Harmonikublaðið - 01.06.2006, Page 8

Harmonikublaðið - 01.06.2006, Page 8
Valdi Friðriks Árið 2003 ákváðu Stína og börn þeirra Valda að gefa út, á geisladisk, þau lög sem varðveist höfðu. Bræðurnir Haukur, Þórhallur og Guðmann sáu að mestu um undirspilið, ásamt frænda sínum Ágústi Ármann, tónskólastjóra í Neskaupstað en Ellert Borgar sá alfarið um sönginn. Einnig veittu nokkrir góðvinir fjölskyld- unnar góðfúslega aðstoð sína við hljóðfæraleikinn. Hinn landsþekkti Magnús Kjartansson sá um upptökur og hljóðblöndun auk þess að spila með, þar sem á þurfti að halda. öll umgjörð og hönnun disksins var í höndum fjölskyld- unnar og studdu tvö þau yngstu í syst- kinahópnum bræður sína og mömmu með ráðum og dáðum við þessa útgáfu. Sama ár hefði Valdi á Sigurðarhúsinu orðiðáttræðurogvardiskurinn hugsaður sem minnisvarði um alþýðukúnstnerinn ogtónlistarmanninn Valda Friðriks. Disk- urinn var ekki settur í almenna dreifingu, Þegar Austfirðingar og þá sérstaklega Eskfirðingar heyra minnst á harm- onikuleik eða hlusta á slíkan, hvarflar hugurinn oft til Valda á Sigurðarhúsinu. Hann var lífskúnstner eins og þeir gerast náttúrulegastir, spilaði á harmonikuna og samdi falleg lög, sem flest voru prýdd textum sveitunga hans, frænda, barna og vina. var mikill. Oft stóðu skemmtanirnar langt fram á morgun en áfram var haldið með taktföstum hrynjanda þar til tími var kominn til að sinna öðrum störfum. Þorlákur (Lalli), bróðir Valda, var oft spilafélagi hans og eins frændinn.Hjalti Guðnason og Óli Fossberg vinnufélagi til margra ára. Frá unga aldri og til æviloka var harm- onikan honum kær- asta gullið og hver frístund notuð til að spila og syngja. Hann hafði bjarta tenórrödd og söng við raust hvenær sem færi gafst. Fjölskyldan öll, krakk- arnir, konan og afinn tóku undirvið óma nikk- unnar og söng af lífi og sál. Valdivaroftfenginn til að syngja við ýmis tilefni. Hann starfaði í karlakórnum Glað og auk þess sönghann ofteinsöngvið jarðarfarir áEskifirði. Stína á Sigurðarhúsinu, kona hans, lét sitt ekki eftir liggja og leiddi oft sönginn með kröftugri sópranrödd svo húsið fylltist brátt af hljóðfæraleik og söng. Það var mjög gestkvæmt á heimili þeirra Valda og Stínu og þar fengu menn bæði líkamlega og andlega næringu. Eftir ríkulegarveitingar hjá húsmóðurinni færðu menn sig inn í stofu og þar var tekið til við að syngja og spila. Stundum var „söngolían” notuð til að smyrja radd- böndin og svo var dægurlögunum gerð skil með dynjandi söng og best þótti ef einhver gat raddað, til þess að auka á hljómfegurðina. róitarfuwifin^wfraíiU Valdi hafði aldrei stundað hefðbundið tónlistarnám og kunni hvorki að skrifa né lesa nótur. Það aftr- aði honum ekki frá því að semja lög eða spila það sem óskað var eftir. Hann not- aði náttúrulega tón- listarhæfileika sína, sem hann átti í ríkum mæli, lærði lögin utan að og festi í minnið, þannig að alltaf var hægt að fletta upp í huganum þegar á reyndi. Vegna þessa hafa nú mörg laga Þorvalds fallið í gleymskunnar dá. Höfundurinn, sá eini sem kunni þau öll, lést árið 1996. Þau lög sem hafa varðveist eru annað hvort lög sem aðrir lærðu eða þau lög sem Guðmann, sonur þeirra hjóna, náði að hljóðrita í stofunn-i á Sigurðarhúsinu árið 1982 á frumstætt kassettutæki heimilisins. Á þeirri hljóðritun má heyra harmonikuna þanda og eins söng þeirra Stínu og Valda. Valdi spilaði á dansleikjum víða um Austurland en þó mest á Eskifirði. Hann var óþreytandi við að spila á mannamótum eins og þorrablótum og öðrum skemmt- unum sem til féllu. Hann hafði unun af því að skemmta fólki með söng og hljóðfæraleik og áhuginn

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.