Fréttir - Eyjafréttir - 14.04.2005, Síða 16
VH74? hni.. *■
~ K //'«■* im mi !'
U a ■1 m • ■i - i rmrp:
BORHOLAN er við endann á gossprungunni sem opnaðist 1973.
Borunum er lokið - Borað var niður á 2277 metra
Þetta er ekki háhitahola
-Mælingar eiga eftir að leiða í ljós hvað hún gefur mikla orku - Mikilvægar
upplýsingar fengust sem gætu nýst við undirbúning jarðganga
Jarðborun, er hófst 5. mars við
suðurenda gossprungunnar sem
opnaðist í gosinu 1973, er lokið en
upphaflega var áætlað að verkið
tæki sex til átta vikur.
Borðað var niður á 2277 metra og
nú er ljóst að þetta er ekki háhita-
hola en ekki liggur fyrir hversu
mikla orku hún gefur.
Ivar Atlason, hjá Hitaveitu
Suðurnesja, segir verkið hafa
gengið mjög vel en nú þurfi að
blása holuna út til að opna æðar,
hreinsa hana og mæla.
„Það þarf að kortleggja æðar og
fara fram dæluprófun til þess að fá
út hvað holan gefur. Það tekur
nokkrar vikur og þá getur við sagt
til um hversu mikil orka kemur út úr
þessu."
ívar segir þetta ekki háhitaholu og
vissulega séu það nokkur vonbrigði
en á 2000 metra dýpi er berghiti
meira en 100 gráður.
Jarðfræðingar hafa fengið gríðar-
legar upplýsingar um jarðlög og þar
af leiðandi vitum við miklu meira
um svæðið og ekki útilokað að það
verið borað aftur í framtíðinni.
Þetta er lághitahola og verður því
varmaorkan, sem holan gefur, nýtt
fyrir hitaveituna. Það skiptir
verulegu máli hvað kemur út úr
mælingum, því meiri varmaorka því
betra. Miklu skiptir að fá vitneskju
um jarðlög sem jarðfræðingar fara
yfir til að finna út hvaða möguleika
við höfum í framtíðinni. Þessi vit-
neskja nýtist líka í samband við
undirbúning að jarðgöngum.
Jarðsýni voru tekin á 2 metra milli-
bili (1138 sýni) og það ætti að geta
nýst líka í þeim undirbúningi.
Bergur og Villa í Vilberg-Kökuhúsi:
Ætla að opna bakarí á Selfossi
Bergur Sigmundsson bakari og
fjöldskylda ætla að opna bakarí og
konditorí á Selfossi á næstunni.
Búið að taka húsnæði á leigu og
verður þjónustan með svipuðu sniði
og í Vestmannaeyjum.
Bergur á og rekur Vilberg-Köku-
hús í Vestmannaeyjum ásamt fjöl-
skyldu sinnþ Vilborgu Gísladóttur
og syninum Ivari og nú mun annar
sonurinn, Sturla, ganga til liðs við
þau og stjórna rekstrinum á Sel-
fossi.
„Ég er búinn að ganga með þennan
draum í maganum í átta eða níu ár
og var langt kominn með að hrinda
þessu í framkvæntd fyrir þremur
eða fjórum árum. Þá hætti ég við en
nú er búið að ganga frá öllu og
verður ekki aftur snúið,“ sagði
Bergur.
Hann sagðist hafa fengið gott hús-
næði á góðum stað og þarna væri
tækifæri sem ekki væri hægt að
sleppa. „Það var annað hvort að
hrökkva eða stökkva og við
ákváðum að slá til. Við verðum til í
húsa í miðjum Selfossbæ, Tryggva-
götu 40 sem er rétt hjá Fjölbrauta-
skólanum."
Vilberg-Kökuhús er hefðbundið
bakarí og kondítorí og segir Bergur
að reksturinn á Selfossi verði með
svipuðum hætti nema hvað borðin
verða fleiri.
„Hugmyndin er að höfuðstöðv-
amar verði héma og allt sem bakað
verður á Selfossi verður unnið hér
og sent frosið tvisvar í viku. Með
þessu fæst betri nýting á bæði
tækjum og starfsfólki hér. Við erum
mjög bjartsýn því við teljum okkur
vera með mjög góða vöru og Ar-
borgarsvæðið þenst út sem aldrei
fyrr,“ sagði Bergur.
Yfir sumartímann starfa 18 manns
hjá fyrirtækinu í Vestmannaeyjum
og gerir Bergur ráð fyrir að fjölga
þeim um fjögur og sjö verða til að
byrja með á Selfossi.
Hefur ekki séð meiri fiskgengd
Mikil veiði hefur verið í kantinum
suðaustur af Eyjum og hefur ekki
verið eins góð síðustu þrjátíu til
fjörutíu ár að sögn Bergvins
Óddssonar á Glófaxa VE.
Tók hann upp netin á þriðjudag
enda búinn með kvótann. Hann
segist aldrei hafa séð eins mikinn
fisk í kantinum og núna og talar
um óhemjugöngu í því sambandi í
viðtali við Morgunblaðið. Hann
vill auka kvótann enda geti það
ekki talist eðlilegt að vertíðin sé
búin um miðjan aprfl eins og nú er
raunin. „Þetta er stór og góður
þorskur, fimm til sjö kíló, og ef
það hefur einhvern tímann verið
ástæða til að bæta við kvótann er
það núna. Ég hélt að þetta
fiskveiðistjórnunarkerfi hefði
verið sett á til að vemda fiskinn en
heimildirnar virðast bara mega
fara niður á við. Það er aldrei talað
við menn sem stunda þetta og þeir
vita þetta alltaf betur sitjandi á bak
við skrifborð í Reykjavík. í venju-
legu ári hefði kvótinn dugað langt
fram í maí og maður er alltaf með
sama fjölda af netum en ég hef
aldrei séð annað eins af fiski og
núna og það er hundfúlt að neyðast
til að hætta.“
LSHTERHS
VEITINGAHÚS
BÁRUSTÍG 11 -V «4 ^
SÍMI 481 3393 \XJV7
Þess virði.
pANcy
Snyrtistofa A verslun
Skólavegi 6
s. 481-3330
l 5MA7I RICC
slun í^dfaraleió!
UESTUBUEGI18
UESTMflNNAEYJUM
zazz
VIKUTILB0Ð
14. - 20. apríl
Mills kavíar 190 gr
Hunts tómarsósa squzze
Orville Popp 6 pk
Tilda rizzaz örb hrísgrjón
Maarud flögur 300 gr
Murry sykurloust kex
Dajm /Snickers tertur
Freschette XXL pizzur
4? vörur ó tilboði
SS Rauðvíns helgarsteik
SS kryddl. grísakótelettur
SS. kryddl. lærissneiðar
F&F Gordon Bleu
Verð Nú Áður
196,-
99,-
224,-
216,-
269,-
148,-
598,-
598,-
259,-
138,-
299,-
288,-
394,-
198,-
798,-
798,-
1298,- 1579,- kr/kg
1548,- 1159,- kr/kg
1498,- 1998,- kr/kg
314,- 419,-