Harmoníkan - 01.02.2000, Qupperneq 13

Harmoníkan - 01.02.2000, Qupperneq 13
Alþjóðlega Frosinifélagið Styrkveiting Harmonikufélagi Reykjavíkur eru hér með færðar sérstakar þakkir fyrir veittann stuðning vegna utanfarar Matthíasar Kormákssonar. Jafnframt kom fram í óskum frá fé- laginu, að nota mætti styrkinn að ein- hverju leiti til harmonikukaupa fyrir viðkomandi. Fulltrúi Alþjóðlega Frosinifélagsins á Islandi Hilmar Hjartarson Keppendur og dómarar að keppni lokinni. Frá v. Evrópumeistarinn í Frosinitónlist 1999 Mikael Broberg Svíðþjóð, Seppo Lankinen dómari Finnkmd, Emil Johansen Noregi önnur verðlaun , Lars Ek dómari Svíðþjóð, Sampo Tortilla Finnalndi þriðju verðlaun, Oleg Sharov dómari Rússland. Matthías Kormáksson frá Islandi fjórða sœti og Oleg Kouznetsov Rússlandi, einnig fjórða sœti. Þeir síðastnefndu fengu viðurkenningarskjal og geisladisk að launum. frá 1935.1 öðru sæti lenti Norðmaðurinn Emil Johansen og þriðji varð Finninn Sampo Torttilla. I fjórða sæti komu svo Matthías og hinn rússneski Oleg Kouz- netsov. í keppninni lék Matthías á Mengascini harmoniku sem hann hafði að láni, frá Grétari Sivertsen. Hvað sem öllum dómum líður skoðast þessi þátt- taka stór sigur í íslenskri tónlistarsögu. Matthías er fyrstur íslenskra ungmenna í sögunni að taka þátt í alþjóðlegri harm- onikukeppni og er það út af fyrir sig stór viðburður og ætti að vera hvatning til dáða á nýrri öld. Svo vitað sé, hefur eng- inn íslendingur tekið þátt í harmoniku- keppni erlendis síðan 1946 eða í 53 ár, þegar Lýður Sigtryggsson, sem þá var búsettur í Noregi, varð Harmonikumeist- ari Norðurlanda á svokölluðu samkeppn- ismóti norrænna harmonikuleikara sem haldið var í Stokkhólmi það ár. (Sjá 2 tbl. Harmonikunnar 1987 - 1988). Þrátt fyrir að Evrópumeistaratitill lægi ekki í fangi Matthíasar lá samt ákveðinn sigur að baki eins og ymprað var á hér framar. Vonandi nutu allir sín í veislu um kvöld- ið, þar gafst tími til að spjalla og spila, eða kynnast nánar eftir átök dagsins og Hljóðfæri Aldarinnar Mér barst í hendur einn daginn Víkurblaðið á Húsavík, Blað alls mannkyns eins og það heitir fullu nafni. Blaðið sem kom út miðviku- daginn 29. desember 1999, tilnefndi harmonikuna hljóðfæri aldarinnar. Orðrétt stóð skrifað undir stórri mynd af þeim Hákoni Jónssyni og Kára Arnasyni spilandi á harmonikur sínar. Vikurblaðið útnefnir hér með harmonikuna sem hljóðfæri aldarinnar á íslandi. Hún heldur enn velli þrátt fyrir tilkomu glaumgítara og hljóð- gerfla. Vel til fundin útnefning þeirra Víkurblaðsmanna. Sjónvarpsmynd Þann 19. október síðastliðinn var sýnd klukkustundar löng sjónvarps- mynd á Stöð 2 frá Landsmótinu á Siglufirði. Stöð tvö stóð að tökunni. Aðalmyndatökumaður var Jón Karl Helgason. Tökumenn Stöðvar 2 lögðu upp í ferðina með Harmonikufélagi Rangæinga og urðu þeim samferða í rútu norður til Siglufjarðar. A leiðinni var myndað og tekið viðtal við Sig- rúnu Bjarnadóttur. Mikið myndefni var tekið upp fyrir norðan. Tökumenn sáust allstaðar að mynda, á tónleikum, úti meðal fólks, á tjaldsvæðum og að taka viðtöl við mótsgesti og heimafólk. Mér var sagt á Stöð 2, að gaman hefði verið að klippa myndefnið, því úr miklu var að moða. Við sáum afraksturinn á skján- um og eftir viðbrögðum fólks að dæma er almenn ánægja með útkom- una. Viðtölin heppnuðust vel. Talað var við Braga Hlíðberg, Sigrúnu Bjarna- dóttur þáverandi formann S.Í.H.U., Gísla Brynjólfsson, Friðjón Hall- grímsson, Matthías Kormáksson, Oddnýju Björgvinsdóttur og Helgu Kristbjörgu Guðmundsdóttur. Jón Karl tökumaður fékk lánaða 10 árganga Harmonikunnar til að leita heimilda og þekkingar. Hann lá yfir blöðunum í langan tíma. Loks kom að þeim tímamótum að ná sjónvarps- tökumönnum á landsmót með góðu (Ríkissjónvarpið var ekki til umræðu). Það væri óskandi að Stöð 2 sýndi þetta aftur, eða ynni meira upp úr því efni sem til er eftir mótið. H.H. / heimboði hjá Kalle Westling í Svíþjóð eftir Finnlandsförina, Evrópumeistarinn Mikaei Broberg með keppnisharmonikuna frá árinu 1935 afSkandia gerð framleidd í Svíþjóð og Matthías með Hagström Special Castello, sem er í eigu Kalle Westling. Ragnar Sundquist ráðlagði föður Kalle, að kattpa gripinn. 13

x

Harmoníkan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.