Harmonikublaðið - 01.12.2006, Síða 14
Harmonikufélag Vestfjarða
~ 20 ára ~
Frá vinstri: Krista, Jón Sigurðsson frá Þingeyri og Rawo.
Á stofnfundinum mættu 19 áhugamenn
en stofnfélagar urðu 40 talsins víðsvegar
af Vestfjörðum. Á fundinum voru sam-
þykkt lög fyrir félagið og kosin stjórn.
Félagið hefur tekið þátt í
Landsmótum frá árinu 1990 og
hélt Landsmót árið 2002 á ísafirði,
þá kom í Ijós hin mikla samstaða
félaga í H.V. og velvilji íbúa á
svæðinu til félagsins.
Helga Guðmundsdóttir.
Árið 1988 skrifaði stjórn félagsins
Tónlistarskóla ísafjarðar og hvatti til að
tekin yrði upp harmonikukennsla við
skólann. Skólinn brást vel við bréfinu og
var Messiana Marzellíusdóttir fengin til
að taka að sér kennsluna og starfar við
það enn.
Félagið gaf skólanum tvær
kennsluharmonikur og einnig voru
Harmonikufélag Vestfjarða var stofnað
að frumkvæði nokkurra áhugamanna um
harmonikuleik þann íó.nóvember 1986.
Aðdragandi að stofnun félagsins var
dansleikur sem haldinn var um sumarið í
Sjóminjasafninu í Neðstakaupstað, en
þar höfðu spilað allmargir harmoniku-
leikarar af svæðinu í tilefni af 200 ára
afmæli ísafjarðarkaupstaðar.
stundum húsfylli. Aukin aðsókn í félagið
að undanförnu ber vott um að það sé
virkt, félagar eru nú um 90 talsins.
Stjórn félagsins skipa:
Ásgeir S. Sigurðsson formaður
Ásvaldur Guðmundsson ritari
Frosti Gunnarsson gjaldkeri
Messíana Marzellíusdóttir meðstj.
Sæmundur Guðmundsson meðstj.
Haldið var upp á 20 ára afmælið 14.
október að Núpi í Dýrafirði. Þar er góð
veisluaðastaða og stór hluti gesta nýtti
sér hina góðu gistiaðstöðu og áttu þar
ánægjulegar samverustundir. Gott veður
og færð gerði góðum gestum fært að
gefnar harmonikur í Tónlistarskólana í
Bolungarvík, Flateyri og Þingeyri.
Það hefur verið lán félagsins að til liðs
við það gekk fljótlega mikið af bráð-
skemmtilegu fólki, þannig að æfingar og
samkomur félagsins hafa verið sérlega
líflegar og skemmtilegar. Félagar hafa
leikið við hin ólíklegustu tækifæri svo
sem dansleikjum, áramótabrenn-
um, á skíðasvæðinu, í skemmti-
siglingum um ísafjarðardjúp og
ekki síst rokkhátiðinni „Aldrei fór
ég suður“ um síðustu páska.
í Dýrafirði er sérstök deild úr
Harmonikufélaginu sem kalla sig
„Harmonikukarlarnir og
Lóa“, þar er öflug starfsemi
og mikið leitað til þeirra
varðandi skemmtanir á því
svæði.
Stjornendurhljomsveitarfelags-
ins á Landsmótum hafa verið Messíana og Guðný.
Messiana Marzellíusdóttir, Baldur
Geirmundsson og Vilberg Vilbergsson.
Einn allra vinsælasti þáttur í starfi
félagsins hafa verið sumarferðir ýmist til
að endurgjalda heimsóknir annarra
Harmonikufélaga eða heimsækja
áhugaverða staði. Farið hefur verið á
rútu 2.-3. daga ferðir og haldinn
dansleikur sfðasta kvöldið. Snjallir
sögumenn og húmoristar hafa séð
um skemmtiefni íþessum ferðum.
samgleðjast með okkur á þessum
tfmamótum. FormaðurS.f.H.U.Jónas Þór
Jóhannsson kom frá Egilsstöðum.
Formaður F.H.U.R. Gunnar Kvaran frá
Reykjavík og formaður F.H.U.S. Gunnar
Ágústsson og frú komu akandi úr
Skagafirði. Formaður F.H.U.E. komst ekki
vegna óhagstæðra flugskilyrða frá
Akureyri.
Hægt er að spyrja?
Hvernig hefur félaginu tekist að
sinna því hlutverki að vinna að
framgangi harmonikunnar?
Ég tel að það hefi tekist allvel,
harmonikan skipar ákveðin sess í
tónlistarlífi hér á þessu svæði, mikið
er beðið um harmonikumúsik sem
atriði á skemmtunum, ekki síst ungra
og efnilegra harmonikunemenda.
Einnig hafa tónleikar listamanna sem
heimsótt hafa okkur verið vel sóttir og
Ásgeir formaður, Jónas landssambandsformaður og Pétur
Bjarnason veislustjóri.