Harmonikublaðið - 01.12.2006, Síða 8

Harmonikublaðið - 01.12.2006, Síða 8
Harmonikufélagið Nikkolína 25 ára starfsafmæli - Stofnað 7. nóvember 1981 Harmonikufélagið Nikkolfna í Dalasýslu var stofnað 7. nóvember 1981 og átti því 25 ára starfsafmæli nú í nóvember 2006. Aðalhvatamaður að stofnun félagsins og jafnframt fyrsti formaður Nikkolínu var Kristján Ólafsson. Hann var tónlistar- kennari í Búðardal á þessum tíma og hafði mikinn áhuga á þvf að koma af stað meira samstarfi og samspili hjá þeim er höfðu gaman af að grípa í nikkuna. Félagið hét f upphafi Harmonikkufélag Dalamanna en Ragnar Ingi Aðalsteinsson átti hugmyndina að nafninu Nikkolína og var það samþykkt á aðalfundi haustið 1982. Formenn Nikkolínu og H.U.H. stjórna fjöldasöng í afmælis- kvöldverdinum. Það er Halli Reynis sem spilar undir, hann er tengdasonur Melkorku. Fljótlega var ákveðið að hafa æfingar hálfs mánaðarlega á veturna og hefur það haldist nokkuð vel í gegnum tíðina. Sömuleiðis varfrá upphafi bæði þjálfaður nótnalestur og að spila eftir eyranu. Auðvitað var mislangt fyrir menn að fara á æfingar og oft gekk á ýmsu. í fundargerð frá janúar 1983 segir: „Byrjað var með nótnasamlestri fjögurra laga en síðan var frjáls tími og spilaði hver sem betur gat. Einna harðsóttust varð ferð félaga úr Hörðudal og urðu þeir að handmoka alla leiðina, svo leiðin mun nú vera fær öllum sem á eftir koma!“ Já það var ýmislegt á sig lagt. Félagið hefur alltaf átt gott samstarfvið Tónlistarskóla Dalasýslu og Halldór Þ. Þórðarson skólastjóri hefur verið aðal- stjórnandi Nikkolínu um margra ára skeið. Félagið hefur í nokkur ár veitt nemendum í harmonikuleik viður- kenningu og einnig sérstök verðlaun þeim sem mestar framfarir sýnir á árinu, ^ styrkthljóðfærakaupo.fl. Núverandi P formaður Nikkolínu er Melkorka * Benediktsdóttir, Vígholtsstöðum og Afmælismálsverður Nikkolínu og H.U.H. í veitingahúsinu Við Árbakkann á Biönduósi. Nikkolína tók í fyrsta sinn formlega þátt í Landsmóti S.Í.H.U. að Laugum í Þingeyjarsýslu sumarið 1990. Nokkrir félagar höfðu áður farið á landsmót sem áheyrendur en þarna var skrefið stigið til fulls og spilað á tónleikunum. Félagið hefur ekki sleppt landsmóti síðan, enda eru þau mjög skemmtileg og sá sem fer einu sinni, mætir oftast næst. Á síðasta landsmóti í Neskaupstað var spilað undir stjórn Reynis Sigurðssonar. Það mót tókst í alla staðiafarvelogvarbæðiheimamönnum svo og þátttakendum til mikils sóma. móti okkur f húsnæði félagsins og buðu upp á kaffi og meðlæti. Félagið er búið að koma sér upp mjög skemmtilegu húsnæði og það er mikill munur að hafa svona góða aðstöðu. Til hamingju með það Húnvetningar! hún er jafnframt gjaldkeri S.Í.H.U. Ritari er Ásgerður Jónsdóttir og gjaldkeri Jón Benediktsson. Frá upphafi hafa félagar í Nikkolínu verið duglegir að koma harmonikutónlist á framfæri. Félagið hefur haldið skemmtifundi, kaffikvöld, spilað á Dala- dögum, Jörvagleði, Leifs- hátíð, á þorrablótum og við ýmis tækifæri hjá fyrirtækjumogeinstakling- um, alls staðar gleðja harmonikutónarn- ir. Einnig hefur Nikkolína lagt land undirfót með Þorra- kórnum og Vorboð- anum úr Dalasýslu og spilað á dans- leikjum vítt og breitt um landið í þeim ferðum. Síðast en ekki síst verður að nefna frábær samskipti við önnur harmonikufélög, sem bæði hafa komið í heimsókn og boðið okkur heim. Það hafa verið mjögskemmtilegarsamverustundir og frábær félagsskapur. Það var í einni slíkri heimsókn eftir sameiginlegan dansleik í Dalabúð, þar sem hver dansaði sem betur gat frá upphafi til enda, og svo kraftmikinn fjöldasöng í lokin, að húsvörðurinn sagði við mig þegar hann leit yfir snyrtilegan salinn að þetta væri ekki ball, þetta væri menningar- skemmtun. Það er nefni- lega alveg rétt. Það var haldin árshátíð félagsins í Dalabúð strax fyrsta starfsárið, 1. maí 1982, ogtókst hún mjögvel. Seinna sama ár voru félagar úr Harmonikufélagi Austur- Þessi mynd var tekin á Landsmóti S.Í.H.U. íNeskaupstað sumarið 2005. Þetta eru Nikkolínufélagar að aflokinni spilamennsku á tónleikum, komnir út í sólskinið og stilltu sér glaðbeittir upp til myndatöku við íþróttahúsið. Húnvetninga fyrstir til að sækja okkur heim. Það var því vel við hæfi að þessi félög héldu sameiginlega afmælishátíð á 15 ára starfsafmælinu árið 1996 íÁsbyrgi í Miðfirði og svo aftur núna á 25 ára afmælinu laugardaginn 18. nóv. sl. á Blönduósi. Farið var á rútu frá Búðardal í brunagaddi og ekið norður. Þegar til Blönduóss kom tóku félagar úr H.U.H. á

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.