Harmoníkan - 01.10.1986, Page 8
Lars Ek á íslandi 30. júM 1985
að var tilhlökkun og spenna
ríkjandi er undirritaður og for-
maður F.H.U. í Reykjavík, Jón Ingi
Júlíusson, biðum í flugstöðvarbygg-
ingunni á Keflavíkurflugvelli eftir að
hurðin opnaðist á tollskoðuninni og
maðurinn sem beðið var eftir birtist.
Þetta hlaut að vera hann, maður með
brúna harmoníkutösku! Jú, jú, þarna
var Lars Ek mættur með eiginkonu
sinni, Ann Mary og 12 ára gömlum
syni þeirra, Mikael,
Landssamband Harmoníkuunn-
enda hafði sameinast um að bjóða
Lars Ek hingað til konsertahalds, eða
nánar tiltekið F.H.U. Reykjavík,
Vesturlands, Rangárvallasýslu, Akur-
eyri og Þingeyjarsýslu.
Lars Ek er vel þekktur á hinum
norðurlöndunum og hefur ferðast þar
mikið um og haldið konserta, einnig
viða annars staðar, í flestum heims-
álfum, þeir eru ævinlega þrír saman
og nefnist tríóið „Lars Ek’s
Hot-trio“.
Er hann kom hingað var hann án
sænsku meðspilaranna, en hafði þess
í stað fengið tvo íslendinga til liðs við
sig, þá Þorstein Þorsteinsson á gítar
og Þórð Högnason á bassa. Þeir
höfðu fengið nótur af dagskrá þeirri
er ætluð var til konsertahaldsins þó
nokkru áður og voru búnir að æfa án
þess að heyra hvor til annars. Nema
hvað,. hvor um sig hafði hljómsnældu
með lögum þeim er leika átti hér. Þar
gátu þeir komist í smá kynni við hinn
sérstaka og líflega stíl þessa meistara.
Hver er Lars Ek frá Svíþjóð
Hann er fæddur í Stokkhólmi og
byrjar harmonikunám 5 ára, 6 ára
leikur hann í útvarpið og hefur nú
komið þar fram og í sjónvarpi yfir 100
skipti. Hann hefur leikið inná um 100
hljómplötur, norðurlandameistari
1963 og 1967, sá fyrsti sem komið
hefur á kennslu í harmoníkuleik með
myndböndum og aðdáendaklúbbur
var stofnaður um hann í Noregi 1985
(Lars Ek Fan Club). Hann er einn 10
Svía á tónlistarsviðinu er ekki hafa
þurft að gegna herþjónustu nema að
því leiti að ef til ófriðar komi þarf
hann að leika fyrir hermenn á sam-
komum, hann kemur oft fram fyrir
erlenda þjóðhöfðingja sem innlenda
og nú siðast skömmu áður en þetta er
ritað lék hann um borð í sænsku
konungssnekkjunni M.S. Prins Carl
Philip í tilefni af 40 ára afmæli Svía-
konungs, Carl XVI Gustav, og eins og
segir í Svenska dagbladet 2.5.1986:
Lars Ek lék á harmoníkuna og
Lennart Bernadotte at Mainau var
ekki seinn á sér að bjóða upp í dans á
framþilfarinu.
Já, Lars lét ljúfar tónöldur
Frosinitónlistarinnar leika um eyru
hins konungborna fólks meðan M/S
Prins Carl Philip sigldi rólega í átt að
Drottningarhólmshöll.
Þess má til gamans geta að sjálfur
Pietro Frosini var 1911 boðið til þá-
verandi Englandskonungs, Georgs V,
að halda fyrir hann konsert.
En nú höldum við til íslands aftur
og Lars hefur þegar hitt væntanlega
meðleikara og æft með þeim, allt
hefur gengið vel og þeir allir tilbúnir
í slaginn. F.H.U. í Reykjavík lánaði
til ferðarinnar nær ný úrvals hljóm-
flutningstæki og Borgfirðingar bættu
við þau vönduðum hljóðnemum og
nú var ekki annað að gera en halda af
stað í Borgarfjörð en á Varmalandi
skyldi fyrsti konsertinn fara fram að
kveldi 3. ágúst.
Lars og fjölskylda var send um
borð í Akraborgina 2.ágúst en á
Akranesi tók Aðalsteinn Símonarson
á móti honum fyrir hönd H.U.V.
Aðalsteinn lá heldur ekki á liði sínu
frekar en vant er og fór með gestina
um Borgarfjörð vítt og breitt.
Laugardagskvöldið 3. ágúst rann
svo upp og fyrsti konsertinn fór fram
á Varmalandi, nær húsfyllir var og
virtust Þorsteinn, Þórður og Lars ná
afar vel saman, geisi stemning náðist
upp í húsinu enda dagskráin með léttu
yfirbragði svo ekki sé meira sagt. Var
hún eftir Frosini, Ragnar Sundqvist,
Nisse Lind, Lars og fleiri. Menn
undruðust hina geisilgu tækni Lars á
harmoníkuna, notkun á belg m.a. var
með eindæmum. Þeim var svo klapp-
að verðskuldað lof í lófa eftir mörg
aukalög. Á eftir voru seldar hljóm-
plötur sem Lars svo áritaði á meðan
dansinn dunaði undir tónlist borg-
firðskra og víðar að kominna hljóð-
færaleikara.
4. ágúst 1985
Nú skyldi halda í hina löngu ferð
norður Kjöl til Akureyrar og í því
skyni höfðu H.U.V. útvegað bæði bíl
og bílstjóra, 12-15 manna rútu og var
eigandi hennar og ökumaður Davíð
Pétursson frá Grund í Skorradal.
Auk hans voru i föruneyti eftirtaldir:
Lars Ek, kona hans Ann Mary og
sonurinn Mikael, Hilmar Hjartarson
fararstjóri, kona hans Sigríður
Sigurðardóttir og sonur þeirra Hjört-
ur Elvar (var með norður í Skaga-
fjörð), Ingimar Einarsson leiðsögu-
maður og formaður H.U.V., kona
hans Anna Kristinsdóttir og tvær
dætur Kristín Erla og Inga Dísa, og
Þórður Högnason bassaleikari.
Þorsteinn Þorsteinsson gat ekki
vegna vinnu sinnar komið með yfir
hálendið en ætlar þess í stað að koma
fljúgandi til Akureyrar 6. ágúst.
Ekið var af stað í blíðskaparveðri
8