Harmonikublaðið - 01.09.2008, Blaðsíða 14
Kjartan Ólafsson í Stúfholti heiðraður
Síðastliðið vor ákvað stjórn Harmoniku-
félags Rangæinga að heiðra Kjartan Ólafs-
son í Stúfholti fyrir harmonikuleik um árabil
í Rangárvallasýslu og vfðar um land.
Af því tilefni heimsótti stjórn harmoniku-
félagsins ásamt nokkrum fleiri félögum
Kjartan á heimili hans að Stúfholti þann 30.
maí s.l.
ÍStúfholti átti hópurinn góða ogánægjulega
kvöldstund með Kjartani og börnum hans
Guðrúnu og Höskuldi og nutu hlýju og frá-
bærrar gestrisni þeirra að gömlum og
góðum sveitasið.
Jóhann formaður afhenti Kjartani áritað
heiðursskjal Harmonikufélagsins og Grétar
Geirsson ogjóhanntóku nokkurlögá harm-
onikur sínar, en í lokin kom Kjartan með
sína harmoniku og léku þeir félagar saman
nokkur lög.
Kjartan Ólafsson erfædduráSkriðnesenni
f Bitrufirði 1. nóvember árið 1917. Fluttist
ungur að árum með foreldrum sínum úr
Strandasýslunni vestur í Dalasýslu að Ytri
- Fagradal á Skarðsströnd. 1930 er hann á
Melum í sömu sveit, eitthvað í Litla - Holti
í Saurbænum en flytur þaðan með elstu
systir sinni Önnu Jakobínu og
m a n n i hennar að
Jóhann, Kjartan og Grétar.
Melum 1935, ásamt foreldrum sínum, föð-
urbróðurog systursinni sem öllvoru íLitla
- Holti, en fyrir voru á Melum Valgerður
móðursystir Kjartans og Rögnvaldur maður
hennarsem varkennari. Þarnavoru þá sam-
ankomnar í sama húsinu fjórar fjöl-
skyldur.
Á Melum eignaðist Kjartan sína fyrstu harm-
oniku sem var tvöföld og óttalegur garmur
að sögn Kjartans. Fljótlega fékk hann sér
næstum nýja harmoniku frá Granesso AS
Hagström. Átti hann þá harmoniku til ca.
1950 er hann hóf búskap. Lagði hann þá
harmonikuleik til hliðar um skeið. Seldi
hann nikkuna þá Þorleifi Finnssyni ÍÞverdal
sem borgaði 2000 krónur fyrir hana og þótti
það gott verð á þeim tíma.
Á unglingsárum sínum dvaldi Kjartan um
tíma á Skarði á Skarðströnd og kynntist þar
miklu tónlistarfólki, þar á meðal Boga Magn-
ússyni sem var hljóðfærasmiður og smíðaði
m.a. fiðlur, einnig minnist Kjartan systranna
á Skarði sem voru góðir harmonikuleik-
arar.
Fljótlega fór Kjartan að spila á
böllum og fór víða, en mest um
Dalasýslu og Barðaströnd. Oft
tók ferðin á annan sólarhring.
Til ferðarinnar hafði hann 2
hesta, annan fyrir sig og á hinn
hestinn setti hann harmonik-
una í sérsmíðaðri tösku og á
móti henni hafði hann einhvern
annan hlut til að vega upp á
móti henni.
Árið 1950 hóf Kjartan búskap
með Halldóru Jóhann-
esdóttur. Hún var fædd í
Hvammsdalskoti í Saurbæj-
arhreppi í Dölum 7. ágúst 1934.
Þau hófu búskap árið 1951 í
Hvammsdal og bjuggu þar til
1964. Þá fluttu þau á Akranes
og voru þar í eitt ár, þaðan
fluttu þau að Laxárnesi í Kjós
ogvoru þartilársins 1978, en
þá keyptu þau jörðina Stúf-
holt í Holtum.
Kjartan heiðursfélagi.
Halldóra lést 8. september árið 2000. Þau
eignuðust 3 börn: Guðrúnu, Höskuld og
Guðbrand. Kjartan hefur nú hætt búrekstri
ogselthann íhendurbarna sinna Guðrúnar
og Höskuldar og dvelur hjá þeim f Stúf-
holti.
Eftirað Kjartan flutti að Laxsárnesi árið 1965
keypti Kjartan harmoniku af Scandalli pro-
fessonal md gerð, en þá var búin að vera
þar lítil píanó harmonika um tíma sem áreið-
anlega hefur vakið spilaneistann hjá Kjart-
ani á nýjan leik og nú varð ekki aftur snúið
með spilamennskuna.
Árið 1989 skipti Kjartan Scandalli harmonik-
unni út fyrir Victoria harmoniku og eignast
þá líka Þaolo soprani, gamla harmoniku sem
hann á. í apríl 2004 skiptir hann svo Victori-
unni út fyrir nýja Sem harmoniku
Fljótlega eftir stofnun Harmonikufélags
Rangæinga árið 1985 gekk Kjartan f félagið
og hóf æfingar með Valdimar Auðunssyni
og félögum hans og spilaði með þeim um
tíma á böllum hér sunnanlands. Lengst af
spilaði Kjartan á hnappaharmoniku, en
hann hefur nú að mestu lagt harmonikuleik-
inn á hilluna eftir langt og farsælt starf til
gleði og skemmtunar fyrir alla þá sem áttu
þess kost, að njóta harmonikutónlistarinnar
frá næmum huga og fingrum Kjartans Ólafs-
sonar.
Það var vor í lofti f Holtunum og ilmur úr
grasi þegar gestir kvöddu eftir ánægjulega
kvöldstund með Kjartani og börnum hans.
- Megi þau lengi njóta glaðra og góðra
stunda.-
Haraldur Júlíusson
(Heimildir. Fjölskyldan Stúfholti og
Goðasteinn 37. árg. 200ibls.34ó)