Harmonikublaðið - 01.05.2011, Blaðsíða 3

Harmonikublaðið - 01.05.2011, Blaðsíða 3
S' ' Harmonikublaðið ISSN1670-200X Ábyrgðarmaður: Gunnar Kvaran, Álfaland 7,108 Reykjavík Sími 568 3670, netfang: alf7@mi.is Prentvinnsla: Héradsprent, Egilsstöðum, www.heradsprent.is Netfang: print@heradsprent.is Forsíða: Hella. Meðal efnis: • Fréttir frá H.U.H. -Árshátíð H.F.Þ. - Persmoen og Svartkopptreffen - Ferð H.F.Þ. í Breiðdalinn - H.F.R. spilar fyrir leikskólabörn - Minning Jóhann Sigurðsson - Minning Þorsteinn Pálmi Guðmundsson - Vetrarstarf F.H.U.E. - Skemmtun H.F.Þ. og Kveðanda í Ljósvetningabúð - Nesjavallapolki, Landsmótslagið 2011 - Landsmót S.f.H.U. á Hellu 2011 - Starf F.H.U.R. árið 2010 - 2011 - Hornfirsk harmonikuhátíð - Fréttir úr Skagafirði - Hvað vakti áhuga minn á harmonikunni? - Vitatorgsbandið er í fullu fjöri - Harmonikumeistarinn BÉ GE - Harmonikufréttir úr Dölunum - Fréttirfrá Harmonikufélagi Reykjavíkur Auglýsingaverð: Baksíöa 1/1 síða kr. 23.000 1/2 síða kr. 15.000 Innsíður 1/1 síða kr. 18.400 1/2 síða kr. 11.500 1/4 síða kr. 6.700 1/8 síða kr. 4.600 Smáauglýsingar kr. 2.500 Skilafrestur efnis fyrir næsta blað er 1. september 2011. Frá ábyrgðarmanni Ágæti lesandi. Þetta erfyrsta tölublað af þremurersam- bandið gefur út á þessu ári. Það verður að segjast eins og er að rekstur blaðsins á síðasta ári gekk vel og skilaði blaðið nokkrum rekstrarafgangi og er það vel. Þetta ber að þakka öllum þeim er komu að blaðinu, svo og öllum þeim aðildar- félögum og einstaklingum er sýndu þann dugnað að senda efni og myndir í þau blöð er komu út á síðasta ári. Það er von ritstjóra/ábyrgðarmanns að áframhald verði á þessu góða gengi blaðsins á nýju ári. Sama verður ekki sagt um heimasíðu sambandsins og er óhætt að segja að hún sé að mestu óvirk oger margt sem kemur þartil. Það er mín skoðun að stjórn og aðildarfélögin hafi ekki nýtt sér síðuna sem skyldi og þá sér í lagi stjórn sambandsins sem hefði átt að vera duglegri að koma áhugaverðu efni, upplýsingum til aðildarfélaga ofl. inn á heimasíðuna til að gera hana áhugaverðari þeim er heimsækja sfðu sambandsins. Eins hefði mátt brýna enn frekar fyrir formönnum aðildarfélaganna að senda inn áhugavert efni og tilkynn- ingar til birtingar á síðunni. Á síðasta stjórnarfundi sambandsins voru mál heimasíðunnar rædd sérstaklega og voru allir sammála um að gera eitthvað rót- tækttilað heimasíðan verði sem áhuga- verðust. Vil ég nefna að opnað verður fyrir umræður (spjall) á síðunni, sem ætti að gera sfðuna skemmtilegri og eins verður metnaður lagður f að setja sem mest af myndum inn á síðuna. Nú hækkar sól á lofti og harmonikuunn- endur fara að huga að komandi sumri, hvað varðar sumarhátfðir félaganna og annað skemmtilegt. Ég vil nota tækifærið og óska eftir þvf að sem flestir sendi undirituðum skemmtilegar frásagnir, sögur og myndir af því sem þeir upplifa á komandi sumri og á erindi í blaðið okkar. Gleðilegt sumar. Gunnar Kvaran 3

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.