Harmoníkan - 01.10.1986, Page 4

Harmoníkan - 01.10.1986, Page 4
BRAGI HLÍÐBERG Fyrir skömmu gekk ég á fund Braga Hlíðberg með það fyrir augum að fræðast um tildrög af því er hann hóf harmonikuleik og í stórum dráttum yfirlit um feril hans á því sviði gegnum árin hérlendis sem erlendis. Bragi Hlíðberg er landskunnur harmonikuleikari og því fannst stjórnendum blaðsins ,,HARMONIKAN“ vera til- valið að viðtal við hann kæmi í fyrsta blaðinu. — Ég spyr því Braga fyrst eins og íslendinga er vani, hvar ert þú fæddur? ,,Ég er fæddur í Reykjavík á Bragagötu, árið 1923.“ — Hverjir voru foreldrar þínir? ,,Faðir minn var Jón Hlíðberg, húsgagnasmiður og móðir mín, Kristín Stefánsdóttir Hlíðberg.“ Því næst inni ég Braga eftir hvenær að því kom að hann fékk áhuga á harmonikunni. Hefur hann nú þá frásögn: Bragi Hlíðberg. Harmonikuhljómleikar EFNISSKRÁ: P. Frosini: Vieni Amore. P. Deiro: Dixie Shoke. O. F.. Akre: Schollish Acrobolic. C. S. Morrison: Medilolion P. Deiro: Elviro Chopin: C MinorPrelude.Op. 26No20 HLE. G. Toronfolo: PloYful. Lully: Fldgomlo Isofold. G. Verdi: »Rigolello-Qvorlel« P. Frosini: Hol Fingers. ,,Ég byrja að fikta við harmoniku sem faðir minn átti 10 ára gamall. Hann hafði leikið all mikið á sínum yngri árum, átti þegar þetta gerðist fjögurra raða ,,LANKA“ harmoniku, þýska með norkum gripum. Ég var í sveit þetta sumar og hefst handa er ég kom þaðan. Þá var lag í tísku sem tók hug minn allan og hætti ekki fyrr en öll lag- línan var komin. Þetta var vals frá Skandinavíu og hét familiju valsinn. Hann var mjög vinsæll þá og var á allra vörum, einnig með söngtexta. Það kveikti í mér að eldri bróðir minn, Stefán, var byrj- aður að spila er ég kom úr sveitinni. Hann fór í har- moníkutíma til að læra nótur sem ég síðan lærði með því að kíkja á hjá honum, það hjálpaði til að leika lög eftir nótum. Síðan var ég fenginn til að leika á árshátíð hjá ,,fé- lagi harmonikuleikara“ sem haldin var í Oddfellósalnum. Þá var ég það lítill að ég sást ekki upp á senu nema vera stillt upp á flygilinn og var breiddur undir mig hvítur borð- dúkur. Þetta varð til þess að félagið gaf mér áskrift að tím- um í nótnalestri hjá Sigurði heitnum Briem, fiðluleikara. Þess má geta að formaður „félags harmonikuleikar“, Hafsteinn Ólafsson, var aðalhvatamaður þess að ég komst í tíma. Sigurður kenndi aðallega á fiðlu og mandó- lín en hafði þó tekið nokkra menn í tíma á harmoniku, þótt hann vissi ekki hvað snéri upp eða niður á henni. Kennslan fór fram á þann hátt að hann lék á fiðluna þær æfingar og þau lög sem átti að skila hverju sinni. Ég var hjá Sigurði í tvo vetur og þegar til baka er litið er þetta trúlega sú eina kennsla sem ég hef fengið á hljóð- færið, þó ég hafi farið 10 árum síðar til harmonikukenn- ara var ég það fullmótaður að ekki var um beina kennslu að ræða. Þekking Sigurðar var engin á hljóðfærið sjálft svo kennslan var í rauninni hjálp til sjálfsnáms en í önnur hús var ekki að venda þá. Við bræðurnir höfðum áhuga á að eignast stærra og 4

x

Harmoníkan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.