóhannes Olafsson, yfirlögreglu-
þjónn, segir undirbúning í fram-
haldi af áætlun þegar vera hafinn.
„Við erunt að stilla saman strengi
en þessi æfing verður með svipuðu
sniði og æfingin 1998. Viðnýtum
þá reynslu sem við fengum þá og
undirbúningur stendur yfir,“ sagði
Jóhannes.
Húsið:
Stofnfélagar,
Hollvinir Hússins
ogfólk 16 til 25
ára
Þann 1. september sl. var haldinn
stofnfundur Hússins, áhugafélags
um rekstur og starfsemi Hússins.
Þó nokkrir stofnfélagar hafa skráð
sig sem eru jafnframt hollvinir
Hússins. Hollvinafélagið saman-
stendur af foreldrum, áhugasömum
einstaklingum, félögum og fyrir-
tækjum í bænum og er ætlað að
veita starfseminni aðhald og einnig
leggja sitt af mörkunt við að koma
framkvæmdinni af stað, hver með
sínum hætti.
Nú er komið að því að sýna
viljann í verki og ætlum við að
hittast næsta laugardag, 20. sept-
ember, milli 12.00 og 18.00
Æskilegt er að mæta í vinnu-
gallanum því við ætlum að mála,
smíða, þrífa og ýmislegt fleira sem
þarf að gera.
Einnig verður vinnuplan næstu
vikna kynnt. Fjármögnun fram-
kvæmda gengur hægt og því
mikilvægt að sem flestir mæti og
spari okkur þannig mikinn kostnað.
Margar hendur vinna létt verk!
Sjáumst á laugardaginn og
munið að allir geta verið aðilar að
Hollvinafélaginu. Skráning á
email: xtreme@xtreme.is eða setja
nafn sitt og kennitölu í pósthólf 128
í Vestmannaeyjum.
Stjóm Hússins