Harmoníkan - 01.02.2000, Qupperneq 15
Gísli H. Brynjólfsson spilar
fyrir 800 manns
Ferð á harmonikumót í Caister on Sea í Englandi
„Caister Accordion Festival 1998“
Annar hluti - framhald frá I. tbl.
Ekki höfðum við nú neinn tíma að
sinni til að hvíla okkur, en fórum nánast
strax í svokallaðan „Neptune“ sal, stóran
sal, sem tekur áreiðanlega nærri þúsund
manns í sæti. Þar spiluðu bæði hópar frá
hinum ýmsu félögum, svo og einstak-
lingar. Minnisstæðastur þeirra er hann
Harry Hussey, sem spilaði þarna swing -
tónlist. Hann er sagður hafa á hreinu nán-
ast alla tónlist - bara nefna lagið og hann
spilar það! Ég talaði við hann og spurði
hann - án ábyrgðar - hvort hann myndi
vera til í að koma til Islands, til dæmis á
landsmót eða í boði einhverra félaga og
tók hann mjög vel í það og spurði um
leið, hvort konan sín mætti koma með!
Harry þessi spilaði líka dinner músik alla
dagana. Ég á í fórum mínum nokkra
geisladiska með þessum frábæra harmon-
ikuleikara. Þarna spilaði líka frægur
breskur harmonikleikari, Sue Coppard.
Hljómsveit Ron Hodgson og með honum
afburðasnjall spilari, Julie Best, einhver
með allra bestu spilurum bretanna. Ron
þessi er þekktur hljómsveitarstjóri og út-
setjari. Svo spilaði þarna líka þriðji ís-
lendingurinn, sem þarna var á ferð; Karl
Jónatansson og með honum í einu laginu,
„Ljósbrá" spilaði Amanda Dunn, sem
einu sinni bjó á Islandi og var þá í hljóm-
sveitinni hans Karls.
Annars var alveg ótrúlega mikið, að
gerast á mótinu. Það var byrjað alla dag-
ana kl. hálf tíu á morgnana og spilað í
öllum hornum nánast óslitið fram yfir
miðnætti. Svo var bara að velja. Um
miðjan laugardag var t.d. Frosini keppni
og svo spilaði sigurvegarinn um kvöldið.
Sá heitir David Nesbit frá Skotlandi, að-
eins 16 ára gamall og lék á píanóharmon-
iku. Mér kom í hug hann Tatu Kantomaa
, þegar David var að spila. Þetta kvöld
spilaði líka ítalskur snillingur, Giancarlo
Caporilli og svo hann Lars Ek, sem spil-
aði m.a. við kynninguna á sigurvegaran-
um úr Frosini keppninni. Einnig lék
þarna Gary Blair Ceilidh Band, skosk
hljómsveit sem Gary þessi Blair leiddi.
Er sá mjög vinsæll í sínu heimalandi.
Hún er mikið gargandi músettan þeirra
skotanna.
Um kvöldið var dansleikur og spilaði
önnur skosk hljómsveit fyrir dansinum.
Margir fóru seint að sofa þetta kvöld og
var verið að spila í hinum ýmsu sumar-
húsum. Ég kom í hús þetta kvöld þar sem
var samankomið fólk úr ýmsum félög-
um; frá York, London og fleiri stöðum.
Það var gaman að spila með þeim. Var
gengið á röðin og fólk beðið að „koma
með lag“! Veðrið var svipað alla dagana í
Caister; 7-8 stiga hiti og rigningarúði
öðru hvoru. Allir grasblettir fagurgrænir.
Einn morguninn skein þó sólin glatt.
Bretunum fannst kalt í veðri.
Nú var allt í einu kominn sunnudagur.
Frá því klukkan 9.30 um morguninn var
ýmislegt um að vera í Neptune salnum;
Til dæntis hljómsveit þar sem allir sem
vildu máttu spila með, sýnishorn af
tölvutónlist o.tL, o.fl. Eftir hádegi fórum
við nokkur saman í sal, sem heitir
Coasters og er niðri við Norðursjávar-
ströndina. Þarna var fullt af fólki og
máttu allir sem vildu troða upp. það var
spilað á harmonikur aðallega og svo söng
þarna maður og spilaði á gítar. Svo var
líka dansaður þarna línudans! Þarna var
líka fjöldasöngur og bretarnir sungu sitt
Fyrr var oft í koti kátt og Hvað er svo
Ólaíur Th
Ólafsson
glatt? ! Haldið var á loft stórum spjöld-
um með textunum á, svo að allir gætu
fylgst með. Sinn er siður í landi hverju.
Nú var farið heim og drukkið te og
svo fórum við Gísli á markaðinn til að
skoða okkur um. Markaður þessi, risastór
stóð yfir á laugardeginum og sunnudeg-
inum þarvoru til sölu harmonikur nýjar
og notaðar af ýmsum stærðum og gerð-
um og virtist mér verðið vera mjög svip-
að og hérna heima. Þarna voru vörumerki
sem ég hafði aldrei séð fyrr, svo sem
„FratelIi“og þá hnappanikkur, sem frakk-
ar nota mikið. Einnig gífurlegt safn af
nótum fyrir harmoniku svo og allskonar
dót annað tengt hljóðfærinu, svo sem
minjagripir af ýmsu tagi. Ég hef aldrei
séð annan eins fjölda af harmonikum
saman kominn á einum stað! Þarna kost-
uðu nýjir geisladiskar fjögur pund, 476
krónur!
Niðurlag í nœsta blaði.
Frá vinstri: Gísli Brynjólfsson og Helgi Guðmundsson.
Á nokkra óselda geisladiska með Emil Johansen „Flick-Flack“ - sími 565 6385