Harmonikublaðið - 01.09.2008, Síða 4
Frá formanni S.Í.H.U.
Góðir félagar.
Þegar þetta blað kemur til ykkar verður
sumarið liðið og komið fram á haust. Að
því ég best veit hefur starf í aðildarfélög-
um S.Í.H.U. verið gott og og öll þau mót
og samkomur sem félögin hafa staðið
fyrir hafa heppnast vel, enda mikið um
þau talað og þann kraft sem félögin og
félagsmenn leggja í þessar samkomur.
Sá sem hér skrifar náði aðeins að koma á
tvær slíkar samkomur í sumar og ég var
mjög ánægður með það sem ég sá og
heyrði.
Undirritaður sótti landsmót S.Í.H.U. sem
var haldið í Keflavík, í umsjón félags
harmonikuunnenda á Suðurnesjum, í júlí
síðast liðnum. Að mínu viti fór mótið vel
fram og skipulagning góð og húsakostur
allur til fyrirmyndar svo og hljóðkerfi og
tæknibúnaður. Mér finnst við hæfi að
þakka fyrir hönd S.Í.H.U. félagi Harm-
onikuunnenda á Suðurnesjum og íbúum
Reykjanesbæjar fyrir gott og skemmtilegt
mót, svo og bæjarstjórn og bæjarstjóra
fyrir stuðninginn við mótið.
Tónlistarflutningur aðildarfélaga fannst
mér góður og fjölbreyttur, gestir mótsins
skemmtilegir og virtust vera heima í
mörgum gerðum tónlistar sem e.t.v. heyr-
ist ekki oft leikin á harmoniku. Við mætt-
um líklega hugsa okkar gang öll hvað
varðar fjölbreytni í vali á tónlist til að
spila á mótum og vfðar.
Mesta athygli mina vakti samt unga fólk-
ið sem kom fram á mótinu og spilaði svo
vel, jafnvel mjög erfið verk að ég á ekki
orð til að lýsa þeim árangri sem mér
finnst þetta unga fólk vera að ná svo hvað
það varðar er framtíðin björt. Að sjálf-
sögðu er þetta að þakka hinum fjölmörgu
harmonikukennurum sem hafa unnið
gott starf svo og unglingalandsmótum í
harmonikuleik sem hafa verið haldin ár-
lega um nokkurt skeið. Þar hittist unga
harmonikufólkið ásamt kennurum og
spilar, kynnist og lærir hvert af öðru.
Samstarf S.Í.H.U. um næsta landsmót
unglinga við Harmonikuakademínuna er
til staðar og mótið verður haldið að
Reykjum við Hrútafjörð, dagana 17. - 19.
október 2008.
Reynir Jónasson hefur lokið við að útsetja
samspilslög fyrir unga fólkið og verða
nótur sendar öllum harmonikukennurum
og tónlistarskólum f vikunni. Ég hvet öll
félög á landinu til að senda unglinga til
mótsins því að mér sýnist að það sé það
besta sem við getum gert til að efla harm-
onikuleik á landsvísu.
Á landsmótinu var tekin upp sú nýbreytni
að veita viðurkenningu þeim mönnum
sem lengi hafa verið f fararbroddi við að
kenna á harmoniku svo og breiða út
harmonikutónlist, ef til vill má segja að
þeir hafi dregið harmonikuvagninn um
langan tíma án þess að við hin höfum
þakkað þeim sem skyldi. Þetta var ekki
einfalt mál því að auðvitað voru fleiri sem
bent var á og voru þess fullkomlega mak-
legir að vera viðurkenndir og þökkuð vel
unnin störf. Þeim sem hlutu þessa við-
urkenningu núna óska égtil hamingju en
tek fram að ég vona að á þessu verði
framhald á komandi árum. Það er skoð-
un mín að við séum ekki nægilega dugleg
að viðurkenna það sem vel er gert og
sjálfboðaliðastörf eins og er svo mikið
um f okkar félagsskap verða oft útundan
og vekja ekki verðskuldaða eftirtekt.
Framundan er aðalfundur S.Í.H.U. sem
verður haldinn að Núpi í Dýrafirði í boði
Harmonkufélags Vestfjarða. Ég vona að
formenn og fulltrúar mæti til fundarins til
þess að hafa áhrif á gang mála, taka virk-
an þátt í fundarstörfum og umræðum um
þau mál sem verða á dagskrá svo og að
koma með nýjar hugmyndir. Ég trúi þvf
að við munum eiga þar góða helgi við
leik og störf.
Með bestu kvedjum til ykkar allra,
Jónas þórjóhannsson.
Tónleikar Jóns Þorsteins Reynissonar í Fríkirkjunni
Það kom mér sannarlega á
óvart þegar í byrjun ágústs s.l
var efnt til klassísks harm-
onikutónleika íslendings. Hann
hafði numið fræðin norður á
Sauðárkróki þar sem hann býr.
Mérvarð það mikið undrunar-
efni þegar mér var sagt að
hann hefði aðeins leikið á
hnappaharmoniku í tvö ár, en
áður hafði hann spilað á
píanóharmoniku. Fyrirframan
kór Fríkirkjunnar stóð fyrir
tónleikana glæsileg Borsini
hnappaharmonika með mel-
ódískan bassa og alhvítu
hljómborði.
Það vakti undrun mína við innganginn að
aldraðir, sjúkir og börn þurftu engann
aðgang að greiða, þó voru fáir áheyrendur
í kirkjunni. Þetta var þó eitt sögu-
4
legasta augnablik í sögu harmonikunnar
á íslandi. Þessi ungi maður hefur lokið
tónlistarnámi sínu íheimabæ. Það er Ijóst
að hann hefur náð undraverðum árangri á
skömmum tíma. Hann leikur
verk eftir Mozart, Chopin,
Scarlatti, Paganini auk Beet-
hoven, Bach, Boellman og
Vivaldi í eigin útfærslu, sem er
hin glæsilegasta á allan hátt.
Sérstaka athygli mína vakti
leikur hans á melódíska bassan
sem ekki gefur eftir því besta
sem ég hef séð hjá útlendum
stórmeisturum harmonikunar.
Það er mikið fagnaðarefni fyrir
okkur unnendur harmonikunar
þegar upp rfs slíkur snillingur
á okkar kæra hljóðfæri. Það er
vonandi að áhugafólk um
harmonikuna sæki þá tónleika
sem hann mun koma fram á í
framtíðinni. Að endingu vil ég óska Jóni
Reynissyni glæsilegrar framtíðar.
Högni Jónsson.