Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 18.09.2003, Qupperneq 17

Fréttir - Eyjafréttir - 18.09.2003, Qupperneq 17
Fréttir / Fimmtudagur 18. september 2003 17 Farið um horfnar slóðir Hér á eftir verður reynt að fara yftr þá húsaþyrpingu sem sést á myndinni, rifja upp nöfn húsanna og þeirra sem þar bjuggu lengst af. Þá em einnig látin fylgja með nöfn fullorðinna íbúa þeirra, samkvæmt íbúaskrá Vest- mannaeyja 1. desember 1972, eða rétt áður en gaus. Rétt er að minna á að myndin er ekki alveg „kórrétt“ því eins og Guðgeir sagði, þá hefur hann „fantaserað“ myndina og kafað dýpra í hana, hliðrað til sumum húsunum, einfaldlega til að koma þeim inn í myndina. Lengst til hægri er hús Gísla Gísla- sonar stórkaupmanns, oft nefnt Nýja kompaníið, á homi Heimagötu og Landagötu. Þar var Prentsmiðjan Ey- rún m.a. til húsa. Þegar gaus bjuggu þar Gísh og kona hans, Guðrún Svein- bjömsdóttir. Hvítt hús með rauðu þaki, og ber í gaflinn á Kompaníinu, er Litla Fagur- lyst, hús Jóhanns Stígs Þorsteinssonar ljósmyndara og Kristínar F. Guð- mundsdóttur en þau em foreldrar Fríðu Dóm og Sigprgeirs, Sigga sem lengi var kokkur í ísfélaginu. Friðrik J. Garðarsson og Sesselja Andrésdóttir áttu húsið til 1972 en þegar gaus bjó þar Sigrún Sigurjóns- dóttir sem hafði nýfest kaup á því. Vinstra megin við Litlu Fagurlyst sést í gult hús með rauðu þaki. Það er Ingólfshvoll sem stóð austan megin við Prentsmiðjuna. Þar bjó um tíma Karl Kristmanns, ásamt fjölskyldu sinni en síðar Einar Sigurðsson, vél- stjóri á Gullborgu, eitt bama hans er Konráð tölvugrúskari og starfsmaður í FTVE. Þegar gaus bjó Einar þar, ásamt konu sinni, Rannveigu Konráðsdóttur og tveimur sonum. Vinstra megin við þakbrúnina á Litlu Fagurlyst sést í þakið á Brautarholti þar sem bjuggu Olafur Jónsson og Sigrún kona hans, sem er nýlátin, foreldrar Skúla myndlistarmanns. Þegar gaus bjuggu þar Gunnar Ama- son og kona hans, Kristín Valtýsdóttir ásamt bömum. Einnig bjó þar Helga Tómasdóttir ásamt tveimur bömum sínum. í þakið á Brautarholti ber hvítt kassalaga hús, sem stóð við Heima- götu, Karlsberg, hús Péturs Sigurðs- sonar, skipstjóra. Þegar gaus bjó Pétur þar, ásamt konu sinni, Guðríði Olafs- dóttur og bömum þeirra. Hvítt hús með grænu þaki, sem ber yftr hús Péturs, er Tindastóll. áður embættisbústaður bæjarfógeta. Tinda- stóll stendur enn, reisulegt hús en hefur nú skipt um eigendur. Til vinstri við Tindastól er Stóra Heiði sem Guðjón Jónsson útgerðar- maður byggði. Ekkja Guðjóns gaf síðan skipstjóra og stýrimannafélaginu Verðandi neðri hæð hússins í minn- ingu Guðjóns. Húsið var rifið eftir gos, enda illa farið. Hvítt, sambyggt hús með rauðu þaki og tveimur kvistum em Heimagata 22, hús Jóns Hjaltasonar og Heimagata 24, hús Jóns Runólfssonar frá Bræðra- tungu. A neðri hæð í húsi Jóns Runólfssonar var lengi verslunin Fell sem Þorgeir Frímannsson rak. Þetta hús stendur enn og hafa AA samtökin aðstöðu þar. Jón og eiginkona hans, Steinunn B Sigurðardóttir bjuggu að Heimagötu 22 þegar gaus, ásamt bömum sínum og einum elsta borgara Vestmanna- eyja, Sigríði Jónsdóttur, 94 ára. Að Heimagötu 24 bjuggu Jón Runólfsson og kona hans, Ágústa Bjömsdóttir. Þar fyrir ofan er Nýjaland, hús Jóns Bjömssonar frá Gerði en hann vann lengi á grafskipinu Vestmannaey. Nýjaland stendur enn. Þegar gaus bjó Jón þar, ásamt konu sinni, Oddnýju Larsdóttur. Beint fyrir ofan Nýjaland er Ásbyrgi sem Guðni Johnsen byggði. Jóhanna, ekkja Guðna, giftist aftur norskum manni, Störker Hermansen og var sonur þeirra Guðni listmálari. Ásbyrgi stendur enn, skemmdist illa af bmna í gosinu en var endurbyggt. Og ofan við Ásbyrgi er efsta húsið á myndinni, Svalbarði, sem stendur enn. Þar bjuggu m.a. Anna Tómasdóttir og Bjami Jónsson sem auk búskapar og útgerðar var framkvæmdastjóri Lifrar- samlagsins. Hjá þeim ólst upp sonarsonur þeirra, Sverrir Haraldsson listmálari. Þar bjuggu, þegar gaus, Ásberg Lár- entínusson, stýrimaður og kona hans, Guðbjörg S. Einarsdóttir og böm þeirra. Við hliðina á Nýjalandi er Herðu- breið, Heimagötu 28, hús Áma Johnsen eldri og Olgu Karlsdóttur, seinni konu hans. Húsið stendur enn. Þegar gaus bjó Olga þar ásamt yngri syni sínum, Jóhannesi Johnsen. Þá sést í þakið á Heimagötu 30 sem enn stendur. Þegar gaus bjuggu þar á efri hæðinni Helgi Guðlaugsson og Hulda Jóhannsdóttir en á neðri hæðinni Unnar Guðmundsson og Bryndís Rögnvaldsdóttir. Færum okkur neðar á myndina, sjáum hvítt hús með rauðu þaki og ber í Nýjaland. Það er Hraun, þar sem lengst af bjuggu Kjartan Olafsson, útgerðarmaður og Inga kona hans. Þegar gaus bjuggu þar Magnús Jóhannsson, skáld frá Hafnarnesi og Guðlaug Þorbergsdóttir kona hans. Til vinstri við Hraun er útihús þar sem m.a. Einar Gíslason var um tíma með gúmbátaþjónustu en Kjartan á Hrauni var fyrstur útgerðarmanna í Eyjum til að setja gúmbáta í skip sín. Fyrir neðan Hraun sést í langa bygg- ingu með rauðu þaki. Það er lager- geymsla Gísla Gíslasonar og hýsti m.a. timbursölu um langa hríð. Vinstra megin og ofan við Hraun er hús sem lengi hýsti skattstofuna, Heimagötu 25, hvítt hús með sér- kennilegu þaki, bogadregnu. Þegar gaus bjuggu í húsinu elsti borgari Vestmannaeyja, Sveinn Jóns- son, 95 ára og kona hans Kristín Þorleifsdóttir, frá Landamótum og Ásdís Sveinsdóttir, dóttir þeirra. Friðrik Olafur Guðjónsson og kona hans Sigrún Sigurðardóttir, Sigurbjöm H. Pálsson og kona hans, Elsa Skarphéðinsdóttir. Ef við færum okkur aftur í forgrunn myndarinnar, þá er vinstra megin við Litlu Fagurlyst hvítt hús með grænu þaki og hvítum vegg úti við götu, Ekra, hús Þórodds Olafssonar, föður Sigríðar, eiginkonu Ragnars rakara. Þegar gaus bjó Þóroddur þar ásamt konu sinni, Bjargeyju Steingríms- dóttur. Vinstra megin við Ekru er annað hvítt hús, Bergsstaðir. Þar bjuggu m.a. GuðmundurTómasson, skipstjóri og kona hans Elín Sigurðardóttir og síðar Olafur sonur þeirra og var ævinlega kenndur við húsið. Þegar gaus bjuggu þar Elín og dótt- ursonur hennar, Guðmundur Amar Alfreðsson. Við hliöinu á Skattstofunni er Bræðra- tunga, þar sem bjó lengst Runólfur Runólfsson, kenndur við hús sitt. Þegar gaus bjó Runólfur þar en einnig Friðrik Jóhannsson og eigin- kona hans Eygló Bjömsdóttir, ættuð frá Gjábakka. Við hlið Bræðratungu er Ásgarður þar sem lengi bjó Ámi Ámason símritari. Þegar gaus bjuggu þar þær Katrín Ámadóttir, kona Áma og Guðrún Ámadóttir, kona Þorsteins í Jómsborg og auk þeirra Skúli Bjamason. Vinstra megin við Bræðratungu sést í þök þriggja húsa við Grænuhlíð, hið fyrsta með rauðu þaki, Grænahlíð 3 Hér hefur verið stiklað á stóru í sögu þeirra húsa sem sjást á mynd Guðgeirs og stuðst við heimildir frá listamanninum sjálfum, svo og fleirum sem vel þekktu til á þessu svæði, þar á meðal Friðrik Asmundssyni, fyrrv. skólastjóra. Af rituðum heimildum má nefna íbúaskrá Vestmannaeyja frá 1972 og bók Guðjóns A. Eyjólfssonar, Vestmannaeyjar, byggð og eldgos. Það er von Frétta að lesendur hafi haft af því nokkurn fróðleik og ánægju að glugga í þessar skýringar. hús Tryggva SigurÖssonar og Sirrýjar í Gíslholti, síðan hús með grænu þaki, Grænahlíð 5, hús Gísla Grímssonar og Bjameyjar Erlendsdóttur, og síðan annað hús með grænu þaki, Grænahlíð 7, hús Friðriks Hjörleifssonar, Gústa í Skálholti, og Önnu Oddgeirs. Þetta fólk bjó þarna, ásamt börnum sínum, þegar gaus. Fyrir ofan Grænuhlíðarhúsin sjást þrjú hús sem ber hæst allra á mynd- inni, öll við Helgafellsbraut. Fyrst Helgafellsbraut 7, þar fyrir ofan Helgafellsbraut 15, hús sem Guð- mundur Vigfússon frá Holti byggði. Ekki sést í húsið þar fyrir ofan, Helgafellsbraut 17, hús Jóns Vigfús- sonar frá Holti, en efst tróna Bolsastaðir, svo nefndir eftir að Is- leifur Högnason, kaupfélagsstjóri og verkalýðsleiðtogi bjó þar. Síðar bjó þar Hinrik Jónsson bæjarstjóri og kona kans Unnur Magnúsdóttir frá Sól- vangi. Þegar gaus bjuggu að Helgafells- braut 7 Hannes Sigurðsson og Guðrún Jónsdóttir frá Brimhólum, Jón Hannesson, sonur þeirra og Halldóra Brynjólfsdóttir kona hans. Að Helgafcllsbraut 15 bjuggu Guðjón Tómasson og Gíslína Jónsdóttir, ásamt syni Gíslínu, Magnúsi Magn- ússyni (á Skansinum) konu hans Bimu Rut Guðjónsdóttur, dóttur Guðjóns Tómassonar, og bömum þeirra. Jón Vigfússon bjó, ásamt konu sinni, Guðbjörgu Sigurðardóttur að Helgafellsbraut 17. A Bolsastöðum bjó Jóhann Pálsson, skipstjóri og útgerðarmaður, ásamt eiginkonu sinni, Ósk Guðjónsdóttur og syni þeirra Heijólft. Hinum megin við Helgafellsbrautina sést í þrjú hús. Neðst Helgafellsbraut 18. Þar bjó Þorsteinn Jónsson og kona hans Kristín Valdimarsdóttir, ásamt bömum þeirra. Þar bjó einnig Dag- mar Erlendsdóttir frá Gilsbakka. Nr. 20 var hús Tryggva Ólafssonar málara og konu hans, Þórhildar Stefánsdóttur. Þar bjó einnig Jón R. Þorsteinsson fulltrúi bæjarfógeta. Efsta húsið sem sést þama megin götu, á homi Helgafellsbrautar og Birkihlíðar, var hús Sigurðar Gissurar- sonar og konu hans, Önnu Magnús- dóttur. Þar bjó einnig Dagmey Einars- dóttir. Færum okkur þá aftur niður á við í forgmnn myndarinnar. Hvítt og sér- kennilegt kassalaga hús fyrir miðri mynd er Húsavík. Þar var tvíbýli. I eystri hlutanum (þeim kassalaga) bjó Jón Auðunsson, faðir Sigurðar fyirum vallarstjóra sem enn er kenndur við æskuheimili sitt. I vesturhlutanum bjó lengi Kjartan Ólafssson fískmats- maður, faðir Jóns fyrrum verkalýðs- leiðtoga. Litlu húsin sem grillir í á lóðinni framan við húsið era hænsnabyrgin í Húsavík. Þegar gaus bjó Jón Auðunsson í eyslri hlutanum og Sigríður Jónsdóttir kona hans. I hinum hlutanum bjó Ársæll Ámason, smiður og eiginkona hans Ingunn Sigurbjömsdóttir og tvær dætur þeirra. Húsið bakvið Húsavík er Sólnes, hús Sigurjóns Ólafssonar, Sigga í Bæ. Þegar gaus bjó Siggi þar, ásamt konu sinni, Þóranni Gústafsdóttur og tveim- ur börnum þeirra uppkomnum, Óla og Sigrúnu. Fyrir ofan Húsavík má sjá í þökin á húsum við Landagötu. Fyrst hús Guð- mundar Þorsteinssonar, þá hús Ágústs Sigfússonar og þá hús Sigurðar Kristinssonar frá Löndum sem lengi var á grafskipinu Vestmannaey. Þegar gaus bjó Guðmundur í sínu húsi, ásamt konu sinni, Sigurbjörgu Jýnsdóttur og syni þeirra, Þráni. Agúst bjó í sínu húsi en auk hans Magnús Byron Jónsson og Unnur Haraldsdóttir, Hannessonar frá Fagur- lyst, ásamt börnum. Sigurður Kristinsson frá Löndum bjó í sínu húsi, ásamt eiginkonu sinni, Guðbjörgu Bergmundsdóttur og syni þeirraBergmundi. Stóra gula húsið með græna þakinu sem hvað mest er áberandi á myndinni er Lönd, stundum kallað Stóru-Lönd eða Vestri-Lönd, til aðgreiningar frá tveimur öðrum húsum með sama nafni við Landagötu. Friðrik Svip- mundsson, skipstjóri og útgerðar- maður, byggði húsið árið 1909. Þegar gaus bjuggu þar Einar Indriðason og Fjóla Guðmannsdóttir, ásamt bömum sínum en auk þeirra era skráð þar til heimilis Rúnar Eiríkur Siggeirsson og kona hans, Valgerður Sigurðardóttir og Guðmundur S. Ágústsson, oftast nefndur Bubbur, ásamt þremur sonum sínum. Austan við Lönd er á myndinni hjallur sem tilheyrði Löndum Lítið grænt hús við hliðina á Lönd- um er Hraungerði. Þar bjó þegar gaus Sigurjón Gottskálksson sem átti trillubátinn Sleipni. Hús með rauðu þaki austan við Stóra Lönd er Gíslholt þar sem bjó lengi Ólafur Vigfússon, Óli Fúsa, ásamt konu sinni Kristínu. Þau era foreldrar þeirra Gíslholtssystkina, Fúsa, Ágústs, Nýju, Sirrýjar og Guðjóns. Þegar gaus bjó Ólafur þar, ásamt Kristnýju, dóttur sinni. Austan við Gíslholt, hús með rauðu þaki, er gamla Skálholt, þar sem bjó Hjörleifur Sveinsson ásamt konu sinni, Þóra. Eitt bama þeirra er Sveinn Hjörleifsson, fyrrum skipstjóri og útgerðarmaður. Þegar gaus bjó Hjörleifur þar en auk hans bamaböm hans tvö, Benedikt Sigmundsson og Þórey Sveinsdóttir, ásamt eiginmanni sínum Einari Svein- bjömssyni. Lítið hvítt hús, sem ber í Gíslholt, hét Eystri-Lönd. Þar bjuggu þær systur Júlía Rósa og Sigrún Kristinsdætur og vora búsettar þar þegar gaus. Austan við það hús er Ákur. Þar bjó þegar gaus Láras Guðmundsson raf- virki og kona hans Gréta Illugadóttir. Neðan við Akur sést í rautt þak á húsi. Það era Litlu-Lönd. Þegar gaus bjuggu þar Eyjólfur Konráðsson og kona hans Anna Sigmarsdóttir, ásamt bömum sínum. Og þá aftur niður á sjálfan Urða- veginn. Hvítt, sérkennilegt hús með grænu þaki og hvítri girðingu umhverfis er Hjálmholt. Þar var tví- býli. í eystri hlutanum bjó Ingibergur Hannesson ásamt fjölskyldu sinni, ævinlega nefndur Bergur í Hjálmholti og þótti rauðari en allt sem rautt var í pólitík. Sonur hans Ólafur bjó þar ásamt Eyrúnu Huldu Marinósdóttur, konu sinni og syni þeirra Viðari þegar gaus. I vestri hlutanum bjó Sigvaldi Benja- mínsson ásamt ljölskyldu sinni. Dóttir hans Ólöf bjó þar þegar gaus, ásamt Sigurlaugu Þorsteinsdóttur. Austan við Hjálmholt er stórt rauð- brúnt hús, Skjaldbreið. Þar bjuggu Sigurður Ingimundarson og Hólm- fríður kona hans, sem var einhver mesta áhugakona um íþróttir sem sögur fara af. Þegar gaus bjuggu þar Elísabet B. Guðbjörnsdóttir, Gísli Guðjónsson, Guðrún Alexandersdóttir, Hólmfríður Júlíusdóttir, Sigurvin Sigurvinsson og Helga Guðmundsdóttir. Austan við Skjaldbreið er hús Kristins Sigurðssonar frá Skjaldbreið, skip- stjóra og slökkviliðsstjóra. Kristinn bjó þar þegar gaus, ásamt konu sinni, Bjamýju Guðjónsdóttur og tveimur dætram þeirra. Lítið, gult hús, austan við hús Kristins er hús Þórðar H. Gíslasonar, netagerðarmanns og meðhjálpara. Eitt barna þeirra er Hallgrímur, neta- gerðarmaður, söngmaður og lunda- veiðimaður í Ystakletti. Þórður bjó þar þegar gaus, ásamt konu sinni, Jónínu Guðjónsdóttur. Austan við hús Tóta meðhjálpara er hús Sigurðar Sigurðssonar múrara, föður Magnúsar sem einnig stundaði múrverk í Eyjum fram að gosi. Sig- urður bjó í húsinu þegar gaus. Og austasta húsið sem sést í er Hof þar sem rn.a. bjuggu Bjarni Guð- jónsson myndskeri og svili hans, Einar Haukur Eiríksson fyrrum skattstjóri. Þegar gaus bjuggu þar Gísli Valur Einarsson og Björg Guðjónsdóttir og börn þeirra. Einnig bjó þar Pálína Gunnlaugsdóttir með tveimur bömum sínum. Stóra húsið lengst til vinstri á myndinni er Höfn við Bakkastíg, stór- hýsi Tómasar Guðjónssonar útgerðar- manns og Sigríðar konu hans. Þegar gaus bjuggu þar Björgvin Helgason og Gerður Tómasdóttir, ásamt bömum, pg bróðir Gerðar, Bragi. I forgrunni myndarinnar er Gjá- bakkatúnið en um 1960 var byrjað að byggja á því Þar áttu hús m.a. Frið- þjófur Másson, Vamek og Maríanna, Markús frá Ármóti, Hjörtur Her- mannsson, Ársæll Lárasson og fleiri. Hér liefur verið stiklað á stóru í sögu þeirra húsa sem sjást á mynd Guðgeirs og stuðst við heimildirfrá listamanninum sjálfum, svo ogfleirum sem vel þekktu til á þessu svœði, þar á meðal Friðrik Ásmundssyni, fyrrv. skólastjóra. Afrituðum heimildum má nejha íbúaskrá Vestmannaeyja frá 1972 og bók GuðjónsA. Eyjólfssonar, Vestmannaeyjar, byggð og eldgos. Það er von Frétta að lesendur hafi haft afþví nokkum fróðleik og ánœgju að glugga í þessar skýringar. Sé í þeim að finna einhverjar rangfœrslur eða villur, skrifast það alfarið á þann sem sá um samantektina og óskast vinsamlega leiðrétt. Fram skal þó tekið að ekki hefur verið viljandi hallað réttu máli lieldur leitast við að segja satt og réttfrá. Að endingu er svo rétt að hvetja fólk til aðfara og skoða mynd Guðgeirs eins og hún erá skemmunni, með því nást hin réttu hughrif sem þaif til að geta horfið á ný á fontar og horfnar slóðir. Samantekt: Sigurg.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.