Harmonikublaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 6

Harmonikublaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 6
Frá Harmonikufélagi Reykjavíkur Þann 14. júní 1986 var Harmonikufélag Reykjavíkur stofnad. Árið 2006 voru því 20 ár frá stofnun þess og ákveðið að halda með eftirminnilegum hætti upp á afmælið. Ákveðið var að fá hingað til lands snillingana Lars Karlsson frá Svíþóð og Eyvind Farmer frá Noregi til að halda tónleika. Félögum okkará landsbyggðinni stóð einnig til boða að fá þá í heimsókn til sín en þvímiðurvartakmarkaðuráhugi fyrir því, nema á Norðfirði og þar héldu þeir tónleika sem voru frekar illa sóttir. Það er alveg ótrúlegt þegar svona tækifæri býðst að harmonikufélögin í landinu skuli ekki hvetja félaga sína og aðra til að sækja svona viðburði. Lars og Eyvind héldu sfðan tónleika fyrir fullu húsi í Salnum í Kópavogi. Á vordögum hélt svo all stór hópur félaga úr H.R. til Svíþjóðar í heimsókn til Lars og fjölskyldu hans en þau eiga harmonikuverkstæði, verslun og mjög gott harmonikusafn. Var þetta í alla staði mjög fróðleg og skemmtileg ferð. Á aðalfundi S.Í.H.U. 2005 sem haldinn var á Hellu ákvað H.R. ásamt Harmoniku- félagi Selfoss að taka að sér að halda Hafist var handa við að fá hingað til lands erlenda harmonikuleikara því nú skyldi á það reynt hvort áhugi væri meðal harmonikufólks fyrir því að krydda örlítið upp á tilveruna. Ekki var ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur því fengnir voru hingað til lands heimsmeistari í harmonikuleikurum. Heiðursgestir á afmælishátfðinni voru þau hjónin Sigrún Bjarnadóttir ogValur Haraldsson. Aðloknumkvöldverði.skemmtiatriðum og ávörpum formanna harmonikufélaga var stiginn dans og fyrst á svið til að leika fyrir dansi var hljómsveit heiðurs- gestsins, Sigrúnar og félaga hennar frá Hellu. Síðan tók hver hljómsveitin við af annarri fram á rauða nótt. Fóru flestir síðan að sofa, nema Stebbi í Hólkoti, en hann var búinn að gefa konum opinberlega upp herbergis- númerið sitt og hvatti þær mjög til að heimsækja sig. Frétti ég að nóg hafi verið að gera hjá honum fram eftir nóttu enda Stebbi með afbrigðum gestrisinn maður. Ég hef verið varaformaður S.Í.H.U síðastliðin sex ár og vil koma á framfæri þakklæti tilallra þeirra sem ég hef starfað með og kynnst á þessum árum en þessi kynni hafa öllverið mjög ánægjuleg. Kveðja, Guðrún Guðjónsdóttir. Hljómsveit heidursgestsins, Sigrúnar og félaga hennar frá Hellu, var fýrst á svid að leika fyrir dansi. Mynd: Valur Haraldsson. Gestir skemmtu sér konunglega undir skemmti- atriðum. Mynd: Valur Haraldsson. næsta aðalfund S.I.H.U. og tengja hann afmælum félaganna en Harmonikufélag Seifoss átti 15. ára afmæli árið 2006. Ákveðið var að halda aðalfundinn og afmælishóf á Hótel Örk í Hveragerði en þar er “ aðstaða eins og best verður á kosið. 6 harmonikuleik, rússinn Alexander Dmitriev og sonur hans Vitaliy Dmitriev. Komu þeir hingað til lands fyrir tilstuðlan Vadims Federov, en Vadim var nemandi Alexanders. Spiluðu þeir á afmælishátíð félaganna föstudaginn 29. september á Hótel Örk og sfðan á dansleik á laugar- dagskvöldinu. Héldu þeir síðan stór- glæsilega og ógleymanlega tónleika f Norræna húsinu sunnudaginn 1. október. Sem fyrr er sorglegt frá því að segja að sárafáir sóttu þá tónleika og enginn áhugi var á landsbyggðinni fyrir því að fá þá í heimsókn. Afmælishátíðin var f alla staði mjög vel heppnuð, Jón Berg margrómaður brandarakarl var veislustjóri og fórst honum það vel úr hendi. Sunginn var fjöldasöngur, og bragur, saminn og fluttur af þeim Einari Friðgeiri og Erni Arasyni. Ekki má gleyma Grétari Geirs- syni, sem lék nokkur lög af sinni alkunnu snilld. en Grétar er einn af okkar færustu

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.