Harmonikublaðið - 01.12.2006, Síða 15

Harmonikublaðið - 01.12.2006, Síða 15
og Guðmundur Ingvars- son sögu Harmoniku- karlanna á Þingeyri. Formaður S.Í.H.U. og formenn harmonikufél- aga fluttu heillaóskir og afhentu góðar gjafir, einnig bárust kveðjur og gjafir frá öðrum harmon- ikufélögum. karlarnir og Lóa sem höfðu fengið til liðs við sig meðal annars tvo fiðluleikara og gítarleikara. Eftir það voru settar saman hinar ýmsu hljómsveitir og voru þar fremstir í flokki hinir margreyndu og sívinsælu Villi Valli, Baldur Geirmunds og Magnús Reynir. Einnig tóku þátt í músikinni landssambandsformaðurinn og gestir frá öðrum harmonikufélögum. Dansleikurinn stóð tii 03.30 en gleðin hélt áfram til morguns. Harmonikufétag Vestfíarda spilar ð aðventukvöldi íísafíardarkirkju 3. desember 2006. Ljósmynd Halldór Sveinbjörnsson Hátíðin hófst með borðhaldi kl.20.00. Ljúffeng veisluföng voru framreidd af Unni Bjarnadóttur og aðstoðarfólki hennar. Veislustjóri var Pétur Bjarnason. Undir borðum rakti formaður sögu H.V. Gamanmál voru flutt og margar ræður. Milli atriða léku á harmoniku Jónatan Sveinbjörnsson, Kristín Hálfdánardóttir, Helga Kristbjörg Guðmunds- dóttir og Guðmundur Samúelsson. Dansleikur hófst um miðnætti og var mikið fjör. Fyrstir spiluðu Harmoniku- Harmonikufélag Vestfjarða þakkar heillaóskir og góðar gjafir, og óskar harmonikufólki um land allt gleðilegra jóla og farsæls komandi harmonikuárs. Fyrir hönd Harmonikufélags Vestfjarða ÁSGEIR S. SlGURÐSSON. FORMAÐUR Sigrún Bjarnadóttir Fyrrverandi Landssambandsformadur ~ Fædd 25. júní 1944 - Dáin 22. október 2006 ~ Kveðja frá Harmonikufélagi Rangæinga Vantar nú í vinahóp Völt er lífsins glíma. Þann sem yndi og unað skóp Oss fyrir skemmstum tíma. (Matthías Jocumsson) Þannig er okkur innanbrjósts félögunum í Harmonikufélagi Rangæinga þegar við sjáum á bakgóðum félaga okkar, Sigrúnu Bjarnadóttur. Hún var ein af stofnfélögum og máttarstoð félagsins alla tíð. Hún var formaður félagsins um árabil og einnig gengdi hún formennsku í Landsambandi harmoniku- unnenda. Þessum störfum sem ogöðrum, sem hún tók að sér, gengdi hún af stakri samviskusemi, smekkvísi og landsfræg- umdugnaði. Sigrúnvargóðurharmoniku- leikari og lagði sig fram um að mennta sig í tónlistinni. Hún var afkastamikill lagasmiður og hafa lög hennar verið mikið leikin af félögum hennar. Ótalin eru þau skipti sem æfingar fóru fram á Heiðvangi 10, heimili Sigrúnar og Vals. Þá lék Sigrún við hvern sinn fingur en Valur sá um veisluborðið. í því sem og öðru, sem þau hjón tóku sér fyrir hendur, voru þau samhent svo af bar. Sigrún og Valur voru ómissandi ferðafélagar, hvort sem farið var í félagsferðir eða á harmonikumót vítt og breitt um landið. Margir munu sakna morguntónleika Sigrúnar í þessum ferðum en hún var duglegust allra að drífa upp spilirí eftir hæfilegan svefn að hennar mati , enda var hún morgunhress með afbrigðum. Þegar við sem eftir stöndum hugsum til Sigrúnar er okkur efst í huga þakklæti og stolt fyrir að hafa átt slíkan félaga. Við biðjum öllum ástvinum Sigrúnar blessunar og huggunar í sárum harmi. Stjórn Harmonikufélags Rangæinga. 15

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.