Harmoníkan - 01.10.1986, Blaðsíða 16

Harmoníkan - 01.10.1986, Blaðsíða 16
HARMONIKUR Litlar og stórar Nýjar og notaðar Tökum notaöar harmoníkur upp í nýjar Mikiö úrval af harmoníkuplötum íslenskum og erlendum. ÚTGÁFAN Sunnuhlíö, Akureyri sími 96-22111 Hcainonikku-unnendur um allt land Hjá okkur fáið þið TOLLEFSEN harmonikku skólarm og úrval af harmonikku- nótum frá ýmsum löndum. Sendum í póstkröfu ÍSTÓNN H.F. SÍMI 92-21185 Freyjugötu 1, 121 Reykjavík Jóhannessyni, gamla þriggja-kóra Honer-harmoníku með afborgunum. Þetta var ágætt hljóðfæri. Ég fór með hana heim og byrjaði, en leyst nú heldur illa á þetta. Ég vann þá í fiski, og það var slæmt með sinaskeiðabólgu í báðum úlnliðum að spila á harmoníku. Þeir sem ég leitaði til með kennslu, en ég hafði valið mér hnappaharmoníku, ég veit ekki hvers vegna, sögðu mér að þetta væri alveg útilokað. Þetta væri bara forngripur sem væri hætt að nota. Þar að auki hafði ég þann kæk, að spila með þumalfingrinum, og það var jafnvel enn verra. Ég talaði við ýmsa menn sem spiluðu á hnappaharmoníku, og enginn þeirra notaði þessa aðferð. Þeir gáfu mér misjafn- lega góð ráð, hvernig ég ætti að halda áfram. Ég fékk samt eitt gott ráð sem ég hefði átt að fara eftir. Ólafur Þorvalds- son harmoníkuleikari, benti mér á, að líma yfir tvær innstu raðirnar og nota ekki nema þrjár. En ég fór öfugt að, því ég notaði allar fimm raðirnar strax, og hefur fund- ist það þægilegasta aðferðin til þessa, þó ég viti að hún sé röng.“ — En svo fékkstu loks kennslu? ,,Það var ekki gott að ná sér í kennslu. Fyrsti skólinn sem ég eignaðist var eftir Borgström. Hann var með ein- hverja undarlegustu fingrasetningu sem ég hef séð og held ég megi fullyrða, að sem skóli fyrir hnappaharmoníku, var hann alveg fráleitur. Ég fór svo til Karls Jónatanssonar og var hjá honum part úr vetri en síðan fór ég til Sigurðar Briem um tíma. Það var þó góðkunningi minn Gunnar H. Jónsson gítar- leikari, sem var nemandi í fiðluleik og spilaði jafnframt á harmoníku, sem hjálpaði mér að finna út hvernig þægileg- ast væri að standa að þessu. Seinna fór ég til Moraveks, en við höfðum verið kunn- ingjar í mörg ár, án þess að ég væri að læra hjá honum. Við ræddum mikið um harmoníkuna og mín viðhorf mót- uðust af því. Við vorum sammála um margt og ég lærði mjög mikið af honum. Ég eignaðist svo nokkrar mjög góðar harmoníkur, en svo hætti ég að spila, þegar and- rúmsloftið breyttist og áhuginn fyrir henni dvínaði.“ — En þú spilaðir eitthvað á böllum, var það ekki? ,,Ég spilaði um tíma með hinum og þessum, hér og þar. Það var aðallega vegna launanna, en ekki vegna ánægju, því sumt af því sem varð að spila á skemmtunum, bókstaf- lega leiddist mér.“ — Þú fórst svo að taka á móti erlendum harmoníkuleik- urum, hvenig atvikaðist það? „Það var nú afskaplega einfalt. Ég byrjaði á því, kring- um 1970, að flytja inn harmoníkur frá Victoria, og þeir sögðu mér frá nýju bassakerfi sem hentaði mjög vel fyrir klassiska tónlist. Þeir bentu mér á það, að það væri maður á Ítalíu, með feiknalega getu á svona hljóðfæri. Ég hafði mikinn áhuga fyrir þessu hljóðfæri og fólk fengi að sjá það og reyna. Ég hafði orðið var við það, að tónlistarmenn töldu harmon- íkuna of takmarkaða til að nota í sígildri tónlist, og ekki hæfa til að kenna á í tónlistarskóla. Þessi ítali skrifaði mér svo síðar og lýsti áhuga sínum á að koma hingað. Þetta var maður sem kenndi við tónlistarháskólann í Pesaro, að vísu ekki á harmoníku heldur kenndi hann nútíma tón- smiðar og tóngreiningu. Það var svo úr, að hann kom 1972, og spilaði í Norræna Húsinu um mánaðamótin maí júní. Þetta var Salvatore DiGesoaldo. Hann kom með mér heim, kvöldið sem hann kom, og rabbaði við mig til kl. 3 um nóttina. Ég var búinn að fá upptökutíma útvarpinu kl. 8, morg- 16

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.