Harmonikublaðið - 01.11.2004, Síða 4
Fróðleikur
HARMONIKUBLAÐIÐ
Félag Harmonikuunnenda Suðurnesjum F.H.U.S.
Aðdragandi að stofnun og yfirlit um starfsemina frá upphafi til þessa dags
Þátttakendur í Landsmótinu á ísafirði 4.-7. júlí 2002. F.v.: Víkingur Sveinsson, Einar
Gunnarsson, Árni Baldursson, Konráð Fjeldsted, Gestur Friðjónsson, Hafsteinn Ingvarsson,
Þórólfur Þorsteinsson og Baldvin Elís Arason.
Eftir nokkurn undirbúning að
stofnun félagsins, komu all-
margir harmonikuunnendur
saman á veitingahúsinu
„Ránni" í Keflavík. í það sinn
var ákveðið að boða til stofn-
fundar á sama stað 21. janúar
1990. Framhaldsfundur þar
sem lög voru samþykkt fyrir fé-
lagið var síðan haldinn 11.
febrúar sama ár. Allmargir
mættu á þann fund og óskuðu
þess að gerast stofnfélagar og
rituðu 45 þeirra nöfn sín í
þeim tilgangi. Ekki voru margir
þeirra harmonikuleikarar en
áttu það sameiginlegt að hafa
gaman af harmonikuleik.
Fyrsti formaður var Ásgeir Gunnarsson
og kom í hans hlut að móta starfsemi fé-
lagsins. Útvegaði hann fyrsta æfingahús-
næði þess í húsnæði Karlakórs Keflavík-
ur, þar sem fyrstu skrefin voru síðan tek-
in. Fyrsti samleikur nokkurra félaga var
við afhendingu húsnæðis Styrktarsjóðs
aidraðra á Suðurnesjum 25. febrúar 1990.
Á næstu mánuðum var reynt að halda al-
menna skemmtifundi, eftir því sem æf-
ingum miðaði, en aðsókn reyndist næsta
lítil, þrátt fyrir ötult starf margra félags-
manna. Nokkuð var um að leikið væri í
verslunarmiðstöðvum, veitingahúsum, á
dvalarheimilum aldraðra og fleiri stöð-
um, auk þess að leika á Saumastofudans-
leikjum á vegum Hermanns Ragnars Stef-
ánssonar og Ríkisútvarpsins. Voru teknir
upp tveir þættir, sem var síðan útvarpað
2. og 9. mars 1991.
Á fundi þann 10. maí 1993 lét Ásgeir
Gunnarsson af formannsstarfi og var
Kristinn Kaldal kosinn í hans stað. Fyrsta
þátttaka félagsins í Landsmóti S.Í.H.U.
var á Egilsstöðum 1993. Fulltrúar félags-
ins voru þeir Kristinn Kaldal, jóhann
Guðmundsson og Hörður'NÓhannsson.
Sama ár var almennur skemmtifundur
haldinn, sem lukkaðist allvel, bæði hvað
aðsókn snerti og árangur. Árið 1994 var
starfsemin góð og leikið víða. Einnig varð
sá viðburður að F.H.U.S. afhenti tónlist-
arskólum hér tvær harmonikur að gjöf, og
var ætlunin með því að stuðla að aukinni
kennslu í harmonikuleik við skólana. Á
aðalfundi 9. maí 1994 lét Kristinn Kaldal
af formennsku og við starfinu tók Hörður
Jóhannsson. Á lokafundi 1. júní 1994
mættu 37 manns, félagar og gestir og
áttu góða og glaða stund þar sem margir
þöndu hljóðfærin öllum til ánægju.
Á starfsárinu 1994-1995 kom Guð-
mundur Samúelsson til starfa við tónlist-
arskólann og hófu þá nokkrir aðilar nám í
harmonikuleik. Skemmtifundur var hald-
inn þann 26. febrúar 1995 í tilefni af fimm
ára afmæli F.H.U.S. Var hann vel sóttur og
léku þar fjölmargir, bæði heimamenn og
gestir. Sérstaka athygli vakti leikur nfu
nemenda Guðmundar Samúelssonar og
sást þar glöggt að tilsögn er fljót að skila
sér, sé áhugi nemenda fyrir hendi. Harm-
onikukennsla hefur síðan verið á vegum
Tónlistarskólans og allmargir nemendur
hvert ár, en því miður hefur ekki fjölgað í
röðum F.H.U.S. að sama skapi.
Ástjórnarfundi 14. september 1995 lét
Hörður Jóhannsson þess getið að hann
myndi hverfa frá formannsstarfi á næsta
aðalfundi. Þótti mönnum miður að svo
skyldi vera. Á aðalfundi þann 28. septem-
ber 1995 tók Gestur Friðjónsson við for-
mannsstarfinu. Á þeim fundi var mikið
rætt um starfsemina og hvernig unnt
væri að efla hana enn frekar. Einnig að
taka þyrfti til endurskoðunar innheimtu
félagsgjalda og endurnýja félagaskrá þar
sem fjöldi stofnenda virtist ekki áhuga-
samur um starfsemina. Gestur hélt síðan
fyrsta stjórnarfund þann 17. október
1995. Þar var rætt um væntanlegt lands-
mót, sem ákveðið var að halda 1996 að
Laugalandi í Holtum og þátttöku F.H.U.S.
í því.
Mjög vel heppnaður skemmtifundur
var haldinn í „GÖNGUGÖTU" Kjarna 14.
apríl 1996. Kom þar enn á ný í ljós hve
góðum árangri Guðmundur Samúelsson
hefir náð með nemendur í harmoniku-
leik, en á hans vegum komu sérstaklega
fram tveir ungir drengir og léku af mikilli
færni. Á aðalfundi 30. maí 1996 var for-
manni og öðrum stjórnarmönnum falin
áframhaldandi forsjá félagsins. Enn var
nokkuð um að leikið væri fyrir ýmis fé-
lagasamtök og reynt með þeim hætti að
styrkja fjárhagsgrundvöll félagsins. Á
Landsmóti S.Í.H.U. að Laugalandi í Holt-
um 1996 mættu til leiks tveir félagar og
léku fyrir hönd F.H.U.S., það voru Þórólf-
ur Þorsteinsson og Gestur Friðjónsson,
en Ásgeir Gunnarsson forfallaðist á síð-
ustu stundu.
Starfsemin var áfram með líkum hætti,
skemmtifundir og heimsóknir til annarra
félaga auk þess að þau komu í heimsókn-
ir og tóku þátt í kvöldvökum og spila-
mennsku með okkur. Sérstaklega má til
nefna skemmtifund sem haldinn var 8.
júní '97 í Keflavík og lukkaðist mjög vel
með góðri aðstoð Selfyssinga og fleiri
gesta, m.a. var þar harmoniku og íslands-