Harmoníkan - 01.02.2000, Blaðsíða 6

Harmoníkan - 01.02.2000, Blaðsíða 6
Landsmótið 1999 Framhald frá l.tbl. Ómar Hauksson formaður H.F.S. setti mótið og bauð gesti velkomna. Sigrún Bjarnadóttir fráfarandi landsambandsfor- maður hélt tölu og afhenti fulltrúa næsta landsmótshaldara fána sambandsins eins og venja er, en það verður Harmoniku- félag Vestfjarða. Við setninguna hefði að ósekju mátt taka fyrir ýmis brot úr for- sögunni, og rifja upp atburði, sem nrark- að hafa spor meðal þessara áhugahópa eða minnast á ýmsa landsþekkta harmon- ikuleikara fyrr og nú. Spurningin er hvar við værum stödd án þeirra frumkvæðis. Aðalkynnir mótsins var Teodór Júlíusson frá Siglufirði, sem stóð sig með þeim ágætum að eftir var tekið, skýrmæltur og fumlaus í nafnaupptalningu sem og öðru er koma þurfti á framfæri. Tíma fyrir til- kynningar kom kynnir fyrir milli atriða og sló jafnvel á létta strengi. Skipulagn- ing öll var bersýnilega vel undirbúin. Uppröðun hljóðfæraleikara á sviði og skiptingar hljómsveita gengu árekstrar- laust. Hljóðkerfi hússins virkaði vel. Harmonikuhljómsveit Siglfirðinga var stofnuð 1993 og kom fyrst fram. Hún gaf tóninn fyrir léttleika og gleði eins og þeim er einkar lagið. Ef ég hef rétt tekið eftir voru tvær hljómsveitir á öllu mótinu sem ekki notuðu nótur við spilamennsk- una, hljómsveit þeirra Siglfirðinga og hljómsveit F.H. á Selfossi og nágrenni. Sameiginlegt með þessum hljómsveitum var útgeislun og lífleg framkoma. Nótnagláp heftir mjög þetta frelsi, menn verða steinrunnir í andlitinu og lokast því frá umræddri útgeislun er annars skilar sér alla leið til áheyrenda. Góð æfing fyr- ir landsmót ætti að gera nótnablöðin óþörf. I heildina fann maður greinileg framför í hljómsveitarspilamensku og í mörgum þeirra sat margt ungra spilara sem er bylting frá síðasta landsmóti. Eg er ekki rétti maðurinn til að dæma spila- mensku hinna ýmsu hópa, en það voru þó nokkrir , bæði hljómsveitir, dúettar og einleikarar sem stóðu áberandi framar, enda heyrðist það í umræðum manna á meðal. Við getum þó verið sammála um að F.H.S.N. sló flestum við með frumleika, ólíkir öllum öðrum. Stóðu á sviðinu, hreyfðu sig í takt, glaðir með glens og sprell í kynningum. Hljómsveitastjórinn Helgi Kristjánsson átti örugglega stóran þátt í, að hrífa með sér salinn og fá alla með sér á flug. Við þetta hlýtur að opn- ast hugmyndabanki. Hljómsveitin Storm- urinn í H.R. undir stjórn Arnar Falkner var áberandi vel æfð og lék syrpu af miklu öryggi. Þá er kvintett þeirra F.H.U.E. ekki minnst nafntogaður fyrir góða spilamennsku og skemmtilegt laga- val. Ég nefni þessar hljómsveitir sérstak- lega því þær voru mikið í umræðu meðal áheyrenda um góða spilamennsku. Eins og komið hefur fram reyndist fólk al- mennt á þeirri skoðun að hljómsveitar- spilamennska almennt hafi batnað. Framhald í 3. tbl. Formaðurínn, fundarstjórinn, síldarspekúlantinn, bassaleikarínn, söngvarinn m.m. Ómar Hauksson hafði mörg járn í eldinum þessa helgina. Ekki nóg með að hann stœði í ströngu varðandi föst embœtti. Ómar var líka meðal fólksins inni á tónleikum, dansleikjum og úti á tjaldstœðunum rœðinn og upplífgandi! Hljómsveit H.U.V. með stjórnanda sínum Fanneyju Karlsdóttur lengst til hœgri. Meðalaldur hljómsveitaifólks var ekki hár á landsmótinu. Hljómsveitin Stormurinn, Harmonikufélagi Reykjavíkur sýndi stórgóða spilamennsku. Stjórn- andi hennar Örn Falknertil hœgri fyrir rniðju og til vinstri Jóhann Gunnarsson stjórnandi Léttsveitar H.R. 6

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.