Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 18.09.2003, Side 19

Fréttir - Eyjafréttir - 18.09.2003, Side 19
Fféttir / Fimmtudagur 18. september 2003 19 Landsbankadeild karla, 17. umferð: KR 0 - IBV 2 Lausir við falldrausinn Trúlega hafa KR-ingar ekki verið sáttir við tap gegn Eyjamönnum á sunnudaginn, 0-2. Þeir voru þegar orðnir Islandsmeistarar og átti að afhenda þeim bikarinn eftir leikinn. Sigur hefði því verið góður bónus. Allt hefði þetta átt að vera gestgjöfunum í hag en sem betur fer, í þetta skiptið, eru vegir knattspym- unnar óútreiknanlegir og Eyjamenn hreinlega völtuðu yfir Islands- meistarana. Lokatölur leiksins urðu reyndar aðeins 0 - 2 en miðað við færin sem liðin fengu hefði 1 - 5 verið nærri lagi. ÍBV sárvantaði stig enda í mikilli fallbaráttu fyrir leikinn. Flestir stuðningsmenn liðsins vonuðust eftir jafntefli, örfáir bjartsýnismenn sögðu að IBV myndi sigra. Þeir bjartsýnu bentu hins vegar á söguna og höfðu nokkuð fyrir sér í því þar sem Eyja- menn hafa hin síðari ár haft nokkuð góð tök á KR-ingum. Þannig hafa KR-ingar ekki sigrað IBV síðan árið 2000 og vinningshlutfallið er ÍBV hagstætt síðustu ár. Eyjamenn vom mun sterkari í leiknum, spiluðu skynsamlega en börðust jafnframt af miklum krafti. Bjamólfur Lámsson og Atli Jóhanns- son hertóku miðjuna og Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Steingrímur Jóhannesson héldu varnarmönnum KR við efnið. Annars var sigurinn sigur liðsheild- arinnar þar sem allir lögðust á eitt og uppskám upp frá því. Eins og staðan er núna eiga Eyja- menn möguleika á sæti í Inter-toto keppninni en til þess að sá möguleiki geti ræst þarf sigur í síðasta leik og lánlausir Fylkismenn þurfa að tapa sínum leik. Þá yrði fjórða sætið að veruleika, nokkuð sem enginn þorði að láta sig dreyma um fyrir leikinn gegn KR. IBV spilaði 4-4-2 Birkir Kristinsson, Hjalti Jó- hannesson, Tryggvi Bjarnason, Toni Betts, Bjarni Geir Viðarsson, Ian JelTs, Atli Jóhannsson, Bjarn- ólfur Lárusson, Ingi Sigurðsson, Gunnar Heiðar Þorvaldsson, Steingrímur Jóhannesson. Varamenn: Igor Kostic, Andri Olafsson, Bjarni Rúnar Einarsson, Pétur Runólfsson, Sindri Viðarsson (kom inn á 88. mín.). Mörk ÍBV: Ian Jeffs, Steingrímur Jóhannesson. STEINGRÍMUR hefur náð sér vel á strik eftir meiðslin í sumar og er að skora mikilvæg mörk. Handbolti kvenna: Meistaraleiknum frestað fyrirvaralítið Oþolandi ósvífni af hálfu HSI Handboltinn: Undir- búninsi fyrir átök vetrarins að Ijúka -Karlaliðið lék tvo leiki um helsina 03 tapaði báðum Undirbúningi karlaliðs IBV lauk um helgina þegar liðið lék tvo æfingaleiki gegn Valsmönnum. Fyrri leikur liðanna var jafn og spennandi allan tímann en eftir að staðan hafði verið 12-13 í hálfleik, náðu Valsmenn að kreista fram sigur á lokakaflanum og lokatölur urðu 28-26. Mörk IBV: Björgvin Þór Björg- vinsson 5, Zoltán Belanyi 5, Sig- urður Bragason 3, Frode Stellemo 3, Sigurður Ari Stefánsson 2, Kári Kristjánsson 2, Davíð Oskarsson 2, Robert Bognar 2, Josep Bösze 2. Varin skot: Jóhann Guðmundsson 13. Seinni leikurinn var ekki eins góður af hálfu ÍBV en Valsmenn voru fjórum mörkum yfir í hálfleik 14-10. Lokatölur urðu svo 27-21 en leikmönnum IBV gekk mjög illa að koma boltanum framhjá mark- verði Valsmanna. Mörk ÍBV: Kári Kristjánsson 4, Björgvin Þór Björgvinsson 3, Robert Bognar 3, Sigurður Ari Stefánsson 3, Erlingur Richardsson 2, Zoltán Belanyi 2, Frode Stellemo 2, Sigurður Bragason 1, Davíð Oskarsson 1. Varin skot: Eyjólfur Hannesson 10, Jóhann Guðmundsson 3. Um helgina átti að fara fram Meistara- keppni HSI og áttu Islandsmeistarar IB V og bikarmeistarar Hauka að leika hér í Eyjum. Leiknum var hins vegar frestað þar sem veikindi þóttu mikil í herbúðum bikarmeistaranna. Forráðamenn ÍBV voru allt annað en hressir með þessa ákvörðun HSI enda fengu þeir að vita af frestuninni tæpum þremur tímum fyrir áætlaðan leiktíma. A heimasíðu IBV er m.a. sagt frá því að Haukar hafi farið þess á leit við HSÍ að fresta leiknum. Starfsmenn mótanefndar HSI hafi svo haft sam- Þó að annar flokkur karla IBV hafi leikið síðasta leik sinn fyrir rúmri viku síðan biðu leikmenn og forráðamenn liðsins spenntir eftir úrslitum helg- arinnar. Staðan í B-riðli var nefnilega þann- ig að Víkingur var neðstur og þegar fallinn en Valsmenn sátu í fallsæti með sextán stig. IBV, Leiknir og Selfoss voru þar fyrir ofan með átján stig en öll liðin höfðu lokið sínum leikjum nema Valur og Leiknir sem Á mánudag var opinberuð spá forráðamanna og fyrirliða handknatt- leiksliða á Islandsmótinu í vetur. I karlaflokki er Haukum spáð sigri með nokkrum yfirburðum en þeir fengu 538 af 540 stigum. Eyjamönn- um var spáð ellefta sætinu af fimmtán liðum. Islandsmeisturum IBV í band við forráðamenn IBV daginn fyrir leik og ráðfært sig við þá og um kvöldið var formanni stjómar handknattleiksdeildar svo tilkynnt það að leikurinn yrði á tilsettum tíma. Á leikdag hafði svo Hlynur Sig- marsson, formaður handknattleiksráðs samband við Hauka þar sem honum var tjáð að liðið ætlaði að leggja af stað í leikinn klukkan 12.30. Skömmu eftir það símtal hringdu starfsmenn HSI í forráðamenn IBV og tilkynntu frestunina. Páll Marvin Jónsson, í handknatt- leiksráði, sagði þetta vera óþolandi léku um helgina. Leiknismenn voru svo gott sem búnir að tryggja sig enda með mun hagstæðara markahlutfall en IBV. Valsmenn sigruðu í leiknum og sendu ÍBV því niður í C-riðil þar sem IBV var með lélegasta markahlutfall liðanna þriggja. Staða karlaboltans hefur farið síversnandi hin síðari ár. Fyrir ekki svo mörgum ámm voru þriðji og annar flokkur félagsins í efstu deildum en nú er svo komið að annar IJokkur -en strákunum því ellefta kvennaflokki er spáð sigri og fengu þær 240 af 250 stigum mögulegum. Röðin varþessi: Karlallokkur: I. Haukar 538, 2. Valur 495, 3. ÍR 459, 4. KA 427, 5. HK 387,6. Fram 352, 7. FH 341, 8. Grótta/KR 313, 9. Víkingur 272, 10. Stjaman 219, 11. ÍBV 179, 12. Þór ósvífni af hálfu HSI. „Við erum búnir að leggja mikla vinnu í þennan leik, auglýsa hann upp og fá til liðs við okkur líknarfélag sem svo átti að fá ágóðann af leiknum í sinn vasa. Svo fáum við hringingu rúmum tveimum tímum fyrir leik þar sem okkur er tilkynnt að leiknum sé frestað. Þessir menn verða að fara átta sig á því að þó þetta sé kvennahandbolti þá verða vinnubrögðin að vera fagmannleg en ekki svona kjánaieg. Eg sé t.d. ekki fyrir mér að meistaraleiknum í karla- boltanum hefði verið frestað með jafn- skömmum fyrirvara og í dag.“ er kominn í þriðju deild og þriðji flokkur dólar um miðja aðra deild. Landslagið virðist einfaldlega vera að breytast, með fólksfækkun fækkar iðkendum í knattspymunni og bæjar- félög eins og Vestmannaeyjar dragast aftur úr. Með þessari þróun mun staðan í fótboltanum verða svipuð og nú er í kvennahandboltanum þar sem uppistaðan í liðinu er aðkomumenn. julius@eyjafrettir.is 176, 13. Selfoss 115, 14. Afturelding 97 og 15. Breiðablik 69. Kvcnnatlokkur: I. ÍBV 240, 2. Haukar 215, 3. Valur 214, 4. FH 160, 5. Stjaman 155, 6. Grótta/KR 128, 7. Víkingur 84, 8. Fram 75, 9. KA/Þór 62 og 10. Fylkir/ÍR 41. Knattspyrna, yngri flokkar Annar flokkur karla féll í C-riðil Handboltinn: Spáin IBV-stelpunum spáð efsta sætinu frf?;trétrtr ísland 10-Pólland 0: Margrét Lára með þrennu -í fyrsta sinn í byrjunarliðinu Margrét Lára Viðarsdóttir heldur áfram að skora með íslenska A- landsliðinu. Fyrr í sumar skoraði hún í sínum fyrsta landsleik eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Var það hennar fyrsta snerting í leiknum. Islenska liðið lék gegn Póllandi á laugardaginn og þá var Margrét í bytjunarliðinu. Þrátt fyrir að leika á miðjunni, gerði Margrét sér lítið l'yrir, skoraði þrennu og var marka- hæsti leikmaður liðsins í 10-0 stórsigri íslenska liðsins. Sigurinn er sá stærsti sem íslenskt A-landslið hefur unnið. Margrét er jafnframt yngsti leik- maðurinn sem skorað hefur þrennu í landsleik en hún hefur nú samanlagt skorað fjögur mörk í fjórum leikjum. Þá lék Olga Færseth einnig í fremstu víglínu íslenska liðsins. Það vakti nokkra athygli að einn helsti markaskorari íslenska liðsins fyrr og síðar var ekki á meðal markaskorara í leiknum en engu að síðar lék Olga geysilega vel og lagði m.a. upp Ijögur mörk íslenska liðsins. Olga var svo valin maður leiksins hjá DV. Unslinga- flokkar handboltans af stað Unt leið og meistaraflokkamir spila sína fyrstu leiki, fer starfsemi yngri flokkanna einnig af stað. Um helgina spila tveir flokkar IBV í fjölliðamóti. Fyrst ber að nefna unglingaflokk en stelpurnar leika um helgina á Seltjamanesi og er fyrsti leikur liðsins klukkan 13.10 á laugardaginn. Þá verður þriðji flokkur karla einnig á höfuðborgarsvæðinu í sömu erindagjörðum en liðið leikur í Vfkinni. Fyrsti leikur liðsins hefst klukkan 11.15. Framundan Föstudagur 19. septeniber Kl. 19.15 Fylkir/ÍR-ÍBV íslandsmót kvenna. Laugardagur 20. september Kl. 14.00 ÍBV-ÍA Landsbankadeild karla. Miðvikudagur 24. september Kl. 19.15 ÍBV-Stjarnan, íslandsmót karla. Kl. 19.15 Valur-ÍBV, íslandsmót kvenna. Um helgina: Fjölliðamót Unglingaflokks á Sel- tjamanesi. Fjölliðamót 3. flokks karla í Víkinni.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.