Harmoníkan - 01.02.2000, Síða 3
FRÆÐSLU, UPPLYSINGA OG
HEIMILDARIT FELAGA S.LH.U.
OGANNARRA AHUGAMANNA
STOFNAÐ 14. APRIL 1986
Abyrgð:
Hilmar Hjartarson,
Ásbúð 17,
210 Garðabæ,
símar 565 6385 & 896 5440
netfang: harmonikan@simnet.is
Ritvinnsla: Hjörtur E. Hilmarsson
Prentvinnsla: Prenttækni ehf.
Blaðið kemur út þrisvar á ári.
í október, febrúar og maí.
Gíróreikningur nr. 61090-9.
Meðal innihalds
blaðsins:
Tvöþúsund vandinn ........3
Harmonikusmiður...........5
Landsmót framhald.........6
Nýtt harmonikumót.........7
Nótusíðan.................8
Viðtalið: Jón Árnason
frá Syðri-Á............9
Frosinikeppnin ‘99 ......12
ÓlafurTh. grein - 2......15
Ýmislegt fleira efni í blaðinu.
Handrit fyrir næsta blað
þurfa að berast fyrir
1. maí 2000.
Auglýsingaverð:
Baksíða 1/1 síða kr. 12.500
1/2 síða kr. 6.250
Innsíður 1/1 síða kr. 10.500
1/2síðakr. 6.800
-“- 1/4síðakr. 3.800
-“- 1/8síðakr. 2.800
Smáauglýsing kr. 1.500
AUGLÝSIÐ í HARMONIKUNNI
ódýrasta auglýsingaverðið
Tvöþúsund vandinn!
Gleðilegt ár kæri les-
andi og bestu þakkir fyrir
kort og árnaðaróskir um
aldamótin.
Ekki veit ég hvort við,
innan harmonikufjöl-
skyldunnar getum talað
um eiginlegan 2000
vanda nema ef vera
skyldi í líkingum. Samt
er það nú svo að manni
verður tíðrætt um vanda
sem oftsinnis blasir augljóslega við að mati
þess sem skrifar. Það verður æ meira að-
kallandi að bregðast hart við og bæta úr
þeim kennaraskorti sem þegar er vandamál,
f það minnsta fyrir lengra komna nemendur í
harmonikuleik. Við höfum þegar séð og vit-
um vel að margir efnilegir nemendur eru í
vanda um þessar mundir og ef ekki verður
þegar brugðist við, gröfum við undan áhuga
og sjálfsöryggi þessa fólks. Jafnframt held
ég að nauðsynlegt sé að fá erlendan kennara
til að halda námskeið fyrir tónlistarkennara í
harmonikuleik til að efla þekkingu og áhuga
þeirra.
Ef til vill má leita til Norðurlandanna,
Baltnesku landanna eða Rússlands í því
skyni. Ekki hefur illa gengið að lokka dans-
meyjar hingað frá þessum löndum. Allflestir
bjarga sér á enskri tungu. Með samstillingu
getum við, í náinni framtíð, látið land okkar
verða þekkt fyrir góða harmonikuleikara.
Eitt vakti athygli mína er ég horfði á mynd-
bandið sem gert var af landsmótinu 1999.
Um myndbandið má reyndar flest gott segja,
og fyrir utan góð atriði með harmonikuleik
var bætt inn kynningum um Siglufjörð og er
það vel. En þar sem við viljum allt fyrir
unga fólkið gera, skaut skökku við að ung-
menni sem gerðu góða hluti á landsmótstón-
leikunum sáust ekki á umræddu bandi eða
heyrðust ekki öllu heldur. Slíkt er óþarfi!
Þar sem skollin eru á mánaðarmót febrú-
ar mars undrar mig mjög að ekki skuli hafa
heyrst neitt um næstu hæfileikakeppni í
harmonikuleik, hvað þá heldur Islandsmeist-
arakeppni. Illa trúi ég að engar umræður séu
í gangi um þetta bráðnauðsynlega þróunar-
starf. Ég ímyndaði mér, með framtaki
F.H.U.R. í fyrra, væru menn loks komnir
fram í hellismunnann, og myndu halda
áfram alla leið út í veröldina. Við vitum að
slík keppni kostar fyrirhöfn og peninga, það
er engin spurning, en við vitum líka að hún
er uppbyggjandi, ögrandi og skapar metnað.
Ef F.H.U.R. telur sig ekki geta staðið í þessu
verður einfaldlega að sameina krafta eða fá
úr því skorið hver eigi að vera driffjöður fyr-
ir alvöru keppnishaldi. Ekki skortir nú orðið
hæfileikaríka harmonikuleikara. Hvernig
ætla menn að byggja upp framhaldið á nýrri
öld? Svarið getur ekki orðið annað en
„markvisst“. Ég er ekki að beina orðum
mínum á þann veg að allir ættu að vinna
eins, heldur vinna skipulega. Það skilar
ávallt bestum árangri, hvað sem verið er að
fást við. Maður nokkur nefndi við mig, að
honum þætti verst í sínu félagi að fá ekki í
hendur hvað stæði til í félaginu yfir starfsár-
ið, jró hann vissi til að stjórnin hefði fundað.
Það sýndi líka, að með því að senda bréf til
félagsmanna, væri hinn almenni félagi ein-
hvers virði. Kannast kannski fleiri við þenn-
an tjáningaskort? I sambandi við blaðið eru
ekki neinar stökkbreytingar framundan, best
að setja ekki upp stórbrotinn loforðalista, en
hagræða einu og öðru eins og gert hefur ver-
ið af og til. Eins og ég hef alltaf sagt stendur
blaðið opið fyrir óskum og ábendingum frá
lesendum. Ég vona að enginn 2000 vandi
fari að banka upp á í byrjun aldarinnar, varð-
andi blaðið ef mér leyfist að taka þannig til
orða.
H.Hj.
Forsíðumyndir: Efrí myncl: Matthías Kormáksson er fyrstur hérlendra harmonikuleikara af ungu
kynslóðinni sem tekur þátt í keppni erlendis. Hér leikur hann á harmonikuna sem hann keppti
með. Myndin er tekin í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Neðrí mynd: Blaðið kýs án þess að hika hljómsveit Félags Harmonikuunnennda á Selfossi og ná-
grennis „Frumlegustu hljómsveit landsmóts 1999". Hljómsveitin náði athygli áhorfenda svo um
munaði, með léttri og bráðlifandi framkomu. Frá vinstri Gísli Geirsson, Þorsteinn Guðmundsson,
Baldur Loftsson, Ólafur Th Ólafsson, Þórður Þorsteinsson, Guðbjörg Helga Einarsdóttir, Ólafur
Bachmann, stjómandinn og gítarleikarinn Helgi E. Kristjánsson og sonur hans, Óðinn B. Helgason
bassagítar.
Því miður verð ég að láta bíða viðtalið við Fjodorov bræður þar til f næsta blaði vegna plássleysis.
3