Fréttir - Eyjafréttir - 30.10.2003, Qupperneq 18
18
Fréttir / Fimmtudagur 30. október 2003
Landakirkja
Fimmtudagur 30. október
Kl. 8.30 - 21.00 Fermingarmót í
Landakirkju undir stjórn Sjafnar
Þór og presta kirkjunnar.
Sjá annars staðar í blaðinu.
Kl. 10.00 Mömmumorgunn.
Kl. 20.00 Tólf spora vinna heldur
áfram í KFUM&K heimilinu.
Kl. 20.00 Kóræfíng hjá kirkjukór
Landakirkju.
Föstudagur 31. október
Kl. 16.00 Hópur unglinga úr
æskulýðsfélagi Landakirkju og
KFUM&K, sem fór til Danmörkur
í sumar, heldur á mót í Kaldárseli.
Sunnudagur 2. nóvember
Kl. 11.00 Sunnudagaskóli í kirkj-
unni. Allir krakkar fá biblíumynd.
Kl. 14.00 Guðsþjónusta á allra
heilagra messu. Minnsterlátinna.
Fermingarböm lesa rilningarlestra.
Prestamir.
Kl. 20.00 Æskulýðsfélag Landa-
kirkju og KFUM&K. Helgistund,
leikir og söngur. Sr. Fjölnir, Esther
Bergsdóttir og leiðtogamir.
Mánudagur 3. nóvember
Kl. 17.30 Æskulýðsstarf fatlaðra,
eldri hópur. Hulda og Þorvaldur.
Kl. 20.00 Kvenfélag Landakirkju
undirbýr árlegan jólabasar. ■
Þriðjudagur 4. nóvember
Kl. 15.00 Kirkjuprakkarar, 6-8 ára
krakkar í kirkjunni.
Sr. Fjölnir Asbjömsson og leiðtog-
amir.
Kl. 16.00 Litlir lærisveinar Landa-
kirkju, 1 .-4. bekkur.
Kl. 17.00 Litlir lærisveinar Landa-
kirkju. Kóræfing eldri hóps, 5.
bekkur og eldri.
Kl. 20.30 Kyrrðarstund ásamt
altarisgöngu í Landakirkju. Góður
vettvangur frá erli hversdagsins.
Miðvikudagur 5. nóvember
Kl. 11.00 Helgistund á Hraun-
búðum.
Kl. 17.30 TTT yngri og eldri
saman, 9-12 ára krakkar í kirkjunni.
Kl. 20.00 Opið hús hjá Æsku-
lýðsfélagi Landakirkju og KFUM
&K í félagsheimili KFUM&K.
Esther Bergsdóttir æskulýðsfulltrúi,
sr. Fjölnir Asbjömsson og leið-
togamir.
Hvítasunnukirkjan
Fimmtudagur 30. október
Kl. 20.30 Biblíufræðsla. Er Biblían
andstæð nútímalífi? Komið og
fræðist. Allir velkomnir.
Föstudagur 31. október
Kl. 20.30 Unglingakvöld. Sumir
fóm til Akureyrar og em komnir
aftur fullir af fjöri. Unglingar vel-
komnir.
Laugardagur 1. nóvember
Kl. 20.30 Lofgjörðar- og bæna-
stund með brauðsbrotningu.
Sunnudagur 2. nóvember
Kl. 13.00 Sunnudagaskólinn.
Miskunnsami Samverjinn kemur
í heimsókn, leikrit og brúðukór.
Öll böm velkomin.
Kl. 15.00 SAMKOMA
Nú verður kraftur í lofgjörðinni og
lifandi Guðsorð er alltaf hvetjandi.
Sitjið ekki hcima og látið ykkur
leiðast, drífið ykkur á samkomu!
Allir hjartanlega velkomnir.
Miðvikudagur 5. nóvember
Kl. 20.00 AGLOW-kvöld í
safnaðarheimili Landakirkju.
Hjálmar Guðnason talar.
Allar konur velkomnar.
Aðventkirkjan
Laugardagur 25. október
Kl. 10.30 Biblíurannsókn.
✓
Armann ýtir þriðju Vinjettunni úr vör:
Veisla með
miklum elegans
Ármann Reynisson ýtti bók sinni,
Vinjetta III úr hlaði með miklum
glæsibrag í Vélasal Listskólans.
Hann hai'ði fengið nokkra aðila í
lið með sér og saman tókst þeini að
skapa skemmtilcga stund að
viðstöddum rúmlega 100 gestum.
Þarna sýndi Þórður Svansson
listaverk sín, skúlptúra,
listakokkarnir Grímur og
Sigurður Sigmarssynir töfruðu
fram frábæra rétti sem runnu
ljúflega niður með ijúlléngu víni og
síðast en ekki síst var það
upplcstur Ármanns á kiiflum í
Vinjettunni við gítarundirleik
Sigurmundar Einarssonar.
Það var greinilegt að þessi
uppákoma Ármanns hafði vakið
athygli bæjarbúa því mæting var
góð, ekki síst í ljósi þess að margir
voru úr bænum. Tekið var á móti
gestum með vínum frá Karli K.
Karlssyni, Torres Vina Esmeralda
frá Spáni og Ijúffengri bliindu af
Campari.
BERGUR Elías og Ármann við athöfnina á föstudaginn.
■
■
mk
j
SIGURÐUR stórmatreiðslumeistari útlistar fyrir Ágústu á Hól, Helgu á
Felli og Þorsteinu í Þingholti hvað var á borðum.
Á hlaðborði, sem kaiiað er
Undur Vestmannaeyja, var að
finna sjii rétti sem allir eru nýir á
nálinni. Fyrstan skal nefna
skötusel með parmaskinku og
sítrónuberki, þá voru humarhalar
í hrísgrjónadegi með
avacadomauki, nýr lundi með
bláberjum, rifsberjahlaupi og
pistasíum, reyktar ýsuþynnur með
kryddjurtarjómaosti, reyktur
lundi með graskersmauki,
hörpuskel með kavíar og
seljurótarmauki og saltfiskflan
með kavíar.
Ármann gætti þess að allt færi
fram og að elegansinn væri í
hávegum hafður. Hann ávarpaði
gesti og þakkaði góða þátttiiku
áður en upplesturinn hófst. Hann
las upp þrjár Vinjettur og er ein
þeirra, Eldgos í Heimaey tileinkuð
30 ára goslokum á þessu ári.
Vinjetturnar eru bæði á íslensku
og ensku í sömu bók.
Þar með var lokið skemmtilegri
stund í Vélasalnum þar sem matur,
vín, skúlptúrar og bókmenntir
voru í öndvegi. En að lokum
ailienti Ármann Bergi Elíasi
Ágústssyni fyrstu bókina af
Vinjettum III.
Teiknisamkeppni LV:
Eva Dögg
sigraði
í tilefni af uppfærslu Leikfélags
Vestmannaeyja var efnt til
teiknisamkeppni meðal
grunnskólabarna. Þátttaka var
mjög góð og sögðust forráðmenn
félagsins hafa fengið margar mjög
góðar teikningar.
Verðlaunamyndina á Eva Dögg
Davíðsdóttir í 4. JA í Hamarsskóla
og fékk hún viðurkenningarskjal
fyrir.
Mynd Evu Daggar prýðir
forsíðu Leikskrár og í henni er að
finna aðrar myndir sem bárust í
keppninni.
EVA Dögg með formanni LV, Drífu Þöll Arnardóttur og Guðnýju
Kristjánsdóttur stjórnarmanni.
TEIKNING Evu Daggar prýðir
forsíðu leikskrár sem er vel úr
garði gerð en kápan hefði að
ósekju mátt vera í lit.
Hemax deild kvenna
Þriðjudaginn 4. nóv kl. 19.15
IBV - Stjarnan
Nú fyllum við kofann