Harmonikublaðið - 01.09.2008, Qupperneq 11

Harmonikublaðið - 01.09.2008, Qupperneq 11
Rausnarleg gjöf til Byggðasafns Vestfjarða Undanfarin ár hefur nokkrum sinnum komið til tals að Ásgeir S. Sigurðsson myndi koma harmonikusafni sínu til varðveislu á Byggðasafni Vestfjarða á ísafirði. Það varsvo ívor, þann 29. maí sem skrefið var stigið til fulls. Afhentu þá hjónin ÁsgeirS.Sigurðsson ogMes- síana Marzellíusdóttir harmonikusafn sitt að gjöf til Byggðasafnsins. Harm- onikusafnið taldi þá 140 harmonikur af ýmsum gerðum, ogsú elsta í safninu er frá því um 1820-1830. OgÁsgeirerenn að því síðan hafa bæst við 10 harm- onikur. Framvegis mun harmonikusafnið verða sérsafn innan Byggðasafnsins undir nafninu Harmonikusafn Ásgeirs S. Sig- urðssonar. Þetta er mikill happafengur fyrir Byggðasafnið, því þetta mun vera eina hljóðfærasafnið sem til er á land- inu. í þessu safni leynast mikil verðmæti sögulegs eðlis. Hver harmonika er skráð sérstaklega og getið gefanda og einnig um fyrri eigendurogsögu hljóðfærisins ef hún er þekkt. Því miður er ekki hægt að hafa allt safnið til sýnis í einu, en vonandi stendur það til bóta síðar þegar húsakostur Byggðasafnsins vænkast sem verður vonandi innan fárra ára, og verður þá hægt að gera sögu harmonikunnar sem hljóðfæris betri skil. Við afhendingu safnsins varopnuð sýn- ing á völdum harmonikum í eigu safn- sins og er sýningin staðsett íTurnhús- inu, sem er aðalsýningarhúsnæði Byggðasafns Vestfjarða. Þar eru til sýnis harmonikur sem sem spanna um 170 ár í sögu harmonikunnar. Reynt er að skipta um sýningarharmonikur reglu- lega til að geta sýnt sem stærstan hluta af safninu. Sett hafa verið upp veggspjöld sem segja lauslega frá sögu harmonikunnar erlendis og hér á landi. Til sýnis eru verkfæri sem Ásgeir notar við viðgerðir á harmonikum, því algengt er að harm- onikur sem borist hafa safninu hafi verið mjög illa farnar og þær þá þurft mikilla viðgerðarvið. Ef gestir vilja spreyta sig á harmonikuleikertil staðar harmonika á sýningunni sem ætluð er í slíkt 11

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.