Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 30.12.2003, Blaðsíða 16

Fréttir - Eyjafréttir - 30.12.2003, Blaðsíða 16
VEITINGAHUS BÁRUSTÍG 11 SÍMI 481 3393 hársnyrtistofa SÍMI 481 3866 Góður matur. Góð þjónusta. » 481-2943 • 897-1178 Kostar minna en þú heldur. Vilhjálmur Bergsteinsson Á Þorláksmessu voru að venju veittir styrkir úr Minningar- og menningarsjóði Sparisjóðsins og voru styrkþegar fimm að þessu sinni, Leikfangasafnið, Athvarfið, Skjalasafnið, Viska og útgáfa á efni eftir Ása í Bæ fengu styrki. Myndin er frá afhendingunni, f.v. Þór Vilhjálmsson stjórnarfor- maður Sparisjóðsins, Páll Helgason vegna útgáfu efnis eftir Ása í Bæ, Bergþóra Þórhallsdóttir Visku, Jóna Guðmundsdóttir Skjalasafninu, Jóna Ólafsdóttir Athvarfinu, Guðbjörg Guðmunds- dóttir Leikfangasafninu og Ólafur Elísson sparisjóðsstjóri. Eimskip vill selja útgerðarrisann Brim: Kaup á HB ekki rædd innan ísfélagsins -segir Ægir Páll Friðbertsson framkvæmdastjóri Miklar vangaveltur eru núna í gangi um sölu á sjávarútvegs- fyrirtækjum Brims og margir verið nefndir til sögunnar sem hugsan- legir kaupendur að eignum Brims. Ríkisútvarpið greindi frá því á dögunum að ísfélagið og Trygg- ingamiðstöðin stæðu sameiginlega að hugsanlegum kaupum á Haraldi Böðvarssyni á Akranesi ásamt nokkrum heimamönnum þar. Ekki er talið útilokað að Grandi standi einnig að kaupunum. Ægir Páll Friðbertsson, fram- kvæmdastjóri ísfélagsins, kannast ekki við málið og segist ekki vita hvaðan RÚV hefur þessar upp- lýsingar. „Það hafa engar viðræður farið fram um þessi mál, það er bara þannig.“ Hólagata 33 er jólahús ársins 2003 -Austurvegur jólagatan í ár Eins og undanfarin ár hefur Hita- veita Suðurnesja í samstarfi við Lionsklúbb Vestmannaeyja, valið jólahús ársins og jólagötu ársins. Dómnefnd var sammála að jóla- skreytingar væru alltaf að aukast og hugmyndaflug húseigenda og íbúa við heilu götumar væru með ólík- indum og til fyrirmyndar. Ótal mörg hús fengu atkvæði og var talning atkvæða mögnuð, segja aðstandendur keppninnar. Að þessu sinni var Hólagata 33 valin jólahús ársins. Birkihlíð 11 var í öðru sæti, Draumbær í þriðja sæti og Austurvegur I b í fjórða sæti. Sem jólagata ársins varð Austurvegur í fyrsta sæti og Litla- gerði í öðm sæti. Sparisjóðurinn ekki til sölu Forsvarsmenn Kaupþings-Búnaðar- banka hafa verið í viðræðum við stjórn Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis SPRON, um kaup á sparisjóðnum. Samband íslenskra sparisjóða hefur lýst yfir áhyggjum sínum og telur það brot á lögum ef SPRON verður dótturfyrirtæki Kaupþings Búnaðarbanka. Auk þess sem það sé aðför að starfsemi sparisjóðanna. Þór Vilhjálmsson, formaður stjórnar Sparisjóðs Vestmannaeyja segir að það standi ekki til að selja Sparisjóð Vestmannaeyja. „Þetta er ekki uppi á borðinu. Það hefur verið samstarf milli sparisjóðanna og verður það áfram. Auðvitað veikir þetta sparisjóðafjölskylduna en að öllu óbreyttu á hún að vera sterk áfram,“ segir Þór. Eyjagull Fjölsýnar verður sent út á morgun, gamlársdag Hinn árlegi sjónvarpsþáttur Fjöl- sýnar, Eyjagull verður sýndur á gamlársdag klukkan tvö. Eins og síðustu tvö ár lítur fjöldi fólks í heimsókn og ræðir um árið sem senn er á enda. Asamt því verður fólki skemmt með tónlistar- atriðum. Sæþór Þorbjamarson mun taka lagið og einnig mun hin stórefnilega söngkona, Eva Natalía koma fram ásamt Högna Hilmis- syni. Stjómendur eru Júlíus Ingason og Sigursveinn Þórðarson. Meðal gesta eru Magnús Kristinsson, Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, Hanna María Siggeirsdóttir, Bergur Elías Agústsson, Frosti Gíslason og Bergþóra Þórhallsdóttir. Jm nn Maarud snakk 250 gr Maarud Sprö mix 200 gr StiornuiRogvMiai^fqr Stjörnu skrúfur 150 gr Stiornur 90 gr Town House saltkex Club saltkex Saltstangir 250 gr Ritzkex Mini tuc Vogaídýfur 7 up 2 Itr Pepsi 2 Itr ■#* •• ■ • | g% ■ - 188,- 249, ?JSgl88,- 249, af29;-^, 179, fiSKo?»gg2 49, 69,- 89, 108,- 136, Kjörís Jóla ís 2 Itr 399,- 7f , z11% - ■ ■ :• ■ • / 'MKÆm | Tilboðirt gilda frá 30. desember 2003 til 7 janúar 2004 UESTMANNAEVIUM UESTURUEG118 Verð Nú 298, - 299, - Áður "rl'i fi* •*/ /1 394,- 399,- • l i fl

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.