Reykjavík


Reykjavík - 23.02.2013, Síða 6

Reykjavík - 23.02.2013, Síða 6
23. febrúar 2013 Marineraðar ólívur og hummus ásamt pítubrauði er ein af hinum heilögu þrenningum. Gott mál er að marinera ólívurnar og geyma þær í ísskáp í lokuðu íláti í tvo til þrjá daga áður en á að nota þær. Önnur marineringin sem kölluð er chermoula á einnig mjög vel við fisk, rækjur og kjúkling. Þetta eru uppskriftir frá Mið- Austurlöndum og Norður-Afríku, löndum eins og Marokkó, Túnis og fleirum. Hummusinn læt ég fylgja með svona í gamni, því hummus er svo góður með ólívum og pítubrauði. Ólívur, hummus, pítubrauð skorið í bita og ískaldur bjór.....og allir glaðir! Chermoula marinering 1/2 „preserved lemon“ (fæst í betri búðum) 3 hvítlauksgeirar 5 msk. steinselja 5 msk. kóríander 1/4 tsk. saffran þræðir 1 tsk paprikuduft 1/4 tsk. cayenne pipar 1/4 tsk. chiliduft 1/2 tsk. cumin 2-3 msk. sítrónusafi 1 1/2 dl. ólívuolía Byrjið á því að taka kjötið úr sítrón- unni, við notum það ekki, skolið börkinn og þerrið og setjið í mat- vinnsluvél eða notið töfrasprota. Setjið síðan restina út í, olíuna síðast. Harissa marinering 3 msk. paprikur, eldaðar (fást tilbúnar í krukku) 2 tsk. harissa mauk (fæst einnig tilbúið) 3 hvítlauksrif, röspuð 1 1/2 dl. ólívuolía Setið paprikumaukið í skál ásamt harissa og röspuðum hvítlauk og að síðustu olíuna og hrærið vel. Marineringarnar passa fyrir 500 gr. af ólívum. Hummus 2 dósir kjúklingabaunir (skola þær vel) 1 msk. ljóst Tahini maldon salt pipar 1 lime (safinn) 1/2 hnefi ferskt kóríander 7 hvítlauksrif (eða eftir smekk) 1 1/2 msk. cumin 2 tsk. cayenne pipar olía Allt sett í matvinnsluvél. Hellið olíunni út í á meðan þetta er að hrærast og hættið þegar orðið er passlega þykkt. Smakkið, mér finnst stundum þurfa meira salt. Góða skemmtun! 6 · Kjúklingur í sataysósu · Núðlur með grænmeti · Djúpsteiktar rækjur með súr/sætri sósu · Svínakjöt í ostrusósu 25 ÁR Heimsent: 1.590 kr. + 900 kr. heimsendingargjald MatuR Andrea Guðmundsdóttir mat­ gæðingur í Listaháskóla Íslands býður lesendum Reykjavíkur upp á forvitnilegar uppskriftir frá öllum heimshornum. Myndir: Ylfa Eysteinsdóttitr túnis Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is • Verslun opin mán-fös 8.30 -17.00 Hreinlega frábær fyrir þvottahúsið Þvottavél og þurrkari tilvalin fyrir húsfélög og minni ferðaþjónustur Þvottavél og þurrkari • Ryðfrítt stál • Stærra hurðarop - 45cm þvermál • Sparnaðarkerfi fyrir vatn og orkunýtingu • Notendavæn og þægileg þvottakerfi • Þvottavél og þurrkari staflanleg til að nýta pláss betur • Margar góðar viðbætur fáanlegar, m.a. myntraufFAS TU S _E _0 6. 02 .1 3 Ólívur og hummus!

x

Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.