Harmonikublaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 16

Harmonikublaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 16
Birgir Hartmannsson ~ Minningabrot ~ 'cJrJHrT^c arfíe -ca?Tíc 'cJr> arNc<TJ>' arfíc Ágæti ritstjóri, Hreinn Halldórsson. Þegar þú hringdir í mig síðla kvölds um miðjan nóvember sl. og baðst mig að setja saman greinarkorn fyrir Harmoniku- blaðið um afmælisfagnað H. F. S. og H. F. R. sem haldinn var í Hótel Örk 29. september '06, fannst mér, þarna hálf- dottandi fyrir framan sjónvarpið, að það væri nú lítið mál og lofaði að senda þér greinarkorn um viðburðinn til birtingar í næsta blaði. Sæmilega vaknaður daginn eftir velti ég þessu fyrir mér og fannst að frá litlu væri að segja. Hugurinn vildi alls ekki stansa við þetta kvöld, en leitaði lengra aftur. Ég reyndi að staldra við og laða fram myndir frá stofnun „Félags harmonikuunnenda Selfoss og nágrenn- is“, skammst. F. H. S. N. sem nú heitir „HarmonikufélagSelfoss“ H. F. S. En fyrr en varði var ég kominn ein 63 ár aftur í tímann, norður f Fljót í Skagafirði. Af einhverjum ástæðum hafði pabbi þurft að taka mig, 6 ára drengstaula, með í kaupstaðarferð til Haganesvíkur. Meðan hann var að útrétta og erindreka eitthvað skildi hann mig eftir f umsjá Stfnu gömlu í Vík, sem rak þarna greiðasölu. Mér leiddist. Ég mátti ekki fara út og vildi eða gat ekki fundið mér neitt til dundurs og var búinn að eigra um lengi að mér finnst, í volandi sjálfsvorkunn, þegar unglings- piltur sem þarna hafði aðsetur birtist og vildi reyna að hafa ofan af fyrir mér. Þegar hér var komið sögu var sálarástandi mfnu þannig varið að ég vildi sem minnst með félagsskap hans eða annara hafa. Tók hann þá það til bragðs að draga kassa undan rúmi, upp úr þessum kassa tók hann furðuverk sem hann sagði að héti harmonika, þetta settist hann með f fangið og nú gerðust undur og stórmerki, veröldin hvarf mér, ailt fylltist af tónum og mér fannst ég svffa í lausu lofti borinn af þessum undursamlegu hljómum. Öll leiðindi hurfu út í veður og vind og ég beið í ofvæni eftir meiru þegar hlé varð á spilamennskunni. Ég man þegar hann sagði að hún læki lofti, tókafsér nikkuna og beit í horn á belgnum til lagfæringar. Ekki man ég hvað þessi piltur hét, vissi það kannske aldrei, ekki geri ég mér heldur Ijóst hvað hljómleikarnir stóðu lengi yfir en þetta fyrirbæri átti sér lengi jfastan stað í hugskoti mínu. Stað sem ég gat leitað á ogfundið huggun þegar eitthvað bjátaði á. Eftir þessa Iffsreynslu setti ég mig aldrei úr færi að hlusta á harmonikuspil og þótti öll slík mússík góð. Þarna held ég að ég hafi ákveðið með sjálfum mér að eignast harmoniku við fyrsta tækifæri. Það tækifæri gafst þó ekki fyrr en 9 árum síðar. Þegar ég lít til baka til æskuslóðanna kemur Jón í Saurbæ strax upp í hugann, karl sem þótti sérlundaður og forn í búskaparháttum með all sérstætt málfæri. Jón hefur sjálfsagt verið menningarlegar sinnaður en almennt gerðist í þessum heimshluta á þessum tíma. Hann átti forláta grammifón og talsvert af plötum með harmoniku- mússík, aðallega frá Skandinavíu. Einnig átti hann tvöfalda harmoniku sem hann spilaði stundum á með miklum tilþrifum. Kannske vegna þess hvað ég var áhugasamur áheyrandi reyndi hann að útskýra fyrir mér muninn á krómatfskum og ókrómatískum harmonikum. Hans tvöfalda nikka var ókrómatísk sem þíddi að ekki var sama í hvora áttina belgurinn var dreginn. Og þá kom nú vindbassinn að góðum notum. „Þetta lag spila ég mest á vindbassann" sagði hann og tók að spila í stíl Júlarbús með tilþrifum og rykkjum. Ég fann mér margt til erindis að Saurbæ og nú get ég ekki annað en furðað migá hvaðJón gaf sér mikinn tíma til að sinna mínum hugðarefnum. Oft þegar ég hafði þegið góðgerðir sagði hann. „Jæja geyið mitt, ætli þig langi ekki aðeins að Ifta á fóninn". Sfðan fórum við fram í stofu þar sem þetta furðuverk grammifónninn var geymdur. Upphófust þá miklar sérimoníur og tfmafrekar, að mér fannst við að stilla loldð og lúðurinn trekkja apparatið upp, skoða nálina ofl. Ég beið óþreyjufullur eftir að heyra harmonikulögin. En Jón átti það til að byrja á að spila plötu með gamanvísum og eftirhermum fluttum af Bjarna Björns- syni. Síðan hefur mér verið heldur f nöp við Bjarna þennan. Á árunum 1940 - 50 og fram á 6. áratuginn var a. m. k. einn góður nikkari í hverri sókn þarna nyrðra og sjálfsagt hefur svo verið annarsstaðar á landinu. í Fljótunum var mjög öflugur spilari, sem þandi nikkuna alla nóttina, hvíldarlítið, til morguns á innarsveitarböllum að vetrinum. Þá var ekki búið að finna upp kynslóðabilið og líklega 12- 13 ára fór maður að vera á Ungmennafélagsböllum ásamt þeim fullorðnu fram undir morgun. Man ég að harmonikutónlistin söng í eyrum mínum til kvölds við gegningarnar daginn eftir. Ég held það hafi verið fermingarárið mitt sem Toralf Tollefsen kom til lands- ins. Hann auglýsti tónleika í Tjarnarborg í Ólafsfirði og Árni Sæm lét þau boð út ganga að hann færi með boddíið. En eins og allir sem náð hafa sæmilegum þroska vita, var boddí frumstætt hús með sætum sem sett var á vörubílspall til fólks- flutninga. Eitthvað kostaði farið og efna- hag mínum var þannig háttað þá stundina að ég átti bara fyrir aðgangseyri. Árni vildi ekki lána mérfyrirfargjaldinu, sagðist ekki ætla að stuðla að því að ég yrði skuldum vafinn auðnuleysingi og sveitarómagi. Ég þrá því á það ráð að hjóla til Ólafsfjarðar 40 - 50 km. leið, endilöng Fljótin og Stífluna, yfir Lágheiði og út allan Ólafsfjörð. Þessir tónleikar standa mér Ijóslifandi fyrir hugskots- sjónum enn þann dag í dag. Athyglisvert þótti mér að þarna var troðfullur salur, fólk af öllum stéttum á ýmsum aldri, en slík þögn var í salnum meðan Tollefsen framdi listir sínar að heyra hefði mátt saumnál detta. Hef ég aðeins einu sinni í annan tíma orðið vitni að svo lotningar- fullu andrúmslofti, það var á söng- skemmtun sem Stefán íslandi hélt í Borgarnesi 1958. En það er önnur saga. 16

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.