Fréttir - Eyjafréttir - 14.04.2005, Blaðsíða 7
Fréttir / Fimmtudagur 14. aprfl 2005
7
Nýtt fyrirtæki
í Eyjum
Föstudaginn 15 apríl opnar Heilsuver.
ehf, miðstöð heilbrigðis og næringar í
Vestmannaeyjum.
Heilsuver er staðsett að Ulugagötu
10 n.h. Heilsuver býður upp á
heilbrigðis- og næringarráðgjöf, nudd,
cranio sacral therapi, einkaþjálfun í
tækjum, rope yoga og box. Heilsuver
er opið öllum sem vilja bæta heilsu og
vellíðan og taka sig á, varðandi heil-
brigði og næringu. Böm, unglingar og
fullorðnir geta nýtt sér það sem
Heilsuver hefur upp á að bjóða ásamt
fyrirtækjum, félagssamtökum og
fleirum.
Opið hús verður á föstudaginn milli
klukkan 15.00 og 18.00 og em allir
áhugasamir og aðrir velunnarar
velkomnir í heimsókn. Heitt verður á
könnunni.
Heilsuver, ehf. Miðstöð heilbrigðis
og næringar. Illugagötu 10 n.h. sími
481-3334 og 843-9777.
Fréttatilkynning.
Nýjar
vinnureglur
Andrés Sigurvinsson framkvæmda-
stjóri menningar- og tómstundarsviðs
vill minna á nýjar vinnureglur
varðandi styrki til félagasamtaka eins
og Leikfélags Vestmannaeyja,
KFUM &K og kóra en nýverið var
ferlinu breytt innan bæjarkerfisins.
Nú em styrkir veittir tvisvar á ári,
annars vegar þarf að vera búið að
sækja um fyrir lok mars og síðan í
nóvember.
Verið er að vinna samninga fyrir
félagasamtök þar sem þjónusta þeirra
er skilgreind nákvæmlega.
Ingibjörg Sólrún heimsótti stuðningsmenn sína í Vestmannaeyjum:
Lúðvík Bergvinsson á möguleika á
varaformanninum verði hún formaður
-Landsfundurinn hefur síðasta orðið og þar verður tekið tillit til kynja- og landsbyggðarsjónarmiða
Um þrjátfu manns mættu á fund
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur með
stuðningsmönnum sínum á föstu-
daginn. Þar var komið að ýmsu sem
snýr að formannskjöri Samfylk-
ingarinnar þar sem Ingibjörg etur
kappi við Össur Skarphéðinsson
sitjandi formann. Einnig var rætt um
landsmálin og stöðuna í stjómmálum
almennt. Þegar hún var spurð að því
hvort Lúðvík Bergvinsson væri lík-
legur varformaður, gerði hún hvorki
að játa né neita, sagði að þar yrði að
gæta ýmissa sjónarmiða og sagði að
það færi eftir niðurstöðunni í for-
mannskjörinu. Þannig teldi hún ekki
ólfldegt að ef hún yrði kjörin formaður
myndu fiokksmenn líta til þess að
kjósa karlmann af landsbyggðinni sem
varaformann. Það er ekki einfalt að
kortleggja stuðning við frambjóðendur
í Eyjum en þó virðist Ingibjörg hafa
vinninginn. Alla vega er stuðningsfólk
hennar sem mætti á fundinn ekki í
vafa hvar stuðningurinn liggur,
fullvissir um að þar sé á ferðinni næsti
forsætisráðherra Islands.
Með Ingibjörgu vom Hjörleifur
Sveinbjömsson, eiginmaður hennar,
Ami Gunnarsson fynum alþingis-
maður og Kjartan Valgarðsson sem
starfar að framboðinu. Ami gerði
grein fyrir framboðinu og vinnunni
framundan. Kom fram hjá honum
bjartsýni á gott gengi Ingibjargar en
hann bað þó fólk að halda vöku sinni í
þeirri baráttu sem framundan er.
Ingibjörg tók síðan við og hafi í
hugskoti hennar leynst efi um góðan
stuðning í Eyjum hefur hann horfið
eins og dögg fyrir sólu á fundinum.
Ingibjörg fór yfir framboðið og
stöðuna í stjómmálum hér á landi. Þar
var komið inn á stjómun fiskveiða,
landsbyggð og höfuðborg, Reykja-
víkurflugvöll. Það kom strax fram að
hún ætlar sér alla leið, sem eiu
einkunnarorð framboðs hennar til
formanns Samfylkingarinnar. Hún
sagði mikinn áhuga á framboðinu og
ótrúlegasta fólk hefði lýst yfir
stuðningi við sig.
Þegar hún var spurð um möguleika
Lúðvíks Bergvinssonar á að verða
varaformaður Samfylkingarinnar á
komandi landsfundi sagði hún að það
yrði fundarins að skera úr um það. „Eg
geri ráð fyrir að fólk velji eftir því
hvort okkar verður formaður. Fólk vill
hafa blöndu þar sem yrðu karl og kona
og annað kæmi af landsbyggðinni,"
sagði Ingibjörg. „Nái ég kjöri geri ég
ráð fyrir því að það vegi þungt að
varaformaðurinn sé karl og komi af
SAMAN í slaginn, Hjörleifur og Ingibjörg með Maríu Friðriksdóttur móður Lúðvíks og Magneu systur hans.
Þegar Hjörleifur og Ingibjörg voru að byrja að skjóta sér saman var hann á vertíð á Katrínu VE. Þá sendi
Ingibjörg honum póstkort, stflað á Hjörleif, Katrínu VE og komst það til skila.
Um 30 manns sátu fundinn og allir styðja Ingibjörgu.
landsbyggðinni. 1 því ljósi ætti Lúðvík
möguleika en það verða fleiri um
hituna. Þó auðvitað geti ég haft
einhver áhrif hef ég lítið um þetta að
segja. Það skiptir líka miklu máli að
formaður og varaformaður geti unnið
þétt saman til að skila flokknum
forystu sem virkar.“
Um landsbyggðina sagði Ingibjörg
að hana væri ekki hægt að setja undir
einn hatt, hvert svæði hefði sérstöðu.
Nefndi hún í því sambandi Háskólann
á Akureyri og framkvæmdimar á
Austurlandi. „Mín skoðun er sú, ekki
síst eftir stækkun kjördæmanna, að
styrkja þurfi sveitarstjómarstigið.
Sveitarfélögin þurfa að fá fleiri
verkefni og fjármagn til að standa
undir þeim. Eg vil líka sjá meiri
háskólastarfsemi úti á landi. Þeim
fjölgar alltaf sem fara í háskólanám og
í kringum háskóla verða til fleiri
störf,“ sagði Ingibjörg sem er hlynnt
því að landið verði gert að einu kjör-
dæmi.
Um Reykjavíkurflugvöll sagði
Ingibjörg að ljóst væri að þar gerðist
ekkert næstu 11 árin vegna aðal-
skipulags Reykjavíkur og samnings
ríkis og borgar. „Okkur liggur því
ekkert á og eigum ekki að ræða þessi
mál eins og það sé einhver vá fyrir
dymm. Annars hefur flugvöllurinn
liðið fyrir það að ríkið lét hann og
mannvirki honum tengd drabbast
niður áratugum saman. I kosningum
um flugvöllinn var meirihluti fyrir því
að láta hann fara. Vilji samgöngu-
yfirvöld koma fram með tillögur í
flugvallarmálinu og freista þess að
skapa sátt um flugvallarrekstur í
einhverri mynd eftir 2016 verður að
kjósa aftur því það er ekki hægt að
hundsa þann vilja sem kom fram hjá
Reykvíkingum í kosningunum um
flugvöllinn,1' sagð' Ingibjörg.
Um það hvort hún yrði ekki fyrst og
fremst talsmaður Rey kjavíkur sagði
Ingibjörg að hún hljóti cð kappkosta
að gæta hagsmuna þeirra sem velja
hana til starfa hveiju sinni. „Og hafi ég
unnið vel fyrir Reykjavík mun ég gera
það lflca fyrir landið allt sem þing-
maður. Það á ekki að hafa það á móti
fólki ef það vinnur vinnuna sína vel í
þágu sinna umbjóðenda.“
Góður andi var á fundinum og ef
marka má þann hóp sem þarna var
mættur á Ingibjörg góðan stuðning í
Vestmannaeyjum. En fróðlegt verður
að sjá hverjir mæta ef og þegar Össur
Skarphéðinsson vitjar síns fólks í
Vestmannaeyjum.
Sigurgeir fékk
einn leyfi fyrir
skilti
Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs
miðvikudaginn 6. apríl voru teknar
fyrir umsóknir um uppsetningu skilta
upp við Eldfell. Sigurgeir Scheving
hefur verið með skilti á staðnum
undanfarin ár en nú brá svo við að
fleiri vildu setja upp skilti á sama stað.
Alls bárust tjórar umsóknir.
Málinu var frestað á fyrri fundi og
sérstök nefnd skipuð til að fara yfir
það. Á fundinum á miðvikudag var
svo ákveðið að veita Sigurgeir leyfi en
hafna hinum umsóknunum.
Formaður ráðsins, Stefán Jónasson
og varaformaðurinn Drífa Kristjáns-
dóttir lögðu til að Sigurgeir yrði
heimilt að setja upp skilti á
umræddum stað og vísað var til
undantekningarákvæðis í reglum um
skilti. Hámarksstærð skiltis má vera
einn metri á hæð og einn og hálfur
metri á breidd og er leyfistími frá 1.
maí til 30. september. Fjórir greiddu
atkvæði með þessari tillögu en tveir
sátu hjá.
Sigurmundur Einarsson, Jóhann
Jónsson og Flugfélag Vestmannaeyja
sóttu einnig um að setja upp skilti á
staðnum en var öllum hafnað þar sem
umsóknir þeirra uppfyllti ekki grein
4.1.1. í reglugerð um skilti í Vest-
mannaeyjum.
JlieYJAFERÐIR
Closu-up: lceland