Harmonikublaðið - 01.11.2004, Síða 12
Fróðleikur
HARMONIKUBLAÐIÐ
Karlarnir
Það var laugardaginn 20. nóv-
ember síðastliðinn að ég náði
tali af tveim heiðursmönnum
þeim Sigurði Hallmarssyni og
Ingimundi Jónssyni frá Húsa-
vík. Þeir voru staddir í Lóni,
húsi Karlakórs Akureyrar-
Geysis, þar sem Félag Harmo-
nikuunnenda við Eyjafjörð hef-
ur haft aðstöðu til dansleikja-
halds í mörg ára.
Þeir voru þangað komnir til að leika
fyrir dansi þá um kvöldið jafnframt því að
kynna nýútkominn geisladisk sinn „Karl-
arnir leika gömlu góðu lögin". Á diskinum
leikur Sigurður á harmoniku og Ingi-
mundur á gítar og kontrabassa. Með
þeim í för var Borgar Þórarinsson, sem
lék með þeim á bassa á dansleiknum,
enda erfitt fyrir Ingimund að leika á hvoru
tveggja í einu.
En hver er þessi Borgar?
í fáum orðum sagt; Aðaldælingur bú-
settur á Húsavík og rekur þar stúdíó sem
nefnist „Hljóðhimnar", en það var einmitt
hann sem sá um upptöku hljóðblöndun
og lokafrágang á diski þeirra félaga og
eins og diskurinn ber með sér, er óhætt
að leita til hans með upptökur, auk þess
sem hann er fjölhæfur tónlistarmaður.
Þeir karlarnir féllust á að svara nokkrum
spurningum áður en þeir stigu á svið.
Hvenær byrjuðuð þið að leika saman?
Það mun hafa verið skömmu fyrir
1960, svarar, Ingimundur. þá aðallega í
tengslum við leiklist og skólaböll, en þó
mest á sjöunda áratugnum með Reyni
lónassyni sem þá var Tónlistarskólastjóri
og organisti á Húsavík. Þá léku þeir Sig-
urður og Reynir á harmonikur og ég á
kontrabassa. Síðan Reynir fór höfum við
verið að spila saman við leiksýningar og
ýmsar uppákomur, en minna fyrir dansi.
Hvenær kviknaði sú hugmynd að
leika inn á diskinn?
Sigurður segir það hafa verið fyrir fjór-
um árum síðan. Þá fórum við í prufuupp-
töku til Borgars sem þá bjó á Raufarhöfn.
Það var svo ekki fyrr en í sumar, þá er
Borgar var fluttur til Húsavíkur að við
gerðum alvöru úr því og nú er hún orðin
að veruleika.
Það fýsir víst marga að vita hvað þið
hafið starfað um dagana?
Sigurður verður fyrst fyrir svörum. Ég
er kennari, og byrjaði minn starfsferil við
Barnaskólann í Flatey á Skjálfanda, vann
síðan í fjöldamörg ár við Barnaskólann á
Húsavík, fyrst sem kennari og síðan
skólastjóri og loks fræðslustjóri Norður-
lands eystra á Akureyri og meðfram hef
ég starfað mikið bæði sem leikari og leik-
stjóri auk þess sem ég hef fengist talsvert
við að mála. Nú síðustu ár hef ég gefið
mig meira að harmonikunni.
Ingimundur segist ekki eiga ólíkann
feril. Fyrst kennari við Barnaskólann og
síðan við Gagnfræðaskólann sem kennari
og yfirkennari og síðast aðstoðar-skóla-
meistari við Framhaldsskólann á Húsavík
frá því hann var stofnaður 1987 og til '98,
Sigurður Hallmarsson.
Ingimunur Jónsson.
en hef síðan starfað við Safnahúsið á
Húsavík. Eftir að Reynir flutti frá Húsvfk
hef ég snúið mér að gítarnum í samspili
okkar Sigurðar en greip til bassans vegna
útgáfunnar á diskinum. Ég hef einnig
fengist mikið við leiklist, mest í heima-
byggð. Blaðið fékk leyfi lóhannesar Sigur-
jónssonar til að birta umsögn hans um
karlana sem fylgir með disknum.
Afauðlindum Þingeyinga
Það er alltaf verið að tala um auðlindir.
Auðlindir íslands og auðlindir hérað-
anna. Sigurður Hallmarsson og Ingi-
mundur lónsson eru auðlind okkar Hús-
víkinga og gott ef ekki Þingeyinga allra.
Og samt höfum við sloppið við að greiða
af þeim auðlindaskatt svo sem verðugt
væri. Sigurður og lngimundur hafa leikið
fyrir okkur, sungið fyrir okkur, spilað fyrir
okkur og kennt okkur lengur en elstu
menn muna. Og eru enn að. Þeir eru svo-
lítið eins og tónlistarprestar, svo oft nær-
staddir og með okkur í gleði og sorg. Þeir
félagar, þessi auðlindardúett okkar Þing-
eyinga, eru síspilandi í stórafmælum, á
þorrablótum, á menningarviðburðum, í
Þessi mynd er tekin í tilefni opnunar Sjóminjasafnsins á Húsavík. Sigurður Hallmarsson og
Ingimundur Jónsson.