Harmonikublaðið - 01.05.2011, Blaðsíða 25
Harmonikufréttir úr Dölum
Starf Nikkólínu hefurverið með hefðbundnu
sniði í vetur. Á síðasta aðalfundi var kosinn
nýr formaður Ásgerður Jónsdóttir í stað
Melkorku Benediktsdóttur, en hún hefur
verið formaður Nikkólínu í 6 ár og f stjórn
frá 1998 og starfað ötullega fyrir félagið.
Stjórn félagsins skipa nú Ásgerður Jónsdóttir
Steinþór Logi Arnarsson upprennandi tónlistarsnill-
ingur.
formaður, Jóhann Elísson ritari og Hafliði
Ólafsson gjaldkeri.
Nikkólína spilar reglulega fyrir eldri borgara
á þeim þremur hjúkrunarheimilum sem starf-
andi eru hér á svæðinu og fórum við á
aðventunni ogspiluðum nokkur jólalög fyrir
vistmenn, og höfðu allir ánægju af, bæði
flytjendurog áheyrendur.
Jörvagleði, menningarhátfð Dalamanna, var
haldin daganai3.-20. apríl, mikiltónlistar-
dagskrá var laugardaginn 16. apríl sfðast-
liðinn íDalabúð þarsemýmsir heimamenn
komu fram. Þar spilaði Nikkólfna nokkur
lög ásamt ungum harmonikunemendum úr
tónlistarskólanum. Það var ágætis undir-
búningur fyrir landsmót en við höfum verið
með reglulegar æfingar fyrir landsmótið í
vetur.
Á landsmótinu íár verður aðaláherslan lögð
á ungviðið og mun Nikkólína koma fram sem
ein sveit bæði börn og fullorðnir. Mikill
spenningur er fyrir landsmótinu og munum
við æfa reglulega fram að mótinu.
Einn af nemendum tónlistarskólans, Steinþór
Logi Arnarsson, hlaut sérstaka viðurkenn-
ingu á Nótunni, uppskeruhátíð tónlistar-
skólanna, fyrir frumsamið lag sem hann
útsetti ogflutti á harmoniku. Hann eraðeins
tólf ára gamall og spilar einnig á orgel og
píanó, auk þess að semja.
Það er gaman að segja frá því að nú eru þrír
ættliðir að æfa með Nikkólínu fyrir lands-
mót: Jóhann Elísson en hann hefurverið í
félaginu síðan 1981 og er því stofnfélagi og
var starfandi formaður f 5 ár. Hanna Valdís
er dóttir Jóhanns en hún hefur spilað með
harmonikusveitinni í 21 ár þrátt fyrir ungan
aldur. Hún byrjaði að spila með Nikkólínu
aðeins 9 ára gömul og nú hefur bæst í hópinn
sonardóttir Jóhanns, Ragnheiður Hulda Jóns-
Nikkólína á æfingu 3. apríl og stóðst ekki mátið að
bregða sér út í blíðuna.
3 ættliðirspila á harmoniku: f.v. Hanna Valdíslóhanns-
dóttir, Ragnheiður Huldalónsdóttir og Jóhann Elísson.
dóttir, sem er 12 ára og hefur lært á harmon-
iku í 2 vetur.
Við horfum björtum augum til framtíðarinnar
þar sem hér er töluvert af börnum sem hafa
heillast af harmonikunni og stunda nám í
tónlistarskólanum. Á.J.
jón Kr. Ólafsson söngvari frá Bíldudal
Söngvarinn frá Bíldudal hefur sungið með
mörgum harmonikuleikurum í tímans rás.
Hann hefur líka náð að rifja upp og flytja
ýmisverkvestfirskra tónskálda ogtextahöf-
unda, sem ella hefði farið lítið fyrir eða týnst
inn íblámóðu tímans. Svo var hann alltaf að
Söngvarinn frá Bíldudal
Það var fullt út úr dyrum og mikil stemming
halda til haga ýmsu sem öðrum fannst lítils
virði. Sumirvirðast hafa meiri þörf en aðrir
til þess að varðveita, geyma og tilreiða fyrir
aðra. Jafnframt hefur sagan sýnt að þeir
reynast skyggnari á verðmæti í samtímanum
en aðrir menn.
Úr þessu varð svo safn, sem er einstakt á
sína vísu, Melódíur minninganna á Bíldudal.
Það kostaði sitt að koma því á koppinn, en
hver veit nema það geti fært söngvaranum
eitthvað til baka, því aðsóknin að safninu
eykstárfrá ári.
Jón hefur stundum haldið tónleika í nafla
alheimsins, Reykjavík og það hafa alltaf
verið stórtónleikar, fullt út úr húsi og margir
þekktustu listamenn þjóðarinnar hafa lagt
honum lið og komið þarna fram.
Slíkirtónleikarvoru haldnir ílokseptember
í haust og salur FÍH í Rauðagerði var fylltur
út úr dyrum og rúmlega það. Þar komu m.a.
fram Raggi Bjarna, Kristján Jóhannsson,
Þuríður Sigurðardóttir, Jóhanna Þórhalls-
dóttir með 70-80 kvenna kór, Fjallabræður
og fjöldamargir aðrir.
Söngvarinn var heiðraður á margvíslegan
hátt við þetta tækifæri, meðal annars fékk
hann áletraðan skjöld frá FÍH sem Jónatan
Garðarsson afhenti. Pétur Bjarnason
Á Sólarkaffi Bílddælinga í Reykjavík 2011
Hérfærirjónatan Garðarsson söngvaranum skjöldfrá
FÍH auk þess sem honum var færður mikrófónn úr
eðalmálmi. Raggi er kátur
25