Fréttir - Eyjafréttir - 16.10.2003, Síða 6
6
Fréttir / Fimmtudagur 16. október 2003
Fréttatilkynn-
ing til stofn-
félaga Hússins
Nú hafa verið sendir út greiðsluseðlar
vegna stofngjalds Hússins. Vegna
seinagangs hjá Fyrirtækjaskrá Hag-
stofu íslands með afgreiðslu á
kennitölu félagsins ákvað stjórn
Hússins að nota reikning Listauka ehf.
fyrst um sinn til að koma veltu
félagsins af stað.
Þetta er eingöngu tímabundið á-
stand og okkur hefur verið lofað að
kennitala Hússins verði komin fyrir
næstu helgi. Að gefnu tilefni viljum
við taka það skýrt fram að Listauki
ehf., sem er í eigu Selmu Ragnars-
dóttur, formanns stjórnar, mun ekki
sjá um íjármál félagsins að neinu leyti
í framtíðinni og mun ekki blanda
starfsemi Hússins við þau verkefni
sem Listauki vinnur í. Þetta er tíma-
bundin lausn á vandamáli okkar
varðandi kennitöluna og aðeins til að
liðka til í upphafi starfseminnar.
Deloitte & Touche mun halda utan
um ljármál og ársreikninga félagsins
næstu tvö árin. Nýir greiðsluseðlar
verða sendir út um leið og kennitala
og bankanúmer Hússins verður komið
í notkun.
Vonandi skýrir þetta misskilning
sem virðist vera á kreiki og er eiganda
Listauka ekki til bóta þar sem
tilgangurinn var aðeins að hjálpa til
við stofnun Hússins.
Takk fyrir ykkar stuðning.
Stjóm Hússins.
(( •- J
11 1 \ ■jr ' ,i
Æá
, ! ’ B / ■1 í
|P 4 T m , ■ % V LÆ .v&Sr \
Víðir Róbertsson, formaður Nemendafélags Framhaldsskóalns:
Vill fá fleiri nemendur í félagið
VÍÐIR: Við erum að reyna að gera þetta eftirsóknarvert enda eru félagsgjöldin einu tekjurnar sem félagið hefur.
Það segir sig sjálft að með svo fámennan hóp verður erfitt að standa fyrir stórdansleikjum og fleiri uppákomum
Nemendafélag Framhaldsskólans er
nú farið á fullt undir dyggri forystu
nýs formanns, Víðis Róbertssonar.
Hann segir að hlutverk sitt sé að vera
rödd nemandans út á við, hjálpa
nemendum ef einhver vandamál koma
upp og stuðla að öflugu félagslífi í
skólanum.
Alls greiddu 126 nemendur í
nemendafélagið á þessari önn og er
það tæplega helmingur nemenda
skólans. Segir Víðir þetta í lélegri
kantinum. „Þetta var þannig að þú
fékkst gíróseðil fyrir skólagjöldum og
rukkun fyrir nemendafélagið saman
en það er ekki leyfilegt lengur. Nú
þurfum við að senda út sérstaka seðla
og þá skila sér færri í nemendafélagið
sem verður aftur til þess að starfið er
ekki eins öflugt," sagði Víðir.
Hann sagði að það væri mjög erfitt
að fá nemendur til að starfa. „Við
getum tekið Húsið sem dæmi. Það
hefur verið rosalega erfitt að fá
krakkana til að vinna þarna í Húsinu.
Þetta er sami tíu lil fimmtán manna
hópurinn sem gerir þetta allt. Við
höfum mikið reynt að ná upp
stemmningu fyrir þessu og ég labbaði
með Hrund Scheving, nýráðnum
forstöðumanni, í alla bekki í skólanum
um daginn þar sem við kynntum þetla
en það helurekki skilað sér.“
Borgar sig að vera í
Nkmendaitlaginu
Fyrsta uppákoman í skólanum sem
nemendafélagið stóð fyrir á þessari
önn var grillveisla þar sem félögum í
nemendafélaginu og kennurum var
boðið upp á pylsur. „Þetta var bara
lítið sýnishom af því sem þeir missa af
sem borga ekki í félagið. Ég held að
þegar allt er talið saman, allar uppá-
komumar sem félagar fá frítt eða
góðan afslátt af, þá borgi nemandi,
sem ekki er í félaginu, meira.“
Nefndi hann sem dæmi að félagar
fá afslátt í Hressó og eitthvað er verið
að athuga með afslætti á fleiri stöðum.
„Við emm að reyna að gera þetta eftir-
sóknarvert enda era félagsgjöldin einu
tekjumar sem félagið hefur. Það segir
sig sjálft að með svo fámennan hóp
verður erfitt að standa fyrir stórdans-
leikjum og fleiri uppákomum," sagði
Víðir og bætti við að auk þess hafi þeir
tekið við ógreiddum reikningum frá
fyrra nemendafélagi sem sé alls ekki
óalgengt en selur strik í reikninginn á
þessari önn.
Þegar Víðir er spurður út í busa-
vígsluna, sem var að venju fremur
blaut og köld fyrir nýnemana, segir
hann þetta vera gamlar hefðir sem
erfitt sé að breyta. „Ég vil þó taka það
fram að það sem gerðist niðri í bæ var
ekki á nokkurn hátt tengt skólanum.
Það var reynt að bregðast við því með
fundi sem var haldinn í skólanum með
skólastjóra og lagaðist ástandið. Það
vora uppi hugmyndir um að breyta
busavígslunni og hafa hana rólegri en
þær hugmyndir fengu ekki hljóm-
grunn hjá eldri nemendum sem hafa
gengið í gegnum busavígsluna."
Síðustu viku hefur einn nemandi
skólans ásamt ráðinu staðið fyrir bíó-
dögum en þar hefur fjöldinn allur af
svokölluðum B myndum verið
sýndur. Víðir sagði að það væri alltaf
ánægjulegt þegar nemendur fá slíkar
hugmyndir og framkvæma þær.
„Það er rosalega gaman þegar nem-
endumir taka þetta upp hjá sjálfum
sér. Einn nemandinn kom með þessa
hugmynd til mín, stjómin reddaði
skjávarpa og tjaldi og við erum á
staðnum en að öðra leyti er þetta
algjörlega í höndum nemandans. Það
væri óskandi að það væra fleiri
svona.“
FÍV-CUP VINSÆLT
FIV Cup knattspymumótið er með
vinsælli atburðum hverrar annar og
var engin breyting á því í ár. „Það
gekk mjög vel fyrir sig. Það spáði
reyndar brjáluðu veðri þegar keppnin
átti að vera en við fengum lognið á
undan storminum og vorum mjög
glöð yfir því. Það var svo ball um
kvöldið með Made In China.“
Víðir segir að síðustu vikur hafi
verið rólegar en þó sé vinna
nemendaráðsmanna á fullu og verið
að skoða fullt af möguleikum. „Við
eram að athuga með útgáfu á veglegu
skólablaði, balli með þema hrekkja-
vöku eða 80's uppákomu. Nú er stefnt
á lokaball annarinnar en hingað til
hefur árshátíð á vorin verið látin duga.
FÍV-Cup verður aftur eftir áramót
enda gríðarlega vinsælt og svo stefn-
um við á Idol keppni innan skólans
sem hefur fengið gríðarlega góðar
viðtökur og ég er bjartsýnn á að þetta
verði að veraleika."
Víðir sagði einnig að um næstu
helgi verði Framhaldsskólinn með lið
í knattspymumóti félaga framhalds-
skólanna. „Þetta er mót sem við
unnum fyrir tveimur áram og að
sjálfsögðu stefnum við á sigur í ár.“
Aðspurður hvort búið væri að velja
liðið sagði hann svo vera en aðeins
þeir sem hafa borgað félagsgjaldið í
nemendafélagið era gjaldgengir. „Það
eiga öragglega eftir að verða einhver
læti út af því.“
Að lokum var Víðir spurður út í
Húsið. „Mér líst nokkuð vel á þetta en
þetta gengur hægt og sorglega mikið
áhugaleysi hjá krökkunum."
Hvað veldur? „Það era margir að
vinna með skólanum og svo era marg-
ir á kafi í íþróttum. Reyndar hefur
þetta verið að breytast og krakkar era
að detta fyrr út úr íþróttum en þá fer
tíminn í annað, tölvuna heima fyrir og
slíkt þannig að krakkarnir gefa sér
ekki tíma í félagsmálin. Ég held samt
að það sé áhugi fyrir Húsinu. Krakkar
hafa lengi talað um að það vanti
eitthvað fyrir þá í bænum og nú er
verið að gera eitthvað og það sýnir að
það er einhver að hlusta á okkur.“
svenni @ eyjafrettir. is
Saltsólgnir
hestar
skemmdu bíl
Á mánudaginn var tilkynnt um
skemmdir á bifreið sem stóð á
Básaskersbryggju en hún hafði staðið
þar í nokkurn tíma. Var m.a. búið að
stela úr henni sæti, mælum og hjól-
koppum. Ekki er vitað hver eða
hverjir þama vora að verki.
Sama dag var tilkynnt um
skemmdir á bifreið sem lagt hafði
verið fyrir utan gistiheimilið Maríu að
Brekastíg 37. Hafði bifreiðin verið
rispuð á hægri hlið. Ekki er vitað hver
þarna var að verki og óskar lögregla
eftir upplýsingum varðandi hugsan-
lega gerendur.
Á föstudaginn var tilkynnt um tjón
á ökutæki sem var lagt á Breiðabakka.
Þarna höfðu hestar sem vora utan
girðingar sleikt salt af bifreiðinni með
þeim afleiðingum að lakk bifreið-
arinnar skemmdist. Við athugun á því
hvaðan hrossin komu hafði verið
klippt á girðingu sem þau vora í og
þannig komust þau út. Ekki er vitað
hver það var sem klippti á girðinguna
en sá hinn sami ætti að hafa í huga
afleiðingar gjörða sinna þar sem mikil
slysahætta getur stafað af lausagöngu
bútjár á dimmum vegum.
Alls liggja fyrir átta kærar vegna
brota á umferðarlögum eftir vikuna,
tjórir fengu sekt vegna vanrækslu á að
færa ökutæki sín til skoðunar, tveir
vegna vanrækslu á að nota
öryggisbelti við akstur, þá liggja íyrir
kærar vegna hraðaksturs og brot á
sérreglum fyrir létt bifhjól.
Lögreglan vill minna eigendur
ökutækja á, þar sem skuggsýnt er
meirihluta sólarhringsins, að hafa
ljósabúnað ökutækja sinna í lagi.
Lögreglan mun á næstu dögum fylgja
því eftir að ljósabúnaður sé í lagi og
mega ökumenn búast við sektum ef
um vanbúinn Ijósabúnað er að ræða.