Harmonikublaðið - 01.06.2005, Side 3
HARMONIKUBLAÐIÐ
RITST|ÓRAPISTILL
ISSN 1670-200X
Ábyrgðarmaður :
jóhannes jónsson
Barrlundi 2 600 Akureyri
Sími 462 6432, 868 3774
Netfang: johild@simnet.is
Ritvinnsla:
Hildur Gunnarsdóttir
Prentvinnsia:
Ásprent Stíll ehf.
Netfang: gudjon@asprentstill.is
Meðal efnis
• Um mynd Spessa
• Dagskrá Landsmótsins
• Viðtal við lagahöfundinn
• Lag blaðsins
• Um hljóma og fleira
• Spjall við Höskuld
Stefánsson
Augiýsingaverð:
Baksíða 1/1 síða kr. 12.000
1/2 síða kr. 6.000
Innsíður 1/1 síða kr. 1 1.000
1/2 síða kr. 5.500
1/4 síða kr. 3.500
41 1/8 síða kr. 2.500
Smáauglýsing kr. 1.500
Forsíðan:
Danski harmonikusnillingurinn Sören
Brix sem verður heiðursgestur
Landsmóts SÍHU í Neskaupsstað 7.-10.
júlí.
Efni í næsta blað
sem kemur út í október,
þarf að berast
fvrir 26. september nk.
INIyjar og notaðar
harmonikur í miklu
úrvali á frábæru verði
VÍSA og EURO raðgreiöslur
Upplýsingar í síma 690 2020
Ritstjórapistill
Ágæti lesandi!
Nú eru fáeinir dagar í Landsmót
Sambands íslenskra harmonikuunn-
enda sem haldið verður í Neskaupstað
dagana 7,-10. júlí n.k. Landsmót Sam-
bandsins hafa verið haldin frá árinu
1982 og hefur aðsókn að þeim vaxið
jafnt og þétt. Mót þessi eru aðalhátíð
þeirra sem ástfóstri hafa tekið við
harmonikuna, það hljóðfæri sem þetta
allt snýst um. Fjöldi fólks utan harm-
onikufélaga hefur sótt landsmótin og
tekið þátt í þeirri ósviknu gleði sem
þau hafa uppá að bjóða. Víst er að
margir hafa tekið harmonikuna í sátt
eftir að hafa kynnst þessum samkom-
um af eigin raun.
Allt frá árinu 1990 hafa erlendir
gestaspilarar sett svip á mótin og hafa
þeir haft jákvæð áhrif á viðhorf landans
til hljóðfærisins. Margir þeirra hafa
hrifist af landi og þjóð og komið aftur,
jafvel sest hér að og gerst harmoniku-
kennarar eins og dæmi eru um. Koma
þessara manna hefur aukið framboð á
hæfum harmonikukennurum og eru
þeir góð viðbót við annars ágæta kenn-
ara sem fyrir voru. Það virðist bjart yfir
kennslumálunum sem stendur og
flestir sem áhuga hafa á harmoniku-
námi ættu að geta fengið kennslu við
sitt hæfi, þó einhverjar undantekningar
séu þar á. Kennsla undanfarinna ára
hefur skilað okkur mörgum góðum
harmonikuleikurum sem sýnirokkurað
við eigum mikið af hæfileikaríku ungu
fólki sem leggur metnað sinn í námið.
Tíminn líður hratt og fyrr en varir
verðum við komin á Neskaupstað, full
eftirvæntingar að hitta kunningja og
vini og til að hlýða á ómælda tónlist þá
daga sem mótið stendur.
Það er mikið gleðiefni að nú í fyrsta
sinn munu frændur okkar Færeyingar
heimsækja okkur á landsmót og munu
þeir taka þátt í tónleikum og dansleikj-
um, veri þeir hjartanlega velkomnir.
Látum ekki vegalengdir og smávægi-
legan mótbyr aftra okkur frá að mæta,
það er jú ekki nema þriðja hvert ár sem
skemmtun á borð við landsmót er í
boði. Um leið og ég óska ykkur gleði-
legs harmonikusumars vonast ég til að
sjá ykkur sem flest á komandi lands-
móti.
).J.