Harmonikublaðið - 01.06.2005, Side 13

Harmonikublaðið - 01.06.2005, Side 13
HARMONIKUBLAÐIÐ Fróðleiksspjall I * fi ‘t f f .1 'f T- v ' * iÍÍ jf 1$^ ^ ' - -r ^ i » j 8 ; \ •;5>’t ^/^.^jgMBfcLdPÍ^S 1,1 , ."' . •'.? ••'•<>)•''j i í f. vátiþpf •9' 7 Fyrsta lúðrasveitin í Neskaupstað. Á mynd- inni eru frá vinstri: )ón Karlsson, |ón Lund- berg, Birgir Sveinsson, Geir Bjarni (ónsson, Karl Pálsson, |ón Sig- urðsson, Höskuldur Stefánsson, Gísli Sig- urbergur Gíslason, Friðrik Sigurðsson, Ottó Sigurðsson og Kristján Lundberg. þú ert unglingur, þá lærir maður rosalega mikið. En maður verður auðvitað að æfa sig, og ég man að við vorum að þróast og sýna þessu rækt og æfa okkur þannig kom þetta allt. En hér, þegar ég var að byrja að læra? )á. Það versta var að bera nikkuna, heiman frá mér út í skóla. Og vitið þið hvernig ég fór að því? Höddi hjálpaði mér. Hann Hörður frændi minn lét sig ekki muna um að bera hana, stundum hljóp hann bara. Vissi ekki af þvf. „Ég man", segir )ón Lundberg, „að maður var búinn að þjálfa sig í að skipta reglulega um hönd á kassanum á vissu róli. Það var roslegt stundum hvað mað- ur gat orðið þreyttur". Ekkert tiltökumál að spila á balli Það var rætt áfram um spilamennskuna og fljótlega voru sveitaböllin inn í Kirkju- bólsteigi nefnd. ,,Já - þar var nú alltaf mikið fjör. Ungmennafélagið hélt þær samkomur lengi vel". Höskuldur hélt áfram: „Það var talið alveg sjálfsagt að spila þar. Það var ekkert tiltökumál að spila á balli. Eins var með böllin í Gúttó. Og svo þegar strákarnir komu á bátunum eða skipunum í land, sko og ég var kannski farinn að sofa, þá var ég kannski bara vakinn, það var bank- að á gluggann hjá mér, og ég heyrði bara: „Höski - ball á eftir!" „Þá var ekki um ann- að að ræða en að fara á fætur aftur og koma sér úteftir. Þá voru þeir komnir í það maður, stákarnir, og fjörið komið á fullt". Nonni Lundbergs sagðist muna eftir þessu: „Þá fóru þeir bara niður á götu, tóku kvenfólkið sem þar var, og komu með það upp í Gúttó". „Já," segir Höski: „Svona var nú lífið þá". Nú berst talið að hljómsveitum. Hösk- uldur spilaði um tíma í hljómsveitum og m.a. á píanó, í hljómsveit Svavars Gests í einn vetur: „Þá var spilað á píanó, bassa, trommur og gítara og fleiri hljóðfæri. Þetta var allt sérstaklega lærdómsríkt og gefandi. Á þessu lærði maður, kannski einmitt með því að spila með einhverjum sem kunni meira. Þegar maður var ungur var maður alltaf að iæra og spreyta sig á lögum". Nonni segist hafa lært mikið af Hösk- uldi og rifjar upp sumrin í beitninga- skúrnum, þegar þeir voru að beita yngri strákarnir, hjá Stebba föður Höskuldar. Stundum þegar búið var að hreinsa beituskúrinn, þá náði Höskuldur í nikk- una og fór að spila. Af þessu lærðu þeir yngri og fengu áhugann. „Halló, halló, getur þú spilað í Atlavík"! Nú er Höski kominn á flug: „Svo spilaði ég oft á Hornafirði og var fenginn til að spila á balli í Bjarnanesi. Presturinn kom og bað mig að spila. Það þótti eitthvað alveg sérstakt. Ég var líka beðinn um að spila á böllum á Héraði. Og Höskuldur lék samtalið: „Halló, halló, getur þú spil- að í Atlavík"? „Og við gerðum það - þá út- bjuggum við bara hljómsveit sem spilaði í Atlavík. Það var rosalegt, það var við- burður. Allt stútfullt. Þá var slitin af mér nikkan maður. Nonni átti í vandræðum með básúnuna". Og Nonni rifjar upp að- stæður: „Höskuldur kom með slitna ólina og sagði: Nú get ég ekki meir"! Og Hösk- uldur bætir við: „Þetta þótti bara mjög gaman. Fólk hafði gaman af músik og vildi fá svingmúsik. Já, já. Og þá var improviserað, það var gaman. Maður var alltaf að hlusta á eitthvað nýtt".

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.