Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 14.04.2005, Blaðsíða 12

Fréttir - Eyjafréttir - 14.04.2005, Blaðsíða 12
12 Fréttir / Fimmtudagur 14. apríl 2005 Þau fermast á laugardaginn: Andrea Jóhannsdóttir Hólagötu 23, Aníta Jóhannsdóttir Hólagötu 23, Anton Örn Eggertsson Fjólugötu 13, Arnar Sigurðsson Heiðarvegi 35, Auður Osk Hlynsdóttir Brimhólahraut 21, Atli Freyr Guðmundsson Smáragötu 10, Finar Gauti Ólafsson Hrauntúni 47, Elísa Viðarsdóttir Strembugötu 8, Ingi Þór Þórarinsson Vallargötu 4a, Ingunn Ósk Magnúsdóttir Brimhólabraut 23, Páll Jóhann Sigurjónsson Áshamri 59, 3hv, Poula María Guðmundsdóttir Brckastíg 5a, Saga Huld Hclgadóttir Túngötu 16, Sindri Georgsson Búhamri 76 og Þóra Sigurjónsdóttir Miðstræti 25. Þau fermast á sunnudaginn: Bjarni Aron Ármannsson Áshamri 56, Breki Marinósson Búastaðabraut 9, Brynjar Karl Óskarsson Foldahrauni 24, Dagmar Ósk Héðinsdóttir Faxastíg 18, Danícl Andri Kristinsson Helgafellsbraut 18, Guðmundur Jón Magnússon Kirkjubæjarbraut 5, Kristrún Ósk Hlynsdóttir Höfðavegi 41, Margrét Steinunn Jónsdóttir Faxastíg 49 og Sara Heimisdóttir Faxastíg 45. Ollum tilboðum hafnað í sorpeyðingu -Einar og Guðjón fengu sorphirðuna Bæjarráð samþykkti á fundi sínum á mánudag að hafna öllum tilboðum sem bárust í sorpeyðingu. Þrír buðu í verkið og voru öll tilboðin yfir kostn- aðaráætlun. Núverandi rekstraraðilar, Gáma- þjónusta Vestmannaeyja ehf. var með lægsta tilboðið, upp á 138,4 milljónir króna yfir þriggja ára tímabil. íslenska Gámafélagið var tæpri milljón króna hærri með tilboð upp á 139,2 milljónir en langhæsta tilboðið kom frá Gámaþjónustunni hf., upp á 166,1 milljónir. Öllum tilboðunum var hafnað og var Ríkiskaupum falið að tilkynna bjóðendum um það. Bæjarráð samþykkti aftur á móti að taka tilboði Einars og Guðjóns sf. í sorphirðu en tilboð þeirra var talsvert lægra en önnur tilboð sem bárust í verkið. Einar og Guðjón sf. buðu 39,3 milljónir króna en næstlægsta tilboðið var frá Gámaþjónustu Vestmannaeyja ehf. upp á 58,3 milljónir. Gáma- þjónustan hf. bauð einnig í verkið og var með hæsta tilboðið, 59,9 milljónir. Er tilboð Einars og Guðjóns undir kostnaðaráætlun bæjarins. Bæjarráð samþykkti einnig á fund- inum að fela bæjarstjóra að taka upp viðræður við núverandi rekstraraðila sorpeyðingarstöðvarinnar, Gámaþjón- ustu Vestmannaeyja ehf. um áfram- haldandi samstarf. Tilboðin ekki ásættanleg Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri, sagði að lægsta tilboðið í sorphirðuna hafi verið 92,1% af kostnaðaráætlun og taldi bæjarráð það ásættanlegt miðað við áætlanir og þess vegna verði gengið til samninga við Einar og Guðjón sf. Um sorpeyðinguna sagði Bergur að niðurstaðan hafi verið sú að ekkert af þeim tilboðum sem bárust hafi verið ásættanlegt. „Lægsta tilboðið var 34,9% yfir kostnaðaráætlun og við teljum að munurinn sé það mikill að ekki sé annað í stöðunni en að hafna öllum tilboðum." Aðspurður um næstu skref sagði Bergur að það væri einfaldlega að leysa þessi mál. Hann sagði einnig að ekki hafi verið rætt um málið á þeim forsendum að fara aftur í útboð. Berg var falið að ræða við nú- verandi rekstraraðila, Gámaþjónustu Vestmannaeyja, og er það næsta skref í málinu. ,Jif menn telja niðurstöðuna ekki ásættanlega úr þeim viðræðum verðum við að leita leiða til að gera þetta með ódýrari hætti,“ sagði hann en taldi ekki fýsilegan kost í stöðunni að bærinn taki reksturinn að sér. Deiliskipulag vegna nýs Sóla: Tekið tillit til athugasemda nágrannanna Tvær athugasemdir bárust vegna deiliskipulags á Sólalóðinni. Annars vegar var það Gunnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofn- unar Vestmannaeyja, og hins vegar Hjalti Kristjánsson, íbúi að Helga- fellsbraut 20, sem gerðu athuga- semdir. Kemur fram í bréfi Gunnars að lóð Heilbrigðisstofnunarinnar er ekki skilgreind í tillögunni og virðast engin gögn vera til um hve stór lóð stofn- unarinnar er. Nauðsynlegt er, áður en nýtt deiliskipulag er samþykkt, að skilgreina lóðina sem virðist hafa láðst er rekstur stofnunarinnar fluttist frá sveitarfélagi til ríkisins. Var skipu- lags- og byggingafulltrúa falið að útbúa lóðarleigusamning fyrir Heil- brigðisstofnun Vestmannaeyja í sam- ráði við forstöðumann Heilbrigðis- stofnunar sem miðar að því að stofnunin hafi stækkunarmöguleika. Hin athugasemd Gunnars var vegna bflastæða. I upphaflegri tillögu var gert ráð fyrir að bflastæði milli nýs leikskóla og Heilbrigðis- stofnunarinnar verði sameiginleg. Segir Gunnar að þetta geti verið bagalegt því í sumum tilfellum sé þama aðkoma sjúkraflutningabíla. sérstaklega ef unt stærri slys er að ræða. Heppilegra væri að aðgreina þessi bflastæði. Var fallist á ábend- ingu hans um bflastæðin og segir að í greinargerð deiliskipulagsins sé gert ráð fyrir að 14 bflastæði tilheyri leikskólanum. Eru þau við norður- lóðamörk leikskólalóðarinnar og yrðu merkt samhliða öðrum bflastæðum á skipulagssvæðinu. Hjalti Kristjánsson eigandi húss númer 20 við Helgafellsbraut sendi einnig inn athugasemdir þar sem hann óskar eftir því að haft verði samráð við hann um grindverk austan megin á nýrri lóð Sóla, þar sem hún snúi að Helgafellsbraut 20. Velti hann þeirri spumingu einnig upp hvort þessar framkvæmdir úti- lokuðu frekari stækkun Heilbrigðis- stofnunar. Óskaði hann einnig eftir að tekið yrði tillit til nágranna varðandi hávaða við framkvæmdimar. Sagði hann fólk í nágrenni við sig svo og sjúklinga á Heilbrigðisstofnun orðna langþreytta á hávaðasömum framkvæmdum við stofnunina. Vonar hann að það verði haft í huga um helgar og eldsnemma á morgnana, til þess að fólk fái svefnfrið. Benti hann á að geðlæknar væm sammála um að svefn sé það mikilvægasta til að viðhalda geðheilsu fólks. Umhverfis- og skipulagsráð féllst á að haft yrði samráð við Hjalta varðandi grindverkið.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.