Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 30.10.2003, Page 8

Fréttir - Eyjafréttir - 30.10.2003, Page 8
8 Fréttir / Fimmtudagur 30. október 2003 Krakkarnir í Hamarsskóla dugleg í Nor- ræna hlaupinu íþróttakennarar sáu um að skipuleggja Norræna skóla hlaupið í Hamarsskóla en elstu nemendunum var ekið, mis- langt í burtu frá skólanum eftir aldri nemendanna sem hlupu svo að skól- anum ásamt kennurunum sínum. Mánudaginn 17. október hlupu 8. 9. og 10. bekkingar frá Stórhöfðaog fyrstar í mark af stúlkunum voru þær Ester Oskarsdóttir, Sara Sjöfn Grettis- dóttir og Lilja Dröfn Kristinsdóttir en þeir Sæþór Olafur Pétursson, Þórarinn Valdimarsson og Asgeir Guðmunds- son komu fyrstir í mark af drengj- unum. Nemendur í 5 .til 7. bekk hlupu frá Brimurð mánudaginn 20. október en Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Dóra Kristín Guðjónsdóttir og Sóley Guð- mundsdóttir kornu fyrstar í mark af stúlkunum en þeir Einar Gauti Ólafs- son, Njáll Aron Hafsteinsson og Brynjar Karl Óskarsson voru sprett- harðastir af drengjunum. Nemendur og kennarar í 1. til 4. bekk hlupu um víðsvegar í kringum skólann og stóðu sig frábærlega. Allir voru sáttir við góða hreyfingu og skemmtilega tilbreytingu. Er haukalóð lína eða ekki? -er spurning sem Héraðsdómur svaraði nýlega í máli skipstjóra sem dæmdur var fyrir fiskveiðibrot vegna línuveiða á Kötlugrunni innan svæðis þar sem allar slíkar veiðar eru bannaðar ri* •• ^1*^1 ' Fjor a bjorha- tíð á Mánabar Bjórhátíð er orðin fastur liður á Mána- bar og nýtur mikilla vinsælda bæjarbúa og gesta í bænum. Hún var haldin í fimmta sinn um síðustu helgi og voru vertarnir, Sigfús Gunnar Guðmundsson og Tryggvi Sæmunds- son, ánægðir með hvemig til tókst. „Bjórhátíðin heppnaðist framar vonum,“ sagði Sigfús Gunnar í sam- tali við Fréttir. „Okkur fannst hún með daufara móti í fyrra en núna gekk þetta mjög vel öll kvöldin, fimmtu- dag, föstudag og laugardag.'1 Hann segir að fólki líki þetta vei þegar slegið er upp langborði á Mána- bar og helst eigi að mæta í lopapeysu og gallabuxum. „Þetta minnir á þjóðhátíð og má kannski segja að Mánabar haft verið eins og stórt þjóðhátíðartjald þar sem hinn frækni Leó Snær Sveinsson sá um að halda uppi stuðinu. Fólk mætti yfirleitt tím- anlega og ég gæti trúað að í allt haft um 250 manns litið við á þessari litlu bjórhátíð okkar," sagði Sigfús Gunnar að lokum. STEFÁN, Grétar Mar, Hörður og Leó Snær hressir á bjórhátíð. Fermingarmót í Landakirkju í dag, fimmtudag frá kl. 8.30 til 21.00 verður fermingarmót í Landakirkju undir stjóm Sjafnar Þór og presta kirkjunnar. Sýnd verður glæný íslensk kvikmynd og unnin verða verkefni. Unglingamir fá léttar veitingar í kaffihléum, fara heim í hádeginu en mæta aftur um klukkan eitt. Seinni partinn fáum við góða heimsókn, Þorsteinn Haukur og hundurinn Bassi koma í heimsókn. Klukkan átta verður kvöldvaka með fermingarbömum og foreldrum þeirra í Safnaðar- heimili kirkjunnar, þar sem farið verður yfir afrakstur dagsins og slegið á létta strengi. Þessu svaraði Héraðsdómur Suður- lands þann I. október sl. er fjöl- skipaður dómur kvað upp dóm í máli sem lögreglustjórinn í Vestmanna- eyjum höfðaði gegn skipstjóranum á Kristbjörgu II fyrir fiskveiðibrot með því að hafa verið á línuveiðum á Kötlugmnni innan svæðis þar sem allar línuveiðar em bannaðar. Varðskipið Ægir kom að skipinu þar sem það var að draga línu og fylgdi því til hafnar í Vestmannaeyjum laust upp úr miðnætti aðfaranótt 20. september sl. Ákæmvaldið krafðist þess að ákærði yrði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á fjárhæð sem svarar til andvirðis veiðarfæra skipsins og þess afla sem fékkst með ólöglegum hætti. Varðskipið Ægir kom að SKIPINU ÚT AF KÖTLUTANGA Málsatvik vom þau að föstudaginn 19. september 2003 stóð varðskipið línu- bátinn Kristbjörgu II HF-75 að meintum ólöglegum línuveiðum suðaustur af Kötlutanga en samkvæmt reglugerð nr. 230/03 em allar línu- veiðar bannaðar á því svæði. Varðskipið hafði samband við skip- stjóra Kristbjargar sem upplýsti að hann væri á lúðulínu og hefði til þess undanþágu og mætti því vera á svæðinu. Þegar farið var að athuga málið kom í ljós að skipstjóri Krist- bjargar var að vitna í reglugerð nr. 311/03 um bann við línuveiðum við Suður- og Suðausturland en í reglu- gerð 363/03 um breytingu á reglugerð nr. 311/03 var heimilað að nota sérbúna línu, haukalóð, til lúðuveiða þar, en þetta átti ekki við um það svæði sem ákærði var á með skip sitt. Skipstjóra var bent á þetta og aðspurður sagðist hann enga skriflega heimild hafa til veiða í reglugerð 230/03 en sagðist hafa munnlega heimild úr ráðuneytinu. Neitaði SÖK Við þingfestingu málsins neitaði á- kærði sök. Hann viðurkenndi að hafa verið á lúðuveiðum umræddan dag á þeim stað sem í ákæm greindi en kvaðst ekki hafa verið á línuveiðum í skilningi reglugerðarinnar. Ákærði kvaðst hafa verið á lúðuveiðum með svokallaða haukalóð, en veiðar með þess konar veiðarfæri séu ekki bann- aðar á svæðinu. Skipstjórinn kvað haukalóð vera sértæka línu eða sértækt veiðarfæri til lúðuveiða. Aðspurður af verjanda kvaðst ákærði strax hafa vakið athygli starfsmanna Landhelgisgæslu og síðar lögreglu á því að samkvæmt hans skilningi næði bann við línuveiðum á Kötlugrunni ekki til veiða með haukalóð. Þá kom fram hjá ákærða að starfsmenn Landhelgisgæslunnar hefðu komið tvisvar um borð í skipið. Vitnið kvaðst, eftir heimsókn Land- helgisgæslunnar í júní eða júlí, hafa hringt í veiðieftirlitið til að kanna hvort honum væri óhætt að nota haukalóð á Kötlugmnni. Þar kvaðst ákærði hafa fengið þau svör um væri að ræða tvö gjörsamlega ólík veiðarfæri. Fiskifræðingur studdi SAKBORNINGINN Fiskifræðingur og forstöðumaður nytjastofnssviðs Hafrannsóknarstofn- unar, gaf skýrslu fyrir dómi í gegnum síma. Hann kvað línu eða fiskilínu og haukalóð vera ólík veiðarfæri vegna stærðarmunar. Vitnið sagði tilurð og tilgang reglugerðar nr. 230/2003 hafa verið að koma í veg fyrir veiðar á smákeilu á Kötlugmnni. Vitnið kvað bæði reglugerð 230 og 311/2003 hafa verið settar til vemdar smákeilu. Að hans mati hefðu reglugerðirnar hins vegar ekki bannað lúðuveiðar eða veiðar með haukalóð, enda stafi smákeilu minni en 55 cm ekki hætta af veiðum með haukalóð. Vitnið tók fram í lokin að hann teldi mál þetta mjög óheppilegt atvik og kvaðst styðja sakborninginn í málinu sem honum þætti óréttlátt. Haukalóð er samt lína I niðurstöðu sinni kemur dómurinn fyrst að tilurð línuveiðibannsins og segir að það hafi verið sett til að spoma við veiðum á smákeilu. Síðan tekur dómurinn fram að ekki sé ágreiningur um lagastoð reglugerðar- innar heldur sé ágreiningurinn um hvort veiðar með haukalóð séu línuveiðar í skilningi reglugerðarinnar. Síðan segir í dóminum; „Fyrir liggur í málinu að veiðarfæri þau sem ákærði notaði í umræddri veiðiferð voru lína með lóðum og krókum. Lína þessi, haukalóð, er eingöngu notuð til lúðu- veiða. Hún er frábrugðin venjulegri fiskilínu að því leyti að lengra er milli króka á haukalóðinni en fiskilínunni og þá eru krókamir á haukalóð mun stærri“. Ennfremur segir í niðurstöðu dómsins að veiðarfæri þau sem ákærði notaði í umræddri veiðiferð, svokölluð haukalóð, sé lína í skilningi reglu- gerðarinnar. Þar sem veiðar með haukalóð hafa ekki með formlegum hætti verið heimilaðar á því svæði á Kötlugrunni sem reglugerðin tekur til, hefur ákærði með greindri háttsemi brotið gegn banni við línuveiðum á Kötlugrunni og lögum nr. 79/1997, um veiðar á fiskveiðilandhelgi Islands. Ákærði ber sem skipstjóri bátsins refsiábyrgð. 600 ÞÚSUND í SEKT OG UPP- TÖKU AFLA OG VEIÐARFÆRA Ákærði var dæmdur til að greiða lág- markssekt 600.000 krónur í Land- helgissjóð íslands innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins að telja, en sæti ella fangelsi í 60 daga. Verðmæti þeirrar línu og þess afla sem fékkst á línuna krónur 259.212 vom gerðar upptækar og ákærði var dæmdur til að greiða allan sakarkostnað. Dóminn kváðu upp auk dómsfor- manns, Ragnheiðar Thorlacius setts héraðsdómara, meðdómsmennirnir Þorfmnur Valdimarsson og Sigurður Bjamason fyrrverandi skipstjórar. Dómnum hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar. Og aldrei kemur Bubbi Bubbi Morthens er óumdeilan- lega sá langlífasti, duglegasti og harðasti í íslenskum skemmtana- iðnaði. Sést það best á þeim 48 plötum sem hann hefur komið nálægt og 418 lögum sem hann hefur samið á ferlinum. Bubbi hefur líka verið harður í tónleikahaldi, þeysist um landið þvert og endilangt, en undantekn- ingin er Vestmannaeyjar. Hann hefur verið ólatur við að tilkynna komu sína til Eyja og með því glatt aðdáendur sína hér. En þau em lærri skiptin sem Bubbi kemur því slag í slag aflýsir hann tónleika- haldinu. í tvígang á þessu ári boðaði hann komu sína hingað með söng- konunni Heru en ennþá hafa þau ekki látið sjá sig. Bubbi hafði boðað tónleika með Hem í Höllinni annað kvöld en þeir Hallarmenn voru varla búnir að senda auglýsinguna þegar Bubbi aflýsti tónleikunum. Ekki í fyrsta eða annað skiptið og áfram sitja aðdáendur hans í Eyjum uppi með sárt ennið.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.