Harmonikublaðið - 01.09.2008, Blaðsíða 5
Rasmus Mose - Efnilegur tónlistarmaður
Forspjall:
Rasmus Mose fæddist 25. júlí 1991 og
býr í bænum Dronninglund á Norður-Jót-
landi f Danmörku. Nokkuð er liðið síðan
ég tók hús á honum og átti við hann stutt
spjall. í janúar á liðnu ári hljóðritaði
Rasmus 14 lög, þá 15 ára og nefnist disk-
urinn Tico, tico. Það er sá geisladiskur
sem um ræðir í eftirfarandi spjalli og ber
að taka mið af því.
í janúar á þessu ári hljóðritaði hann 17
lög og heitir diskurinn Whispering og
fékk einróma lof í danska harmóníku-
blaðinu og því haldið fram að hann sé
enn betri en sá fyrri. Diskurinn er með
svingyfirbragði, þó leikur Rasmus
gjarnan hinarýmsu stíltegundir.
Friðjón Hallgrímsson annaðist harm-
óníkuþáttinn Dragspilið dunarannað
sumarið í röð á RÚV af röggsemi með
stuttum og hnitmiðuðum upplýsingum.
Daginn fyrir sautjánda afmælisdag Ras-
mus Mose, fimmtudaginn 24. júlí sl.
kynnti hann fjögur lög af Whispering og
hóf þáttinn á tónsmfð hans Min Schottis
og kvað lítinn byrjendabrag á, ellegar
leiknum og sagði hann eitt mesta efni í
harmóníkuteik sem Danir eiga og hæfi-
leikana ótvíræða. Um titillag disksins
Whispering sagði Friðjón: “Ég verð að
segja, að þetta er lygilega gert af 16 ára
polla!” - Ekki amaleg ummæli hins
snjalla stjórnanda þáttarins. En það þarf
að huga að fleiru, sem rétt er að geta.
Lag nr. 9 Tyrkneskur mars er sagður eftir
Ludwigvan Beethoven, en ereftirannan
meistara Wolfgang Amadeus Mozart,
sem er K-331. Rasmus leikur stærsta
hluta marsins í skemmtilegum svingbún-
ingi, sem er nýmæli og mun koma á
óvart. Á fyrri diski Tico, tico er hliðstæð
yfirsjón. Lag nr. 2 Over bölgen er eignað
meistara Toralf Tollefsen, en er sem
kunnugt eftir Juvetino Rosas. - Alltafer
leitt þegar slíkt gerist, en mistökin eru
til þess að læra af þeim.
Rasmus Mose er hægur í framgöngu og Ijúfur drengur
og ég spurði fyrst hvenær áhuginn á harmónfku hefði
vaknað.
“Það er ansi langt síðan og ífyrstu hafði ég matskeiðar
fyrir ímyndaða harmónfku, en hóf að leika 10 ára.”
“Hverjir hafa kennt þér?”
“Ég var í eitt ár hjá Sören Brix og einnig hef ég lært
mikið af því að hlýða á harmóníkuleikara á ýmsum
mótum.”
“Hvort er betra að spila eftir eyranu eða nótum?”
“Það fer eftir tegund tónlistarinnar. Ef um konsertefni
er að ræða, þá er nauðsynlegt að styðjast við nótur.”
“Hverskonar músík hugnast þér?”
“Oft fer það eftir skapinu hverju sinni.”
“Ræður þú sjálfur lagavalinu á diskinum?”
“Ég valdi 20 lög sem öll eru að mínu skapi.”
“Hverjir eru eftirlætið þitt?”
“Af þeim eldri er ég hrifnastur af Ragnari Sundquist
og Sven Hylén, það er klárt og kvitt.”
“Hefuru spilað polkasyrpu Sundquists?”
Rasmus játti því og við vorum sammála, að Anderst
Larsson og Sören Brix færu létt með það, en væri ekki
fyrir hvern sem er. Rasmus gat þess að stíll Ragnars
og mörg laga hans væru honum geðþekk. Afyngri
kynslóð eru Alf Hágedal og Anders Larsson meðal fyr-
irmynda hans.
“Hefuru leitt hugann að öðrum diski?”
Rasmus játti, en vissi ekki hvenær af því yrði. Eins og skýrt er í forspjalli kom sá diskur
út á sl. vori.
“Hvaða áhugamál hefurðu fyrir utan dragspilið?”
“Ég sparka í bolta og hef hafið nám í uppeldisfræði.”
“Hvaða munur er á hnappa- og píanóborði?”
“Ég leik einungis á hnappa og er ófær á píanóborð.”
Við urðum sammála um að einhver hluti laga væri ýmist samin fyrir hnappa eða píanó-
borð. Fyrrmeir voru framleiddar harmóníkur með hvortveggja borðinu. Rasmus kvaðst
eiga slíkt hljóðfæri, en pfanóborðið væri bara til skrauts.
“Þú hefur fengið mikið lof fyrir diskinn Tico, tico á íslandi, sem hefur verið kynntur í
Ríkisútvarpinu. Gætir þú hugsað þér að heimsækja ísland?”
“Jú, máski einhvern tíma - það er ekki útilokað.”
“Hvað viltu segja við vini og félaga?”
“Löngunin og þráin til að spila þarf að vera til staðar, sé það ekki er best að sleppa því
og losna við kvölina.”
Spjallinu lauk með glimrandi harmóníkumúsík.
Hermóður Alfredsson, Danmörku.
Hjalti Jóhannsson lagfærði íslenskan texta, setningaskipan og greinarmerkjasetningu.
Accordion Repair and Tuning
http://iaccordion.net
Heimasíða þar sem hægt er að fá upplýsingar og ráð til að gera við harmonikur. Gæti verið gott fyrir laghenta til að bjarga sér.
V_____________________________________________________________________________________J