Harmoníkan - 01.10.1986, Side 13
léku dúetta, Sigurður Hallmarsson og
Jón Aðalsteinsson. Margt manna var
samankomið og kemur æði vel í ljós
á slíkum stundum hvað harmoníkan á
marga unnendur.
Sem annars staðar tókst konsertinn
vel og undirtektir voru frábærar. Á
eftir var ferðalöngunum boðið til
kaffisamsætis og var þar margt
manna samankomið. Nokkrir stóðu
upp og létu orð falla um góð sam-
skipti og þökkuðu fyrir sig.
8. ágúst 1986T
Eftir smá vökunótt við hljóðfæraslátt
og samræður á heimili Ingvars og
Boggu voru menn rólegir um morgun-
inn en þau hjónin voru ekki lengi að
bæta úr því með sinni stórkostlegu
gestrisni.
Næst var haldið til Reykjavíkur.
Þetta var í raun stór dagur fyrir utan
allt annað. Það voru rétt 100 ár síðan
hinn stórkostlegi meistari
harmoníkunnar, Pietro Frosini, var
borinn í þennan heim og verður
væntanlega síðar mögulegt að skrifa
sér grein um hann og eins og flestir
vita er tónlist Frosini efst á baugi hjá
Lars Ek.
Ferðin suður gekk vel, og færðist
fljótt værð yfir mannskapinn. Það
var hrotið í ýmsum tóntegundum og
máttu þeir sem vöktu minnast öllu líf-
legri tónlistar undanfarið.
9. ágúst 198fí
Næst síðasti konsertinn var nú fram-
undan í samkomuhúsinu Ártúni í
Reykjavík. Áður en hann hófst léku
hann inn þeir Jón Ingi Júlíusson, Sig-
urður Alfonsson og Jakob Ingvason.
Það var hvert sæti skipað og vel það,
um 450 manns voru í húsinu, ekki er
að orðlengja það að lýsingarorð um
fyrri tónleika eigar hér við líka nema
hvað áheyrendafjöldinn var hvað
mestur.
10. ágúst 198if
Þennan dag var haldið austur í
Rangárvallasýslu, því síðasti konsert-
inn á að fara fram í samkomuhúsinu
Gunnarshólma um kvöldið. Formað-
ur fyrir F.H.U. Rangárvöllum er
Valdimar Auðunsson og tók hann og
hans félagar á móti okkur að Gunn-
arshólma, einnig léku þeir inn tón-
leikana. Fjölmenni var mikið og end-
aði samkoman með dansi, en til
Reykjavikur komum við undir morg-
un aftur til baka og þar með er lokið
frásögn af mjög vel heppnaðri ferð og
tónleikum með góðum tónlistar-
mönnum, en ekki er hægt við þetta að
skilja án þess að taka það fram að þó
minnst sé hér á örfáa menn með nafni
er stóðu í eldlínunni var fjöldi ann-
arra manna og kvenna, víða um land,
er lögðu á plóginn og gerðu það að
verkum að dæmið gekk upp.
F.H.U. í Reykjavík tók á móti Lars
Ek og fjölskyldu með heilmikilli
veislu, að Huldulandi 10. Það voru
Elsa Kristjánsdóttir og Aðalsteinn P.
Guðjónsson, sem lánuðu íbúð sína til
þeirra hluta. Einnig útveguðu þau
íbúð sem fjölskyldan hélt til í þá daga
sem dvalið var í Reykjavík.
Félagið í Reykjavík sá einnig um
kveðjuhóf sem haldið var í Borgar-
túni 18, kvöldið áður en gestirnir
flugu til Svíþjóðar og tóku þar margir
til máls. Þarna var einnig skipst á
minjagripum.
Á leið okkar á Keflavíkurflugvöll
um morguninn var sólin að koma upp
og var það mikið sjónarspil. Geislar
hennar voru í baráttu við skýjafláka
sem urðu þó að láta í minni pokann og
við þetta myndaðist litadýrð mikil
sem varð þess valdandi að Lars heill-
aðist af og hafði orð á að þetta væri
sannarlega punkturinn yfir ógleym-
anlega ferð. Hilmar Hjartarson
Skemmtidagskrá Félags Harmoníkuunnendatil áramóta
1986-87.
Dansleikir í Risinu, Hverfisgötu 105 laugardagskvöld
18/10 og 29/11, frá 9-3 e.m.
Skemmtifundir í Templarahöllinni við Skólavörðuholt.
Sunnudaginn 5. október frá kl. 3 e.h. til 6.
2. nóvember frá kr. 3 e.h. til 6.
7. desember frá kl. 3 e.h. til 6.
Skemmtifundirnir bjóða uppá veitingar á vægu verði,
harmoníkuleik, dans og fl., þetta er tilvalin sunnudags-
skemmtun fyrir alla fjölskylduna, félagar takið með ykkur
gesti, og allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.
SKEMMTINEFNDIN
Auglýsing
um
dagskrá
Hinn árlegi haust-
fagnaður
Harmoníkuunnenda
vesturlands, verður
haldinn að Loga-
landi Reykholtsdal
laugardaginn
11. október kl. 21.30,
allir velkomnir.
Stjórnin
Til sölu
Til sölu Excelsior harmoníka 3. kóra nýyfirfarin verð
kr. 30.000.
Upplýsingar í síma (93)7053.
13