Reykjavík - 15.10.2011, Síða 4
4 15. október 2011
Afbrotum á höfuðborgarsvæð inu hefur fækkað á undanförnum árum.
Sam kvæmt tölum frá lögreglunni
á höfuð borgarsvæðinu yfir afbrot
í löggæsluumdæminu í byrjun
októ ber, er staðan sú að hegningar
lagabrot eru færri í hverjum einasta
mánuði á árinu til þessa, en voru á
síðasta ári og munar þar verulega
yfir sumarmánuðina eins og sjá má
á þessari tölfræði frá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu.
„Staða löggæslumála er almennt
góð á höfuðborgarsvæðinu,“ segir
Stefán Eiríksson lögreglustjóri í svari
til Reykjavíkur. „Til dæmis hefur
afbrotum fækkað verulega á undan
förnum árum. Þetta sjáum við skýrt
í tölum okkar um fjölda inn brota,
þjófnaða ofbeldisbrota og fleira, en
þær eru birtar opinberlega mánaðar
lega á vef lögreglunnar.“
Borgarar í Reykjavík hafa oft á
orði að glæpum fjölgi og að þeir
séu orðnir alvarlegri. Þegar litið er
á tölurnar frá lögreglunni kemur í
ljós að ofbeldisbrotum fækkar einnig
verulega á milli ára.
Þegar fjöldi kynferðisbrota er
skoðaður kemur í ljós að mars
mánuður síðastliðinn sker sig úr og
þau eru fleiri í maí og júlí á þessu ári
en á sama tíma árið 2010. Í öðrum
mánuðum fækkar kynferðisbrotum
sem kærð voru til lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu á milli ára.
Sérstök áhersla lögð á að
fækka innbrotum
„Við höfum lagt sérstaka áherslu
á brotaflokka á borð við innbrot
og náð þar góðum árangri,“ segir
lög reglustjórinn og bendir á tölur
fyrir síðastliðin þrjú ár. Þar má sjá
greinilega fækkun í þessum brota
flokki.
Oftast brotist inn á heimili
Þegar litið er á hvar innbrotin voru
framin á síðasta ári og síðan á þessu,
sést að langalgengast var að brotist
væri inn á heimili, síðan í bíla og svo
fyrirtæki.
Þegar tölur milli áranna 2010 og
það sem liðið er af árinu 2011 um
eignaspjöll eru bornar saman kemur
í ljós að veruleg fækkun hefur orðið
á slíkum brotum.
Fjárframlög aukin til
lögreglunnar á höfuð
borgarsvæðinu milli ára
Eins og fram kemur á forsíðu
Reykja víkur hefur niðurskurður á
fjárframlögum ríkisins til lög
reglunn ar á höfuðborgarsvæðinu
verið verulegur undanfarin ár. Engu
að síður hefur lögreglunni tekist
að draga úr afbrotafjölda eins og
að framan er rakið. „Á sama tíma
höfum við þurft að skera niður um
tugi prósenta á liðnum þremur til
fjórum árum,“ segir lögreglustjóri
höfuðborgarsvæðisins. „Því höfum
við mætt með skipulagsbreytingum,
einhverjum verkefnum höfum við
einfaldlega hætt eins og afgreiðslu og
útgáfu ökuskírteina og vegabréfa og
öðrum raðað aftar í forgangsröðina.
Þá njótum við þess að embættin á
höfuðborgarsvæðinu voru sameinuð
árið 2007 og sú fjárhagslega hagræð
ing sem í því fólst hefur komið
okkur til góða. Þessi góði árangur,
þ.e. bæði faglegur og fjárhagslegur
rekstur embættisins, er verk öflugra
starfs manna og stjórnenda hjá
embættinu, sem tekist hafa á við
þessi verkefni og fjölmörg önnur
af fagmennsku og metnaði,“ segir
Stefán Eiríksson.
Samkvæmt fjárlagafrumvarpi
ársins 2012 er gert ráð fyrir að alls
verði fjárframlög til lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu 3.329 milljónir
króna, en samkvæmt fjárlögum
yfir standandi árs fékk embættið
rúmlega 3.113 milljónir króna.
Hækkunin sem gert er ráð fyrir í
frumvarpi næsta árs, er því 6.9%
miðað við fjárlög ársins 2011.
Afbrotum fækkAr á
höfuðborgArsvæðinu
Einkum hefur góður árangur náðst í fækkun innbrota,
enda hefur lögreglan lagt áherslu á þann flokk
Fjöldi hegningarlagabrota á höfuðborgarsvæðinu
Fjöldi ofbeldisbrota á höfuðborgarsvæðinu
Fjöldi kynferðisbrota á höfuðborgarsvæðinu
Fjöldi innbrota á höfuðborgarsvæðinu
Fjöldi eignaspjalla á höfuðborgarsvæðinuInnbrot á höfuðborgarsvæðinu, tegund vettvangs
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
Fjöldi hegningarlagabrota á
höfuðborgarsvæðinu
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
Fjöldi ofbeldisbrota (217 og
281) á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
Fjöldi kynferðisbrota á
höfuðborgarsvæðinu
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
Fjöldi innbrota á höfuð-
borgarsvæðinu 2009-2011
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
Fjöldi eignaspjalla á
höfuðborgarsvæðinu
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
Innbrot á höfuð- orgarsvæðinu
– tegund vettvangs