Fréttir - Eyjafréttir - 14.04.2005, Page 6
6
Fréttir / Fimmtudagur 14. apríl 2005
Lögreglan:
Sjómenn
í slag á
Eskifirði
Það var frekar rólegt hjá lögreglu í
vikunni sem leið og fór helgin að
mestu leyti vel fram. Rólegt var yfir
skemmtanalífinu þrátt fyrir að
Nemendafélag Framhaldsskólans hafi
verið með dansleik á Prófastinum en
sú skemmtun fór vel fram að því er
kemur fram í frétt lögreglu.
Ein líkamsárás var kærð til lögreglu
í vikunni en hún átti sér stað um borð
í fiskiskipi héðan úr Eyjum þar sem
skipiðlá viðbiyggjuáEskifirði. Ekki
er um alvarleg meiðsl að ræða og þá
er atburðarásin ekki Ijós en málið er í
rannsókn.
Eitt fíkniefnamál kom upp í
vikunni sem reyndar á rætur sínar að
rekja til fastalandsins en fólk sem var
í sumarbústað í Grímsnesi fann ætluð
fíkniefni sem lágu á jörðinni fyrir
framan bústaðinn. Um er að ræða
fjórar ætlaðar E-töflur og smáræði af
kannabisefnum. Líklegt er að einhver
sem var í innbrotahugleiðingum hafi
misst efnin.
Eitt skemmdarverk var tilkynnt
lögreglu í vikunni en um er að ræða
skemmdir á bamakerru sem var í
kerrugeymslu á Kirkjugerði. Kerran
fannst síðan við Hamarsskóla og
reyndist vera ónýt. Þeir sem
einhverjar upplýsingar geta gefið um
hver þama var að verki em
vinsamlegast beðnir um að hafa
samband við lögreglu.
Iron Maiden
ókeypis
I Bókabúðinni er til slatti af plakötum
með stórsveitinni Iron Maiden sem
væntaleg er til Islands. Guðmundur
hefur ákveðið að gefa þau þannig að
nú er um að gera fyrir áhangendur
sveitarinnar að drífa sig á staðinn og
fá eitt stykki.
e*i = | . 1 fl 1
(mSH * m b "Tggdfv 'v. "S M. 1(1
MILLI30 og 40 manns mættu á fundinn sem þótt mjög vel heppnaður.
Fundaröðin: Hvert stefnum við og hvert ætlum við?
Binni í Vinnslustöðinni reið á vaðið
-á mjög vel heppnuðum fundi síðasta föstudag
BINNI: Fastir starfsmenn eru í kringum 190 en fara upp í um 300.
Á föstudaginn var fyrsti fundurinn í
röð funda þar sem skoða á Vest-
mannaeyjar í nútíð og framtíð. Alls er
gert ráð fyrir átta fundum í vor og í
haust og er ætlunin að enda með
ráðstefnu á landsvísu þar sem málefni
landsbyggðarinnar verða krufin, eink-
um frá sjónarhóli sjávarbyggða. Milli
30 og 40 manns mættu á fundinn sem
þótti heppnast vel.
Bergur Elías Ágústsson bæjarstjóri
og Ómar Garðarsson ritstjóri Frétta
eru hvatamenn að fundaröðinni þar
sem velt er upp spumingunni, Vest-
mannaeyingar, hvert stefnum við og
hvert ætlum við? Eitt málefni er tekið
fyrir á hverjum fundi og reið Sigurgeir
Brynjar Kristgeirsson, framkvæmda-
stjóri Vinnslustöðvarinnar, á vaðið og
var fundarefnið Sjávarútvegur í
Eyjum.
Næst verða það atvinnumál; viðhorf
forystu verkalýðshreyfingarinnar,
iðnaður í Vestmannaeyjum, takmark-
anir og sóknartækifæri, sjálfstæðar
útgerðir í Eyjum, emm við sjálfum
okkur verst?, framtíðarsýn bæjar-
fulltrúa í Vestmannaeyja, ferða-
mannaiðnaðurinn á íslandi, hafa
Vestmannaeyjar orðið útundan og
áherslur og aðgerðir stjómmálflokka
gagnvart Vestmannaeyjum, hvað
hefur verið gert?
Binni í Vinnslustöðinni kom víða
við í fyrirlestri sínum þar sem hann
rakti sögu félagsins frá sameiningu
sex fyrirtækja í Vinnslustöð og ísfélag
árið 1992. Einnig skoðaði hann stöðu
sjávarútvegs í íslensku samfélagi þar
sem vægi greinarinnar hefur minnkað.
Tók hann hann KB-banka sem dæmi
en markaðsvirði hans er um 350
milljarðar króna sem er heldur meira
en sjávarútvegur á Islandi er metinn í
dag.
Um Vinnslustöðina sagði Binni að
hún hefði breyst úr vinnslufyrirtæki í
geymslufyrirtæki þar sem allt miðaðist
við að koma hráefninu í geymsluhæft
l'orm til frekari vinnslu annars staðar.
Með þessum hætti sagði hann að
félagið ætti fyrir afborgunum og
vöxtum og nýfjárfestingum og nú
þriðja árið í röð yrði greiddur arður til
hluthafa.
Fastir starfsmenn em íkringum 190
en fara upp í um 300 þegar mest er
umleikis eins og á loðnuvertíð.
Vinnslustöðin hefur einungis fjárfest í
aflaheimildum frá 1999. Frá árinu
2001 hefur hún fjárfest fyrir 2,6
milljarða og Isfélagið um 5,6
milljarða.
Um samfélagslegar skyldur
Vinnslustöðvarinnar sagði Binni að
hún væri fyrst og fremst að veita fólki
vinnu og því hefði fjölgað um 70 frá
það var fæst árið 2001. „Hluthafar em
20 en vom tíu og em 70% annaðhvort
búandi í Vestmannaeyjum eða tengdir
þeim. Það sama á við Isfélagið,
eigendurnir búa flestir hér og það em
forréttindi okkar sem hér búum.“
Dökka hliðin á þessu er minni
vinnsla á bolfiski í landi hjá Vinnslu-
stöðinni og aukinn útflutningur á
ferskum fiski í gámum. Árið 2001
vann Vinnslustöðin 75% af bolfiskafla
af eigin skipum í landi og 25% fóm út
í gámum. Þetta snerist við á síðasta
ári, 75% fóm út en íjórðungur var
unninn í landi og Binni sagði að
hlutfallið yrði það sama á þessu ári.
„Það athyglisverða er að við emm
að vinna fisk í land sem Verð-
lagsstofan hefur ekkert með að segja
og það er mitt álit að því kerfi sem hún
stendur fyrir sé beint gegn Vest-
mannaeyjum," sagði Binni.
Samgönguráðherra:
Þrettán til fjórtán
ferðir á viku allt
árið um kring
Sturla Böðvarsson, samgönguráð-
herra, tilkynnti á aðalfundi Samtaka
ferðaþjónustunnar í síðustu viku að
nýtt útboð á rekstri Heijólfs sé nú í
bígerð og að þar verði gert ráð fyrir
þrettán til fjórtán ferðum á viku allt
árið um kring.
Sagði hann það í samræmi við óskir
heimamanna. Eins kom fram að í
undirbúningi væri útboð á flugi til
jaðarbyggða. Amar Sigurmundsson,
formaður bæjarráðs, lýsti ánægju sinni
með þessa niðurstöðu og sagði nú
loksins vera komna fullnægjandi
áætlun fyrir skipið til næstu ára.
„Þetta er í samræmi við þær óskir
og þær kröfur sem við settum fram.
Ferðum skipsins mun fjölga um 100 á
ári og verða þá væntanlega um 700 á
milli lands og Eyja strax á næsta ári.
Þetta skiptir gríðarlega miklu máli
fyrir Eyjamenn að fá þessa fjölgun
enda hefiir sýnt sig að það hefur orðið
mikil aukning á farþega- og
bílaflutningum með fjölgun ferða
síðustu ár. Fólk er meira að ferðast og
þetta er hluti af nútíma þjónustu á 21.
öldinni."
Hann vildi lítið tjá sig um fyrir-
hugað útboð á flugi til jaðarbyggða.
„Bæjarráð mun að sjálfsögðu fylgjast
mjög náið með því máli. Utboð á
flugleiðinni Reykjavík - Vestmanna-
eyjar var ein af þeim hugmyndum
sem komu fram í skýrslu sam-
gönguhóps samgönguráðherra í mars
árið 2003. Eins er hægt að benda á að
nú er til dæmis flogið milli
Reykjavíkur og Homafjarðar sam-
kvæmt útboði þannig að þessi mál
verða skoðuð vandlega.“
Hærri orkureikningar:
Niðurgreiðsla getur fallið
niður þá daga sem
orkunotkun er mest
-Er það óháð heildarnotkun yfir árið
Margir hafa haft samband við blaðið
vegna hækkunar á orkureikningum
milli ára. Hvað varðar rafmagn til
heimilisnotkunar þá lækkaði það um
síðustu áramót en fastagjaldið
hækkaði verulega, það fer því eftir
notkun hve hækkunin er mikil.
Rafmagn til kyndingar á íbúðar-
húsnæði hækkaði um 6% til 7% og
hækkun á heita vatninu var 2%. Hærri
orkureikningar vegna rafkyndingar
geta því legið í hærra orkuverði, meiri
notkun og breyttu fyrirkomulagi
niðurgreiðslu, sem fellur niður fari
notkun yfir ákveðið hámark.
„Hjá fyrirtækjum sem kynda hús
sín með rafmagni hefur orkuverð
hækkað milli 25 og 30%. Nætur-
rafmagn, sem t.d. bakarí nota, hefur
hækkað verulega en dagtaxtinn er
óbreyttur, þetta gæti þýtt um 20%
hækkun orkuverðs á ári,“ sagði
Sigurjón Ingólfsson svæðisstjóri
Hitaveitu Suðumesja í Vestmanna-
eyjum.
Hann sagði að rafmagn til
heimilisnota hefði lækkað úr 8,35
krónum á kWh í 7,93 kr/kWh með
virðisaukaskatti, en fastagjaldið hefði
hækkað úr 3487 krónum í 8092
krónur. „Þetta bitnar á þeim sem nota
minnsta orku. Hækkun á heimili sem
notar 6000 kWh á ári er 3,9% en
2,7% ef notkunin er 7000 kWh.“
Sigurjón sagði að niðurgreiðsla á
rafkyndingu miðaðist við 35.000 kWh
á ári sem er deilt niður á 365 daga.
„Það verður til þess að þá daga sem
farið er yfir þessa viðmiðunartölu
fellur niðurgreiðslan niður. Þetta gæti
skýrt hærri reikninga hjá fólki þegar
lesið var af í mars en þá kom inn
notkun yfir kaldasta tíma ársins. Þá
skiptir engu máli þó ársnotkunin sé
langt undir þessum 35.000 kWh. Ég
hef verið að benda á þetta því það er
réttlætismál að miða við heildar-
notkunina,“ sagði Siguijón að lokum.
Ohöpp í
hálku
Af umferðarmálum er það að frétta að
einn ökumaður fékk sekt fyrir að
leggja öfugt miðað við akstursstefnu.
Þá var lögreglu tilkynnt um tvö
umferðaróhöpp í sl. viku sem rekja
má til hálku sem var á götum
bæjarins.
Fyrra óhappið átti sér stað
miðvikudaginn í síðustu viku á
Strandvegi en ökumaður bifreiðar
sem ekið var vestur Strandveg missti
stjóm á bifreiðinni í hálku með þeim
afleiðingum að hún lenti á kyrrstæðri
bifreið.
Seinna óhappið átti sér stað síðasta
fimmtudag á gatnamótum Strand-
vegar og Hlíðarvegar. Þama hafði
bifreið, sem ekið var norður Hlíðar-
veg, mnnið inn á gatnamótin sökum
hálku og lenti á bifreið sem ekið var
vestur Strandveg. Engin slys urðu á
fólki í þessum tveimur óhöppum en
ökutækin eiu töluvert skemmd.
Viðhaldsdagar
Herjólfs ákveðnir
Bæjarráð tók fyrir erindi frá Sam-
skipum vegna m/s Herjólfs þar sem
farið á leit að Vestmannaeyjabær
samþykki að ferðir Herjólfs milli
lands og Eyja falli niður daganna, 19.
og 27. apríl og 7. og 21. september
vegna viðhalds. Bæjarráð samþykkti
erindið en lagði áherslu á að
rekstraraðilar auglýsi vel og tímanlega
umsamdar frátafir skipsins sem em
tilkomnar vegna reglulegs viðhald
þess.
HERjÓLFUR