Harmonikublaðið - 01.05.2011, Blaðsíða 19

Harmonikublaðið - 01.05.2011, Blaðsíða 19
brandara. Pétur Bjarnason flutti gott erindi um hamingjuna. Agnes Þorsteinsdóttir söng einsöngslög við undirleik ömmu sinnar AgnesarLöve. Reynirjónasson léká harmon- iku undir fjöldasöng og sá einnig um hluta dinnertónlistar og auk þess lék Jónas Þórir líka á píanó og svo Fróði Oddsson á gítar og var öllum vel fagnað fyrir þeirra framlag. Gísli bróðir flutti svo gamanvísur við góðar undir- tektir. Magnús Ástvaldsson flutti grínvísur og kveðjurfrá Dalamönnum. Þátttaka vardræm ígátu lausnum en nokkrir þreyttu þærogvoru þrjú borð með rétt svör og þurfti að draga því einungis voru veitt tvenn verðlaun. Happ- drættismiðar rokseldust og færri fengu en vildu. Þeir sem fengu vinninga undu glaðir við sitt. Guðný var sérstakur kossaaðstoðar- maður Friðjóns. Þá var komið að dansinum. Fyrst steig á svið hljómsveitin Rófustappan frá Selfossi, hana skipa þeir Grétar Geirs og Doddi rafvirki á harmonikur, Helgi Kristjáns- son á gítar, Óðinn Helgason á bassa ogStefán Þórhallsson trommari. Gólfið varð á örstundu troðfullt. Næstir á svið voru þeir Ómar Skarp- héðinsson, Garðar Einarsson, Jón Ingi Júlíus- son, Helgi Kristjáns, Hreinn Vilhjálmsson og GuðmundurSteingrímsson. Fjörið héltáfram á dansgólfinu. Næst var hljómsveit Gunnars Kvaran og með honum léku áðurnefndur Helgi, Hreinn, Guðmundur Steingríms og einnig Reynir Jónasson. Að lokum léku Vind- belgirnir með fyrrnefndum aðstoðarmönnum og þá var orðið þægilegt að dansa því rýmkað hafði í salnum. Allir fóru sælir heim eftir skemmtilegt þorrablót. Dansleikur í Breiðfirðingabúð 19. mars. Þessi dansleikur var vel sóttur líkt og aðrir hjá félaginu. Garðar Olgeirsson hóf leikinn ásamt Hreini Vilhjálms- syni, Fróða Oddssyni og Þóri Magnússyni. Þeirvoru alvegfrábærir með Ijúfa stillingu á tækjunum og léku gömlu dansana og sér- dansana líka þannig að allir voru á gólfinu og þó engir eða fáir árekstrar. Eddi Árna tók við með Halldóri Svavars og Þóri. Hann spil- aði enn önnurskemmtileg lögogenn varfullt gólfið og mikið gaman. Þá tók við Smárinn frá HR eða þrjú af þeim Guðný K Erlings, Eyrún ísfold og Jón Þór. Nú var aðeins rýmra á gólf- inu enda sumir farnir heim því flestir mæta kl. hálf tíu. Þetta var hin fínasta dansmúsik og þau tjáðu okkur að þetta væri eiginlega frumraun hjá þeim. Vænst þótti undirritaðri um að heyraTitte til hinanden eða Blikka þau hvortannað, ogfleiri gömulgóð lög. Enn fóru allir kátir heim eftir skemmtilegt kvöld. Hljómsveit félagsins lék í Árskógum á handavinnusýn- ingu eldri borgara fyrsta ogannan apríl. Fjöl- breytt samsetning var á prógramminu og stjórnaði Reynir Sigurðs hvað boðið yrði uppá. Var almenn ánægja með framtakið en þannig launuðum við fyrir æfingahúsnæðið, en hljómsveitin hefuræftþará miðvikudags- kvöldum fveturaf kappi fyrir Landsmótið að Hellu. Stjórn og skemmtinefnd eru afar þakk- lát þeim sem sækja viðburði félagsins og allt umstang hefurverið þess virði. Dansleikur var haldinn í Breiðfirðingabúð 9. apríl. Undirrituð var fjarri þessu gamni en við annan gleðiviðburð. Vindbelgirnir hófu leikinn kl. 21.30 og síðan tók við hljómsveit undir stjórn Sveins Sigurjónssonar. Lára og Gullfiskarnir luku svo dansleiknum kl. 2.00. Aðeins færra fólk mætti en á áðurnefnda dansleiki, en skemmtu sér engu að síður mjög vel og dansaðvarút ballið. Framundan eru svo: Lokadansleikurinn í Breiðfirðingabúð 30. apríl 2011, Harmon- ikudagurinn 7. maí 2011 og skemmtifundur í Iðnó 8. maí 2011. Svo mætum við auðvitað á sumarmótin, en FHUR verður með hátíðina „Nú er lag“ að Varmalandi í Borgarfirði um verslunarmannahelgina. Þar er góð aðstaða; gisting, sundlaug, verslun og góðir danssalir. Þessi aðstaða dugði vel á öðru Landsmóti SÍHU1984. Að lokum vil ég vekja athygli á að FHUR er komið á fésbókina, ásamt HR og FHUE og HUV og eigum við orðið vini víða um heim. Hlakka til að sjá ykkur á landsmótinu og öðrum mótum í sumar. Með harmonikukveðjum. ElísabetH. Einarsd. Hin árlega sumarhátíð Harmonikufélags Héraðsbúa verður haldin í Brúarásskola um verslunarmannahelgina, dagana 29. - 31.jul. 201 . Tjaldstæði við Hótel Svartaskóg. Heimafólk og gestir sjá um hljóðfæraleik og skemmtiatnði. Föstudagur 29. júlí dansleikur. Laugardagur 30. júlí tónleikar og dansleikur. Nánar auglýst síðar. Hótel Svartis^ógur SJÁUMST í SVARTASKÓGI Brúarásskóli, besti samkomustaður á Héraði 19

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.