Harmonikublaðið - 01.05.2011, Side 2

Harmonikublaðið - 01.05.2011, Side 2
Ávarp formanns Kæri harmonikuunnandi Frá sídustu grein sem ég skrifaöi í bladið hafa komið jól og áramót og ég þakka ykkuröllum fyrirgottsamstarf á árinu 2010 og vonast til að við gerum enn betur á því ári sem hafið er. Að þvíégbestveit hafa harmonikufélögin verið að undirbúa sig undir landsmót SÍHU sem haldiðverðurá Hellu dagana 30. júni til 3. júlí 2011 og ég vona að landsmótið okkar verði vel sótt og að öll dagskrá verði þaröllumtilsóma. Sérstaklega minni ég á að á aðalfundi var það rætt að ungir harmonikuleikarar fengju pláss á landsmótinu og ég hvet félögin til að gera sitt besta í þeim málum því að oft hefur verið þörf en nú er nauð- syn. Ég segi þetta ekki hvað síst vegna þess að mér finnst ganga illa að yngja upp í okkar herbúðum, ef svo má segja og tel að við höfum ekki við aðra að sakast f því efni en okkur sjálf. Samkvæmt samtali við mótshaldara gengur undirbúningur vel hvað varðar aðstöðu og annað sem til mótsins þarf þannig að við getum verið þess fullviss að hlutirnir verða í lagi þegar við mætum á staðinn með góða skapið, tónlistina og gleðina í för með okkur. í blaðinu verður landsmótinu gerð skil þannig að við lestur þess ættum við öll að vera þokkalega upplýst um hvað verður um að vera dagana sem mótið stendur. Framundan er harmonikudagurinn en hann verður haldinn samkvæmt venju fyrstu helgi í maí, nánar tiltekið laugardaginn 7. maí. Landssambandið mun sjá til þess að auglýsa harmonikudaginn í útvarpi en félögin verða að auglýsa hvert á sínu svæði eins og gert var f fyrra og gaf góða raun. Ég hef ekki annað heyrt en að harmon- ikudagurinn í fyrra hafi verði aðildarfélög- unum til framdráttar á sínum starfs- svæðum ogerþaðvel. Sérstaklega skal tekið fram að ánægja ríkti þar sem að ungt fólk stóð vaktina og lét til sín taka. Það vakti sérstaka athygli því að í hugum margra er harmonika eitthvað hljóðfæri sem aðeins eldra fólk spilar á og á því ekki upp á pallborðið hjá þeim yngri af þeim ástæðum. Fyrir nokkru voru sendar út til aðildarfélaga reglugerðir sem stjórn hefur sett um við- urkenningar og um útnefningu heiðurs- félaga. Ég bið formenn og stjórnir aðildarfélaga að skoða þessar reglugerðir og athuga hvort að hjá þeim sé einhver sem á slíka viðurkenningu skilið og koma þeim óskum á framfæri við stjórn SÍHU sem fyrst. Á síðasta vori var haldinn dansleikur í Breiðfirðingabúð þar sem allur ágóði af dansleiknum rann til SÍHU. Allir hljóðfæra- leikarar gáfu vinnu sína og erum við stjórnarfólk vissulega þakklát fyrir þennan miklvæga stuðning við sambandið. Þar sem þetta gekkvel í fyrra hefur verið ákveðið að halda aftur svona dansleik laugardaginn 7. maí (harmonikudaginn) í Lóninu á Akureyri og verður það auglýst nánar þegar nær dregur og Ijóst er hverjir koma og spila á dansleiknum. Égveitað nú eru harmonikufélögin f land- inu að undirbúa sínar sumarhátíðir. Ég sótti heim 3 slíkar hátfðir á síðastliðnu sumri og fannst gaman. Það er frábært að sjá hvað fólk leggur á sig til að gera þessar samkomurjafn góðarograun bervitni. Ég vona að svona verði þetta um ókomna tíð vegna þess að það væri mikill skaði ef þessar hátíðir legðust af svo ekki sé meira sagt. Þegar þetta er skrifað skín sólin inn um gluggann og mér finnst að vorið sé komið. Samkvæmt því styttist óðfluga í að við hittumst öll á landsmóti á Hellu til þess að sjá og heyra það besta sem er að gerast í harmonikutónlist á íslandi. Það verður gaman að sjá ykkur öll þar. Með sumarkveðjum, jónas Þór Munið landsmótið 30. júní - 3. júlí á Hellu! Harmonikusafn Ásgeirs S. Sigurðssonar býður öldruðum harmonikum farsælt ævikvöld á Byggðasafni Vestfjarða. Sími: 456 3485 pg 844 0172. Netfang: assigu@internet.is Veffang: www.nedsti.is 2

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.