Harmonikublaðið - 01.06.2006, Qupperneq 4
Frá formanni S.Í.H.U.
Góðir harmonikuunnendur.
Frá því að undirritaður var kjörinn
formaðurSÍFIL) á síðastliðnu hausti hefur
ýmislegt á dagana drifið. Stjórn SÍHU
hefur komið saman til eins formlegs
fundar sem haldinn var á Akureyri í
tengslum við undirbúning unglinga-
landsmóts sem félag harmonikuunnenda
við Eyjafjörð stóð fyrir, en þess utan hafa
stjórnarmenn verið í símasambandi um
þau mál sem beint hefur verið til
stjórnarinnar.
Unglingalandsmótvarhaldiðá Akureyri
eins og fyrr var getið og er það mitt mat
að þar hafi vel til tekist þó að auðvitað
hefðumviðöll viljað sjáfleiri þátttakendur
en raun varð á. Ég tel að samt hafi vel til
tekist með framkvæmd mótsins og vil
þakka fyrir hönd landsambandsins
Harmonikuunnendum við Eyjafjörð og
nefndinni sem sá um mótið undir stjórn
Einars Guðmundssonar fyrir vel unnið
starf og tel að þetta mót sé komið til þess
að vera. Það var alveg frábært að hlusta á
unga fólkið spila og mitt mat er að ef svo
heldur fram sem horfir sé bjart fram-
undan og harmonikuleikur síður en svo á
undanhaldi. Með það í huga vil ég hvetja
harmonikufélög til þess að bjóðast til að
taka að sér unglingalandsmót á næsta ári
og halda áfram þessu góða starfi sem
þegar hefur verið unnið.
Kennaranámskeiðvarhaldiðítengslum
við unglingalandsmótiðen þarleiðbeindi
Tatu Kantomaa sem einnig lék nokkur
lög fyrir þátttakendur og mótsgesti. Það
vakti athygli mína að Tatu var umsetinn
af ungum harmonikuleikurum til að fá
hjá honum eiginhandaráritanir eins og
algengt er með poppstjörnur þannig að
við erum eftil villað ganga inn í nýja tíma
hvað vinsældir harmonikunnar og
harmonikuleikara varðar.
Það lá Ijóst fyrir á haustfundi að
Jóhannes Jónsson fyrrverandi formaður
og Hildur kona hans myndu ekki sjá um
útgáfu á blaðinu Harmonikan og vil ég
þakka þeim vel unnin störf við blaðið.
Reynt hefur verið að fá einhverja aðila til
þess að taka málið að sér en ekki tekist
fyrr en nú.
Þess vegna er það sérstakt ánægjuefni
að nú hefur blaðið göngu sfna á ný undir
forystu Hreins Halldórssonar sem verður
ritstjóri þess, en með honum starfa
Baldur Pálsson og sá sem hér skrifar en
vonandi bætastfleiri íhópinn. Markmiðið
er að halda blaðinu gangandi út þetta ár
en haustfundur verður að taka ákvörðun
um framtíð þess þar sem að áskrifendur
eru ekki nægilega margir til þess að
blaðið geti staðið undir sér að óbreyttu
fyrirkomulagi.
Blaðið er að mestu helgað unglinga-
landsmóti að þessu sinni en ritnefndin
mun leita fanga hjá aðildarfélögum,
einstaklingum og víðar eftir efni í
blaðið.
Stjórn SÍHU mun funda um verslun-
armannahelgi í tengslum við sumarhátið
HFH og hótels Svartaskógar og eru þau
félög eða einstaklingar sem hafa einhver
þau erindi sem þeirtelja að stjórn eigi að
fjalla um beðnir um að koma þeim á
framfæri við undirritaðan.
Ómar Skarphéðinsson, sem sá um og
hannaði heimasíðuna okkar hefur hætt
umsjón með henni og mun ég reyna að
komainnáhana fréttum sem berasteftir
því sem við verður komið, en gott væri að
fá einhvern sem hefur betri skilning á
þessu verkefni til að taka heimasíðuna
að sér og er hér með óskað eftir aðila
sem hefur þessa þekkingu og tíma til að
gera þessa síðu eins góða og hún þyrfti
að vera.
Að þessu sögðu óska égykkur gleðilegs
sumars og sjáumst á haustfundi.
Jónas Þór.
Frétt frá Harmonikufélagi Reykjavíkur
i
Það erorðin hefð hjá Harmonikufélagi
Reykjavfkur að halda upp á Dag
harmonikunnar. í ár var hann haldinn 14.
maí 2006 með veglegum tónleikum í
Ráðhúsi Reykjavíkur og þótti takast
ákaflega vel.
Þetta er orðinn árlegur viðburður og
fjölmargir lögðu sig virkilega fram um að
þetta yrði sem veglegast.
Nikkan er nú hafin til vegs og
virðingar sem henni ber. Fólk á
öllum aldri lætur drauminn rætast
og hefur nám í harmonikuleik og
snillingar koma fram í dagsljósið.
Nokkrir þeirra settu svip sinn á
tónleikana núna eins og sjá má af
dagskránni.
Þarna komu fram félagar úr Harmon-
ikufélagi Reykjavíkur: Stormurinn og
Léttsveitin léku nokkurvalin lögen Vadim
Fedrov hefur þjálfað þessa hópa í vetur.
Mikil ánægja er með störf hans enda er
hann snillingur. Hann kom Ifka með einn
nemanda sinn sem lék eitt lag og sjálfur
hljóp hann svo í skarðið fyrir bróður sinn
sem forfallaðist og lék nokkur lög af
mikilli snilld ogvið mikinn fögnuð áheyr-
enda.
Auk þeirra lék fimm manna hópur frá
Akranesi. Þau voru: Oddný Björgvins-
dóttir, Maren Lind Másdóttir, Ástrós Una
Jóhannesdóttir, Sólberg Bjarki Valdimars-
son og Rut Berg Guðmundsdóttir. Öll
saman léku þau Orfeum intermezzo,
Vaara Vitonen (finnskur polki) og Leik-
fangafílinn.
Ástrós Una spilaði Jolly Capalero og Rut
Berg Guðmundsdóttir spilaði Svörtu
augun.
Gestir okkar voru Ifka úr Harmoniku-
félagi Selfoss og Harmónikufélagi Rang-
æinga sem tóku nokkur lög og gerðu það
af stakri prýði.
Áheyrendur voru með fleira móti og
virtust gleðjast með okkur og þetta vil ég
þakka fyrir hönd Harmonikufélags
Reykjavfkur
Hafnarfirði 29. maí 2006
HitmarÁrnason