Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 30.10.2003, Qupperneq 13

Fréttir - Eyjafréttir - 30.10.2003, Qupperneq 13
Frcttir / Fimintudagur 30. október 2003 13 Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson skrifar: Ovandaður og sérkennilegur málflutningur þingmanna Á þessum 5 árum leigðu Eyjamenn til sín 2.242 þorskígildi. Gaman væri nú ef Kristinn birti líka upplýsingar um nettókvótaleigu Eyjamanna árið 2001/02 sem hann hefur undir höndum og nefndi í grein sinni hálfum mánuði áður. „Af hverju segir Sigurgeir ósatt?" spyr Kristinn H. í tilefni af þeim ummælum mínum að hann hafi lítinn áhuga á að heimsækja útvegsmenn í Suðurkjördæmi. Fréttablaðið hefur eftir þingmanninum: „Ég sakna þess auðvitað að ná ekki að eiga orðastað við „vini mína" í LÍÚ en legg þó meira upp úr því að ná fundi Vestfirðinga á sunnudag." Ég spyr bara: Er hægt að skilja nema á einn veg þessi ummæli manns sem situr í fastanefnd á vegum Alþingis (sjávarút- vegsnefnd) og þekkir ferðaáætlun hennar a.m.k. einum mánuði áður (því þá fékk ég skilaboð um heimsókn nefndarinnar). Kristinn H. Gunnarsson. alþingismað- ur, sakar undirritaðan um óvandaðan málflutning í grein hér í Fréttum á dögunum. Hann tínir tvennt til. Annars vegar heldur hann því fram að hlutur aflamarksskipa í heildarkvóta sé 95% en ekki 82% eins og kom fram í skrifum mínum. Hins vegar staðfestir hann lítinn áhuga sinn á að heimsækja útvegsmenn í Suðurkjördæmi. I síðasta tölublaði Frétta leggur Magnús Þór Hafsteinsson, alþingis- maður, út af sama efni en hefur þá meira í huga brennivín og í hverra boði hann helst ekki vilji súpa það. Ennfremur að hann vilji hitta fólk í Eyjum. Fyrst þetta með 82% eða 95%. Aflamarkskerfin em tvö, annars vegar krókaaflamark sem vaxið hefur úr sáralitlu, sennilega innan við I %, í að vera 12,4%, hins vegar aflamark stærri skipa. Hér er þetta sett upp í „einfalda" töflu. Tafla eitt. Hér em allir útreikningar lagðir á borð og lesi nú hver sem vill og beri saman við fullyrðingu mína annars vegar og þingmannsins Kristins H. hins vegar. Ég benti á að á undanfömum ámm hafa smábátar náð til sín 12,4% heildaraflamarks í þorski og sennilega aukið hlut sinn úr innan við 1% á gmndvelli gríðarlegs umframafla. Málflutningur smábátamanna hefur byggst á því að umframafli skipti ekki máli, hann sé af engum tekinn! Þingmaðurinn heldur því (rétti- lega!) fram að ég fari ekki rétt með tölur um „sérstakar úthlutanir", þ.e. varðandi ýmiss konar byggðarkvóta, bætur til rækju- og skelfiskbáta, 3.000 tonna pottinn, sem var bætur til strandveiðiflotans fyrir mörgum ámm, auk viðmiðunar sóknardagabáta. Það kemur nefnilega á daginn að umframafli smábáta er ekki 7.000 tonn heldur miklu meira, tæplega 9.000 tonn, sbr. meðfylgjandi töflu! Mér er mikil ánægja að taka undir með Kristni H. að rétt skal vera rétt í þessum efnum sem öðmm. Augljóst áhugaleysi þingmannsins Skoðanir mínar um skiptingu heildar- kvóta era skýrar og hafa margoft komið fram. Þegar heildarafli hefur verið ákveðinn skal hver og einn hljóta sinn hluta úr heildarafla án millifærslna stjórnmálamanna. Þann- ig eiga t.d. þeir, sem veiða kolmunna í troll að telja sinn hugsanlega meðafla til kvóta. Á sama hátt eiga þeir sem stunda áframeldi á þorski að afla sér kvóta til þess ama. Hafróaflinn er fáránleg hugmynd um minnkun brottkasts. Við hjá Vinnslustöðinni hf. höfum beðið sjómenn okkar að henda ekki nýtan- legum afla mörg undanfarin ár enda hafa þeir ekki haft ástæðu til slíks. Þannig tókum við í land þorsk sem hafði lent í netaskífu, klippst í neta- teinum eða kramist á einhvem annan hátt og töldum til kvóta. Nú fer sá afli á markað sem Hafróafli af þeirri einföldu ástæðu að það borgar sig í stað þess að við tökum þennan afla af eigin kvóta, sem er hin rétta og sanngjama leið. Slítur tiilur úr samhengi Það er hins vegar athyglivert að Kristinn H. kemurekki með tölur yfir leigu Eyjamanna sem hann kynnti í fyrstu grein sinni í Eyjafréttum, en þá upplýsti þingmaðurinn að Eyjamenn hefðu leigt frá sér 2.592 tonn af þorski - og sleit tölumar þar með úr sam- hengi. Eigum við ekki að láta fljóta með yfirlit yfir kvótaleigu útvegs- bænda í Eyjum hin síðari ár og óska eftir því að Kristinn H. fylli í skörðin? Skv. upplýsingum Fiskistofu er nettó- kvótaleiga Eyjamanna undanfarin ár eftirfarandi: Á þessum 5 ámm leigðu Eyjamenn til sín 2.242 þorskígildi. Gaman væri nú ef Kristinn birti líka upplýsingar um nettókvótaleigu Eyjamanna árið 2001/02 sem hann hefur undir höndum og nefndi í grein sinni hálfum mánuði áður. „Af hverju segir Sigurgeir ósatt?“ spyr Kristinn H. í tilefni af þeim um- mælum mínum að hann hafí lítinn áhuga á að heimsækja útvegsmenn Suðurkjördæmi. Fréttablaðið hefur eftir þingmanninum: „Ég sakna þess auðvitað að ná ekki að eiga orðastað við „vini mína“ í LIU en legg þó meira upp úr því að ná fundi Vest- firðinga á sunnudag". Ég spyr bara: Er hægt að skilja nema á einn veg þessi ummæli manns sem situr í fasta- nefnd á vegum Alþingis (sjávarút- vegsnefnd) og þekkir ferðaáætlun hennar a.m.k. einum mánuði áður (því þá fékk ég skilaboð um heimsókn nefndarinnar). Hann var erlendis þegar Vestfírð- ingar blésu til fundar og lagði meira upp úr að komast þangað en á löngu ákveðna fundi sjávarútvegsnefndar- manna í Eyjum. Auðvitað gat þing- maðurinn hæglega hagað ferðalögum sínum þannig að hann hefði getað verið bæði á fundum í Eyjum og fyrir vestan. Þetta er auðvitað bara spuming um vilja og pólitiska afstöðu. Ég skipulagði tíma minn í samræmi við heimsókn sjávarútvegsnefndar, það átti þingmaðurinn líka að gera Skiptir staða fyrirtækjanna ekki máli? Dugur Magnúsar Þórs Hafsteinssonar var meiri eða skipulag hans er betra. Hann kom hingað með sjávarútvegs- nefnd eins og vera bar cn tók skýrt fram að hann vildi líka hitta einhverja aðra en stórútgerðarmenn í Eyjum. Það er bara hans mál, auðvitað hafa þingmenn í sjálfu sér frjálst val um hveija þeir hitta á fómum vegi. Þaðer hins vegar afar sérkennilegt af al- þingismanni, svo ekki sé meira sagt, að telja það í meira lagi hæpið að eiga orðastað við forsvarsmenn fyrirtækja sem bera hita og þunga af atvinnulífi Eyjanna. Þeir hinir sömu forsvarsmenn bera fjandakomið ábyrgð á rekstri fyrir- tækja sinna og vita hvert stefnir í rekstri þeirra og þar með í at- vinnumálum byggðarlagsins. Fólkið í sjávarútveginum, sem Magnús Þór vildi hitta, vinnur að langmestu leyti hjá þessum sömu fyrirtækjum! Það er hins vegar rétt hjá Magnúsi Þór að í aðdraganda alþingiskosn- inganna nefndi ég ekki línuívilnun. Hún var enda ekki helsta hitamálið sem tengdist sjávamtvegsmálum þá en það skal Magnús Þór vita að afstaða mín til línuvilnunar var nákvæmlega sú hin sama fyrir og eftir kosningar. Ég hef margsinnis lýst yfír í ræðu og riti að stöðva beri áráttu stjómmála- manna við að nýta aflamarkskerfið til millifærslna milli einstakra byggðar- laga, skipaflokka eða annarra gælu- verkefna á þeirra vegum. Það stendur. Mikið fjallað um fyrningarleiðina í kosningabaráttunni var hins vegar mikið fjallað um fyrningarleiðina. Ýmsir frambjóðendur tóku stórt upp í sig um meint afskipti forsvarsmanna Vinnslustöðvarinnar af kosningabar- áttunni þegar þeir birtu skýrslu Deloitte & Touche um áhrif fyrn- ingarleiðar á rekstur og efnahag félagsins. Það var eins og þessir fram- bjóðendur teldu sig eina hafa rétl á að tjá sig um tiltekin mál fyrir kosn- ingamar eða þá að þeir teldu fym- ingarleiðina vera „pólitík fyrir atvinnumenn" að karpa um en að stjómendur fyrirtækja í sjávarútvegi ættu bara að halda sig til hlés og þegjandi láta ósköpin yfir sig ganga! Heildaraflamark í þorski fiskveiðiárið 2003/2004 Tafla 1. Slægt % skipting Óslægt Smábátar með krókaflamark 21.803 12,4% 25.956 Viðmiðunarafli dagabáta skv. 2. mgr. 6. gr. 1. 38/1990. 1.764 1,0% 2.100 Tiljöfnunar skv. 9. gr. a. 1. nr. 38/1990. 2.520 1,4% 3.000 Til ráðstöfunar Byggðastofnunar skv. ákvæði til brb. XXVI I. nr. 38/1990. 1.003 0,6% 1.194 Til uppbóta skv. 1. ml. 1. mgr. 9. gr. 1. nr. 38/1990 (skel- og rækjubætur). 2.886 1,6% 3.436 Til ráðstöfunar skv. 2. ml. 1. mgr. 9. gr. 1. nr. 38/1990 (til stuðnings byggðarlögum) 1.003 0,6% 1.194 Til aflamarksskipa 144.581 82,4% 172.120 Samtals 175.560 100,0% 209.000 Afli sóknardagabáta 2002 Tafla 2. 10.640 12.666 Viðmiðunarafli dagabáta skv. 2. mgr. 6. gr. 1. 38/1990. 1.764 2.100 „Umframafli" 8.876 5,1% 10.566 Spurt er: Ertu búin að sjá Litlu ljót? Valgerður Jóusdóttir Nei, en ég ætla að fara um helgina.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.