Reykjavík - 15.10.2011, Qupperneq 6
15. október 2011
2 tsk malað cumin
2 tsk malað kóríander
2 tsk garam masala
1 tsk chilli duft
1/2 tsk turmerik
800 gr lambahakk
6 hvítlauksgeirar
þumalputta stærð af engifer
200 ml hrein jógúrt eða ab mjólk
2 msk matarolía
1 stór laukur
1/2 dl rjómi
4 msk malaðar möndlur
1 tsk sykur
1 og hálfur bolli heitt vatn
1/2 bolli ca hrein jógúrt, til að hella
yfir í restina
Setjið þurrkryddin saman í skál,
bætið síðan hakki, hvítlauk, engifer,
1 msk jógúrt og ca helming af
krydd unum (í skálinni) út í og
blandið vel saman með hönd un um,
gott að setja hveiti fyrst á hendurnar.
Takið ca 1 msk af hakk blöndunni og
hnoðið í bollur (Kofta).
Hitið olíuna á stórri pönnu,
létt steikið laukinn og setjið restina
af kryddunum út í. Látið malla
í smástund og hrærið í. Restin
af jógúrtinni, rjóminn, muldu
möndlurnar, sykurinn og vatnið fer
þá út í og látið sjóða í 5 mín, hrærið
í á meðan.
Setjið að síðustu kofta bollurnar
út í og sjóðið í 10 mín undir loki og
sjóðið í aðrar 10 mín án loks. Hellið
hreinni jógúrt út á í restina og
jafnvel cumin fræjum.
Borið fram með hrísgrjónum og
naan brauði ef vill.
6
Borgarráð Reykjavíkur sam þykkti
tillögu Jóns Gnarr borgarstjóra að
ráða Ellý Katrínu Guðmundsdóttur
í em bætti borgarritara, en hún
var áður sviðsstjóri umhverfis og
sam göngusviðs Reykjavíkur. Alls
bárust 28 umsóknir um starfið, en
6 umsækjedur drógu umsóknir
sínar til baka áður en greint var frá
nöfnum umsækjenda. Ráðgjafar
frá Capacent höfðu umsjón með
ráðningar ferlinu.
Hinn nýi borgarritari er lögfræð
ingur að mennt, með meistarapróf
í umhverfis og alþjóðaréttir frá
háskólanum í Wisconsin í Banda
ríkjunum. Meðal fyrri vinnustað
Ellýjar Katrínar má nefna Einka leyfa
stofu, Alþjóðabankann í Washington,
Umhverfis og heil brigðis stofu
Reykja víkur og Um hverfis stofnun
þar sem hún var forstjóri.
GUM Original White
hreinsar burt gamla bletti og
fyrirbyggir nýja bletti. Verndar
tennurnar um leið
og öflug hreinsun á
sér stað.
Fæst í flestum apótekum, Fjarðarkaup og Hagkaup.
Viltu vera sætari?
Með hvítari tennur og fallegra bros
Fr
um
Andrea Guðmundsdóttir mat
gæðingur í Listaháskóla Íslands
býður lesendum Reykjavíkur
upp á forvitnilegar uppskriftir
frá öllum heimshornum.
mAtur
Lamba Kofta
frá Kashmir
indland
Ellý Katrín Guðmundsdóttir
ráðin borgarritari
ellý katrín Guðmundsdóttir
borgarritari
Mikið úrval af skartgripaefni, garni, fatalituM,
glerlituM, postulínslituM, skrappvöruM.
SkólavöRðuSTíg 12 – Smiðjuvegi 5 – liTiRogfonduR.iS
verslun fyrir
skapandi fólk á
ölluM aldri