Harmonikublaðið - 01.05.2011, Blaðsíða 5
Árshátíð Harmonikufélags Þingeyinga
6. nóvember 2010
Að venju héldum við árshátíðina að Breiðu-
mýri og byrjaði dagskráin kl.2o:30. Veislu-
stjóri var Friðrik Steingrímsson og um
matinn sá Kristján Guðmundsson ogkona
hans Ragna Þórisdóttir. Eftir að allir höfðu
komist eina umferð að veisluborðinu var
sérstakur gestur okkar kvaddur á svið. Það
var Jaan Alavere frá Stóru Tjörnum og flutti
hann nokkur vel valin lög á harmoniku. Þá
flutti fomaður stuttan annál og hagyrðingar
okkar fluttu vísur sem urðu til íferð félags-
ins vestur f Dali og Barðaströnd. Jón Árni
Sigfússon spilaði undir fjöldasöng á milli
atriða ogeinnigspilaði hann á undan borð-
haldi.
Ballið hófst svo 22:30 og var dansað til
2:30. Þeir sem spiluðu voru Grímur Vil-
hjálmsson á bassa, Hjörtur Hólm á trommur
og svo harmonikuspilararnir Stefán Þóris-
son og Ásgeir Stefánsson sem byrjuðu
ballið. Þá tók Jón Árni við, síðan Stráka-
bandið, Aðalsteinn ísfjörð og svo Sigurður
Leósson. Var mikið dansað, þó heldur væri
færra en venjulega og allir fóru glaðir
heim.
Sigurdur Ólafsson formaður HFÞ
Grímur, Hjörturog Stefán Geir
Hagyrðingarnir okkar
Kokkarnir hylltir
Jón Árni
Strákabandið
Veislustjórinn Fridrik Steingríms
5