Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 30.12.2003, Blaðsíða 15

Fréttir - Eyjafréttir - 30.12.2003, Blaðsíða 15
Fréttir / Þriðjudagur 30. desember 2003 15 desember. Háhymingurinn Keikó geispaði golunni úti í Noregi og varð mörgum harmdauði þótt ekki hefði hann verið sérstaklega syrgður hér heima. Hann var grafinn ytra með nokkurri viðhöfh. Hait deilt á Guðjón Línuívilnunarfrumvarp ríkisstjóm- arinnar var samþykkt á alþingi, þrátt fyrir áköf mótmæli margra, þ.á.m. Vestmannaeyinga sem fylktu sér í andstöðu gegn því, sama hvar í flokki þeir stóðu. Þess vegna kom það mörgum spánskt fyrir sjónir að Guðjón Hjör- leifsson, þingmaður og bæjarfulltrúi, skyldi greiða fiumvarpinu atkvæði sitt á þingi, þegar hann hafði skömmu áður á bæjarstjómarfundi talað gegn því. Ábyrgðarmaður Frétta ritaði harðorðan pistil þar sem hann krafðist þess að þingmaðurinn segði af sér sem bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum. Guðjón hélt fund í Vestmannaeyjum þar sem hann skýrði mál sitt og m.a. að þetta ætti eftir að koma Vest- mannaeyingum til góða í framtíðinni. Flestir töldu þó að þama hefði hann bara hlýtt foringjum flokksins. Vilja hækkun fargjalda Samskip óskuðu eftir því við Vegagerðina að gjaldskrá Herjólfs yrði hækkuð um að minnsta kosti 7,5% frá næstu áramótum. Bæjarráð fól bæjarstjóra að óska eftir fundi með fulltrúum frá samgönguráðuneyti, Vegagerð og Samskipum til að ræða um samgöngur á sjó milli lands og Eyja. Tvöfalt dýrara til Eyja! Hún þótti nokkuð sérstök gjaldskráin sem var í gildi hjá BSI vegna pakkaflutnings út á land fyrir jólin. Þar var nákvæmlega útlistað, eftir þyngd pakka, hvað kostaði að senda þá og tekið fram að sama gjald væri til allra staða á landinu. Nema til Vestmannaeyja. Ef pakkar væm sendir þangað skyldi greiða tvöfalt gjald miðað við aðra staði. Þetta þótti sumum skondið en fáum skemmtilegt, a.m.k. ekki þeim sem ætluðu að senda jólaglaðning til Eyja. Hvít jól Þeir voru ekki margir sem áttu von á að jólin yrðu hvít að þessu sinni enda höfðu flestir veðurfræðingar talið að þau yrðu rauð. Enjólin urðu hvít um allt land og margir sem fögnuðu því. Hið ágætasta veður var yfir hátíðina og engin alvarleg atvik sem komu upp á í Vestmannaeyjum. Miklar ljósaskreytingar setja svip á bæinn og hafa aldrei verið meiri en nú. Þessi annáll var unninn upp úr Fréttum ársins 2003 og er alfarið á ábyrgð undirritaðs. Við samantekt hans var reynt að láta jjölbreytni ráða efnisvali þannig að hann gœti gejið mynd af því sem var að gerast í Vestmannaeyjum á árinu. Eflaust er eitthvað sem hefði átt erindi í hann sem sleppt hefur verið og þá verður bara að hafa það enda er þetta ekki sagnfrœðilegur annáll í þess orðs merkingu heldur meira til gamans og e.t.v. einhversfróðleiks. Með bestu óskum um gott ogfarsœlt nýtt ár. Sigurgeir Jónsson Brúsi bjargfasti skal hann heita FRA afhendingunni, verðlaunahafar og fulltrúar Rannsóknaseturs, Náttúrugripasafns og Sparisjóðs. Rannsóknasetur Vestmannaeyja og Náttúrugripasafn Vestmannaeyja stóðu fyrir verkefni síðastliðið haust sem bar naíhið Pysjueftirlitið. Spari- sjóður Vestmannaeyja styrkti verk- efnið og veitti ýmsa aðstoð meðal annars við dreifingu og söfnun skráningarblaða. Díana og Inga Olafsdætur fundu upp nafnið Brúsa bjargfasta á pysjueftir- litsmanninn og fengu verðlaun fyrir nafngiftina. Að launum fengu þær höfuðljós og vasaljós fyrir að skila inn skýrslu en fimmtán aðrir fengu verðlaun fyrir að skila skráningar- blöðum. AIIs vom 3478 pysjur taldar og 333 voru vigtaðar og meðalþyngd þeirra var 280 grömm. Páll Marvin Jónsson, Rannsókna- setrinu, segir stefnt að því að gera meira úr Brúsa bjargfasta næsta ár í þeim tilgangi að fá sem flesta til að skila skráningarblöðum, böm, ferða- langa og aðra þá sem hafa áhuga. „Verkefnið hefur þann tilgang að fylgjast með afkomu lundans. Þegar búið er að safna gögnum í nokkur ár verður hægt að spá í spil varðandi stofninn og stærð árganga. Það getur vel verið að við gemm einhverjar breytingar á næsta ári og gemm rann- sóknimar markvissari líkt og í togararalli. Þá fæm ákveðnir aðilar alltaf á sama stað, á sama tíma, í hvaða veðri sem er, til að koma í veg fyrir skekkjur sem gætu komið vegna slæms veðurs og jafnvel sjónvarps- gláps.“ Páll Marvin segir verkefnið bjóða upp á mikla möguleika og það komi til með að skera úr um það hvort pysjur em seint eða snemma á ferðinni. „Fjöldi þeirra pysja sem fundust kom ekki á óvart og ég býst við að þær verði fleiri næsta ár. Því fleiri skráningar sem við fáum því betra og niðurstöðumar verða mark- tækari," sagði Páll Marvin. Styrktar- og menningarsjóður Sparisjóðsins: Leikfangasafn, Athvarf, Skjalasafn, Viska s og útgáfa á efni eftir Asa í Bæ fengu styrki Árleg úthlutun úr Styrktar- og menn- ingarsjóði Sparisjóðs Vestmannaeyja, sem stofnaður var til minningar um Þorstein Þ. Víglundssonaríyrrverandi sparisjóðsstjóra fór fram í fundarsal Sparisjóðsins á Þorláksmessu. Leik- fangasafnið, Athvarfið, Skjalasafnið, Viska og útgáfa á efni eftir Ása í Bæ fengu styrki. Þetta er í sextánda skipti sem úthlutun fer fram úr sjóðnum og að þessu sinni hlutu styrki: Leikfangasafn Vestmannaeyja Leikfangasafn Vestmannaeyja var stofnað árið 1983 af félagi Þroskahjálpar í Vestmannaeyjum. Fyrst starfaði safnið á dvalarheimili aldraðra að Hraunbúðum, á árinu 1984 flutti safnið í Bamaskóla Vestmannaeyja, á árinu 1987 flutti safnið að Búhamri 17 þegar Meðferðarheimilið hóf starfsemi þar en flutti síðan í Þórsheimilið við Hamarsveg í nóvember á þessu ári og starfar þar ásamt Athvarfmu. Leikfangasafnið veitir sérhæfða þjónustu og ráðgjafatilboð fyrir fötluð böm, aðstandendur þeirra og þá sem veita fötluðum bömum þjónustu t.d. leikskólum. Athvarfið Athvarfið hefur verið rekið af Félagsþjónustu Vestmannaeyjabæjar frá haustinu 1991 sem félagslegt úrræði íyrir böm á aldrinum 6-12 ára. Starfsemin er í nánu samstarfi við grunnskólana í Vestmannaeyjum. Fyrst var Athvarfið til húsa í Bamaskóla Vestmannaeyja og síðar í Bjamaborg. Fyrr á þessu ári gjörbreyttist öll starfsaðstaða þegar Athvarfið var flutt í Þórsheimilið við Hamarsveg ásamt Leikfangasafninu. Leitast er við að hafa viss uppeldisáhrif á börnin sem dvelja í Athvarfinu, sem miða að því að auka andlega og líkamlega vellíðan þeirra og gera þau færari um að njóta sín og ná sem bestum árangri í starfi og leik án stuðnings Athvarfsins. Skjulasafn Vestmannaeyja Skjalasafn Vestmannaeyja var stofnað 28. mars 1980, samkvæmt stað- festingu frá Þjóðskjalasafninu. Skjala- safnið er rekið af Vestmannaeyjabæ í náinni rekstrarlegri samvinnu við önnur söfn í Safnahúsinu. Skjala- safnið er til þess að gera ungt að ámm og mikið starf er fyrir höndum við söfnun upplýsinga, þannig að margvíslegu rituðu máli í sögu Vestmannaeyja sé haldið til haga og varðveitt. Styrkurinn er aðallega ætlaður til skráningar, frágangs og flokkunar á skjalasafni Þorsteins Þ. Víglundssonar eins af stofnendum og fyrsta sparisjóðsstjóra Sparisjóðs Vestmannaeyja. Fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja - VISKA Fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja - VISKU var formlega komið á fót í upphafi þessa árs eftir skamman undirbúning. Sparisjóðurinn er meðal 18 stofnaðila. VISKA er sú yngsta í hópi níu símenntunarmiðstöðva í öllum landshlutum. Markmið VISKU er að efla menntun og fræðslustarfsemi í Eyjum. Hafa forgöngu um fræðslu og fjarkennslu á sem flestum sviðum og miðla því til almennings og atvinnulífs í Vest- mannaeyjum. Sparisjóðurinn hefur ákveðið að veita VISKU viðurkenningu og dálítinn stuðning til að ella og standa fyrir námskeiðum sem tengjast menningu, sögu- og annarri almennri fræðslu. Útgáfa efnis eftir Ása í Bæ í bók og á geisladisk Áformað er að safna saman og gefa út efni eftir Ástgeir Ólafsson, sem ætíð var nefndur Ási í Bæ, í tilefni þess að þann 27. febrúar nk. em liðin 90 ár frá fæðingu hans. Útgáfa þessi er fyrir tilstuðlan þeirra Gísla Helgasonar og Inga Gunnars Jóhannssonar í samráði við fjölskyldu skáldsins. Mikið efni er fyrirliggjandi af ýmsu tagi eftir Ása m.a. hefur varðveist hljóðritun af tónleikum, þá er til í hans eigin upplestri kaflar úr bókinni Skáldað í skörðin sem hann las skömmu fyrir dauða sinn, mikið af efninu er í fómm Gísla og svo á Ríkisútvarpið ýmsar hljóðritanir sem ekki var vitað um áður svo eitthvað sé nefnt. Að aflokinni útgáfunni munu héraðs- og skjalasafni Vestmannaeyja verða afhent fmmgögn til varðveislu. Sparisjóður Vestmannaeyja vill leggja sitt af mörkum til að gera þessa útgáfu mögulega. Ragnar Guðmundsson: Athugasemdir við yfirlýsingar Hafsteins -löggilts endurskoðanda Þróunarfélags Vestmannaeyja og Westmar ehf. Vegna ummæla Hafsteins Gunnars- sonar löggilts endurskoðanda í Fréttum 18. des. sl. og þar sem hann hafnaði beiðni minni um að leiðrétta þau skrif, vil ég koma eftirfarandi athugasemdum á framfæri. Ummæli Hafsteins, um að ég hafi haft frjálsar hendur varðandi fjárútlát og hvemig staðið var að uppbyggingu verksmiðjunnar, em röng. Hið rétta er að öll fjárútlát vegna uppbyggingar verksmiðjuhúsnæðis, kaupa á vélum og búnaði vom í höndum Þróunar- félags Vestmannaeyja. Ég kom hvergi nærri neinum framangreindum ákvörðunum og hafði enga heimild til þess. Ég fékk í tilfellum að vita hvað stæði til varðandi framkvæmdir á verksmiðjuhúsnæði Westmar en sá aldrei neinar kostnaðaráætlanir vegna þess. Ef ekki hefur verið til staðar nein fjárfestinga- eða verkáætlun vegna Westmar, þá er það á ábyrgð stjómar og framkvæmdastjóra Þróunarfélags Vestmannaeyja, sem tók allar ákvarð- anir varðandi kaup á tækjum, búnaði, þekkingu og uppbyggingu húsnæðis fyrir hönd Westmar. Ég afitur á móti var ráðinn til þess að aðstoða við uppsetningu tækja til að koma rekstri og framleiðslu Westmar af stað og lagði þess vegna fyrir framkvæmdastjóra Þróunafélags Vest- mannaeyja nokkrar mismunandi viðskipta- og rekstraráætlanir sem miðuðu að því að koma rekstri verksmiðjunnar af stað á mismunandi forsendum. Auk þess vann ég að markaðs-, þróunar- og hráefnismálum. Sú vinna var að mestu greidd af mér persónu- lega og hefur Þróunarfélag Vest- mannaeyja ekki enn greitt mér þann kostnað. Til að upplýsa viðkomandi þá mun stjóm Þróunarfélags Vestmannaeyja sem að þessum málum stóð, hafa verið skipuð eftirtöldum mönnum: Guðjón Hjörleifsson, Andrés Sig- mundsson, Bjöm Elíasson, Þorsteinn Ingi Sigfússon og Stefán Lúðvíksson. Framkvæmdastjóri var Þorsteinn Sverrisson. Mér þykir miður að mitt nafn hafi tengst opinberri umræðu um óábyrg íjárútlát og óráðsíu. Þá er ég undrandi yfir að Hafsteinn Gunnarsson skuli halda því fram á bæjarstjómarfundi að vinnubrögð mín séu ein helsta orsök þess að ekki tókst að koma íyrirtækinu í rekstur þegar skýringuna er fyrst og fremst að finna í starfsháttum Þróunar- félags Vestmanneyja. Ég lét af störfum hjá Westmar ehf. 1. des. sl. en óska viðkomandi aðilum árs og friðar. Með þökk fyrir birtinguna, Ragnar Guðmundsson Ashamri 59 Vestmannaeyjum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.