Harmonikublaðið - 01.05.2011, Blaðsíða 20

Harmonikublaðið - 01.05.2011, Blaðsíða 20
Hornfirsk harmonikuhátíð Frá því að Harmonikufélag Hornafjarðar var stofnað 1994 höfum við félagarnir flest árin efnt til harmonikuhátíðar síðari hluta vetrar. Þá hefur verið boðið einum eða fleiri hljóðfæraleikurum til okkar af þvf tilefni. Hátíðin í ár var haldin 25. mars sl. og var haldin á veitingahúsinu Víkinni á Höfn líkt og mörg undanfarin ár. Hljómsveit félagsins lék Bræðurnir, frá vinstri Bragi Fannar og Andri Snær Þorsteinssynir. Spilagleðin leynirsér ekki nokkur lög og stjórnandi hennar allt frá stofnun er Gunnlaugur Þröstur Höskuldsson sem raddsetur einnig mikið af lögunum. Á bassa lékjóhann Morávekogá trommurnar Ragnar Eymundsson. Því næst tóku heiðursgestir kvöldsins við, en það voru að þessu sinni þeir Gunnar Kvaran ogHreinn Vilhjálmsson, komniralla leið úr Reykjavík. Þeir léku m.a. sín eigin lög og svo innlenda og erlenda tónlist. Flutningur þeirra einkennist af yfirvegun og góðu valdi á styrkleikabreytingum og auðheyrt að þeir eru ekki að byrja að Heiðursgestir kvöldsins, frá vinstri Hreinn Vilhfálmsson og Gunnar Kvaran Hljómsveitkvöldsins, Hilmarog fuglarnir. Frá vinstri: Gunnlaugur Þröstur Höskulds- son á gítar, Ragnar Hilmar Eymundsson á trommur, Haukur Helgi Þorvaldsson á harmoníku, Örn Arnarson söngvari og Jóhann Morávek á bassagítar. Þannig má enn sjá ínöfnum meðlimanna hvernig nafnið á hljómsveitinni kom til á sínum tíma þrátt fyrir einhver mannaskipti! Gunnar og Hreinn ogstóð fjörið sleitulaust yfirtil kl. 2 um nóttina enda var ekkert lát á dansinum allan tímann. Aðsóknin var mjög góð að þessu sinni enda veðrið einstaktega gott og að venju komu gestir langt að, t.d. austan úr Álftafirði og sunnan úr Öræfum eða nærri 100 km vegalengd úr hvorri átt. Geri aðrir betur! Við þökkum að lokum heiðursgestum kvöldsins kær- lega fyrir skemmtunina og öllum fyrir komuna. Zophonías Torfason gjaldkeri Harmonikufélags Hornafjardar. Harmoníkuleikarar í hljómsveitfélagsins: Frá vinstri: Zophonías Torfason, Jónína Einarsdóttir, Gunnlaugur Þröstur Höskuldsson spila saman enda fengu þeir verðskuldað klapp og uppklapp og við nokkur aukalög í staðinn. Þá tóku tvíburarnir Andri Snær og Bragi Fannar Þorsteinssynir við, spiluðu af sínum alkunna fjöri í meira en hálftfma lög úrýmsum áttum sem áheyrendur kunnu vel að meta. Ragnar Eymundsson lék undir á trommur með þeim. Að því loknu tók hljómsveitin Hilmar og fuglarnir við og lék fyrir dansi fram á nótt. Henni til aðstoðar og afleysingar voru gestirnir, 20 Wunið landsmótið " • 'tí X Ua\ 30. juni V 3. júlí a HeUu'. V

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.